Morgunn - 01.06.1950, Síða 80
74
MORGUNN
lifandi, og vera sannarlega lifandi eftir slysið og dauðann.
Aðrar tilgátur hafa einnig verið settar fram, sem of
langan tíma mundi taka að gefa ágrip af hér. Nefna má til-
gátuna um serialisma, senl J. W. Dunne setur fram í bókum
sínum An Experiment With Time og Serial Universe, til-
gátuna, sem prófessorarnir Broad og H. H. Price hafa
sett fram, um annan tíma, hornréttan við tíma vorn og
fljótandi áfram í einni vídd, og tilgátuna, sem H. F. Salt-
marsh hefur sett fram, um undirvitund, sem sé óháð tím-
anum og skynji fortíð og framtíð sem eina heild. En allt
þetta mundi færa oss of langt frá efninu.
En eitt er það atriði, sem enn verður að nefna í þessu
sambandi. Það er, að með yfirvenjulegum hæfileika er unnt
að skynja hið liðna og hið ókomna, fortíðina og framtíð-
ina. F. H. Myers notar heitið „retrocognition" um slík
fyrirbrigði, en skráðar eru frásögur af miklum fjölda
þeirra. Þau eru e.t.v. ekki í sjálfu sér eins óskiljanleg og
precognition-dæmin, en samt er ákaflega erfitt að gera
sér grein fyrir þeim. Sameiginlegt með báðum þessum teg-
undum fyrirbrigða er a.m.k. það, að sjáandinn skynjar
þau sem nútíð, eins og þegar endurminningin flytur hið
liðna inn í nútíð vora. Þetta er merkilegt atriði, sem krefst
frekari sálfræðilegrar rannsóknar.
Enn er eitt merkilegt atriði, sem vert er að minnast
hér. Þar á ég við hinar margvíslegu raðir af mögulegum
framtíðum manna, sem W. B. Seabrook segir frá í bók
sinni Jungle Ways. Galdra-lækningakonan Wamba í Afríku
er hinn raunverulegi höfundur þessarar kenningar, og hún
segir á sínu einfalda máli þannig frá:
Nú ertu kominn að rjóðri í frumskóginum, og út frá
rjóðrinu liggja fimm götur í gegn um skóginn. Ef þú vel-
ur fyrstu götuna, kann að koma ljón og ráðast á þig- Ef
þú velur aðra götuna, kannt þú að koma að köldu renn-
andi vatni. Ef þú velur þriðju götuna, getur orðið fyrir
þér hópur vingjarnlegra innfæddra manna, sem skemmta
J