Morgunn - 01.12.1944, Blaðsíða 78
172
MORGUNN
það, sem sálarrannsóknirnar hafa til málanna lagt nú um
allmarga áratugi, ætti enginn maður að ætla sér, og sízt
svo merkur maður sem próf. Nordal, að „stíga í stólinn'-
til þess að tala um þau efni, án þess að hafa kynnt sér
rækilega, hvað sálarrannsóknirnar hafa leitt i ijós, hvern-
ig þær rannsóknir hafa verið reknar og hverjir hafa rekiö
þær. Séra Kristinn er nú að verða 84 ára gamall, en rök-
fimi hans mætti sæma hverjum ágætismanni ungum, og
mættu margir þeir, sem fram á ritvöllinn ganga, öfunda
hann af skýrri hugsun og Ijósri framsetningu. Allir þeir,
sem þekkja hinn aldraða merkismann, vita, að hann er
gagnmenntaður maður og eindreginn lærisveinn hins gamla
,,klassiska“ skóla, sem telur það höfuðdyggð, að hugsa
ljóst. Um það ber vitni þessi ritsmíð hans, sem margir
munu ekki sízt undrast, er þeir hafa aldur hans í huga.
Séra Kristinn er menntaður maður og víðlesinn í bók-
menntum sálarrannsóknanna, og verður þessi ritsmíð hans
jafnan talin höfuðrit um þau efni á íslenzku, enda hefir
hún mikið verið keypt og mikið lesin.
I ágætri grein um bók séra Kristins, sem birtist í Al-
þýðublaðinu, eru ummæli, sem MORGUNN þarf að gera
athugasemd við. Höf. (Snæbjörn Jónsson) víkur að því, að
menn muni spyrja, hversvegna MORGUNN hafi ekki
tryggt sér þetta rit til birtingar. Ritstj. MORGUNS var
kunnugt um ritið, áður en það fór til prentunar, en það varð
að samkomulagi milli hans og höf., að MORGUNN birti •
það ekki. Var það sumpart vegna þess, að höfundi þótti
það sjálfum vera of langt til að birtast í MORGNI, og þó
fremur vegna þess, að auðsætt var fyrir fram, að með því
að hin ágæta greinargerð birtist í sjálfstæðu bókarformi
myndi hún fá fleiri lesendur en hún ætti kost á i tímarit-
inu. Enda hefir sú orðið raunin á, að bókin hefir verið
mikið keypt. Væntum vér þess, að þeir kaupendur MORG-
UNS, sem enn hafa ekki keypt og lesið hina skörulegu
greinargerð séra Kristins, geri það meðan hennar er enn
völ á bókamarkaðinum.Eftirþeimlestrimunu þeir ekki sjá.