Morgunn - 01.12.1944, Page 57
MORGUNN
15:
í framtíð vora og rekja skyldleika vorn við engla, erki-
engla og þjóðir himnaríkis.
Ef raunveruleikur andans væri viðurkenndur sannleik-
ur, sem engum væri lengur unnt í móti að mæla, væri það
þá hugsanlegt, að þjóðirnar myndu eyða megini orku sinn-
ar til styrjalda og vísindalegra uppfinninga á tækjum til
að deyða með það, sem er ódauðlegt, og senda með ofbeldi
milljónir manna í blóma lífsins undirbúningslausar frá
þessu lífssviði og yfir á það næsta?
En hvar er þá staður trúarinnar, þeirrar trúar, sem vér
í Bræðrafélaginu viljum efla og vinna fyrir? Af því að vér
vitum, að Jesús var söguleg persóna staðhæfum vér, að í
sögunni af lífi hans og kenningu, sem vér höfum fengið
að erfðum, sé ekkert andstætt lögmálum náttúrunnar. Vér
sjáum fyrirbrigðin í lífi hans vera í fullu samræmi við þær
sálrænu staðreyndir, sem vér þekkjum og getum sannfærzt
um enn í dag. Þess vegna er það, að til grundvallar vorri
trú leggjum vér ekki að eins trú, almennt talað, heldur
einmitt þá fögru trú, sem Jesús kenndi og lifði.
Kirkjurnar leitast við enn í dag, að halda kenningu hans
á lofti. Þess vegna skorum vér á kirkjurnar, að þær bæti
hinum sálrænu vísindum við kenning sína um „Veg lífs-
ins“, til þess að fylgja dæmi Krists, að gera vísindin trúræn
og trúna vísindalega.
J. A. þýddi.