Fréttablaðið - 06.11.2010, Qupperneq 8
6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Hafðu samband
Fræðsla fyrir þig
Reykjavík – 10. nóv.
Fjármál hemilanna
Borgartún 19
Fyrirlesari
Breki Karlsson
Kópavogur – 16. nóv.
Greiðslur úr lífeyrissparnaði,
hvað ber að hafa í huga?
Turninn Smáratorgi
Fyrirlesari
Theódór Friðbertsson
Reykjavík – 24. nóv.
Lærðu á netbankann þinn
Borgartún 19
Fyrirlesari
Kristjana Emma
Kristjánsdóttir
Skráðu þig á arionbanki.is.
Allir velkomnir - Ókeypis aðgangur.
STAÐA
ATVINNUMÁLA
OG VINNU-
MARKAÐURINN
Samtök atvinnulífsins efna til opinna funda á
landsbyggðinni þar sem Vilmundur Jósefsson ,
formaður SA og Vilhjálmur Egilsson , framkvæmda-
stjóri SA, ræða um stöðuna í atvinnu lífinu, komandi
kjarasamninga og svara fyrirspurnum .
Staðir og stund
Ísafjörður - þriðjudaginn 9. nóvember
Hótel Ísafirði, kl. 12-14. Léttur hádegisverður.
Akureyri - fimmtudaginn 11. nóvember
Hótel KEA, kl. 8.30-10. Léttur morgunverður.
Húsavík - fimmtudaginn 11. nóvember
Veitingahúsinu Sölku, kl. 12-14. Léttur hádegisverður.
Reyðarfjörður - föstudaginn 12. nóvember
Safnaðarheimilinu, kl. 12-14. Léttur hádegisverður.
Stjórnendur og forsvarsmenn fyrirtækja, stórra sem smárra,
eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðunni ásamt öllu
áhugafólki um uppbyggingu atvinnulífsins.
Fleiri fundir auglýstir síðar.
Skráning á vef SA: www.sa.is
ÞJÓÐFUNDUR Þjóðin mun strax á
morgun fá meginniðurstöður af
þjóðfundinum sem fram fer í dag.
Allra fyrstu niðurstöður verða
kynntar á fundinum sjálfum.
Um þúsund manns munu koma
saman til þjóðfundar í Laugar-
dalshöllinni í dag. „Við hvert
borð fer fram sjálfstæður fund-
ur,“ segir Berghildur Erla Bern-
harðsdóttir, upplýsingafulltrúi
fundarins. Borðin verða 128 tals-
ins og munu níu manns vera á
hverju borði. Einn borðstjóri, sem
kallaður er lóðs, verður á hverju
borði auk átta þátttakenda á fund-
inum. Umræður hefjast um leið og
fólk er sest til borðs. „Það er búið
að hugsa mjög vel fyrir fundar-
flæðinu,“ segir Berghildur. Allir
sem stjórni borðum hafi hlotið
sérstaka þjálfun í því hvernig
þeir eigi að haga sínu hlutverki
svo að allir þátttakendur fái jafn-
an rétt til að tjá sig. „Allur und-
irbúningur hefur miðast að því
að gera umhverfið sem þægileg-
ast fyrir þátttakendur þannig að
þarna verði notalegt andrúmsloft
og fólki líði vel. Og það er hlut-
verk lóðsanna að gæta að því að
allir fái rými til að koma sínu að,
það sé ekki einhver einn ríkjandi
við borðið.“
„Fyrst og fremst er verið að
reyna að fá fram visku hvers og
eins. Við erum ekki að tala um að
vera sérfræðingar í stjórnarskrá
eða stjórnskipun heldur að fólk
sé að koma með sína lífssýn inn á
fundinn, það skiptir miklu máli,“
segir Berghildur.
Undirbúningur fundarins hefur
að hennar sögn gengið vel fyrir
sig. Leitað var til Mauraþúfunn-
ar, sem hélt þjóðfundinn í fyrra,
og koma fjölmargir úr þeim hópi
að fundinum nú. Unnið hefur
verið hörðum höndum undanfarna
daga til að allt verði tilbúið í dag,
en Berghildur segir mikla vinnu-
gleði einkenna undirbúninginn.
Um leið og þjóðfundinum lýkur
í dag hefst mikill úrvinnslufundur
starfsfólks og stjórnlaganefndar
og verða frumniðurstöður kynnt-
ar á blaðamannafundi klukkan
fjögur á morgun.
„Þjóðin fær því að sjá niður-
stöður af fundinum núna um helg-
ina. Auðvitað verður kannski ekki
hægt að sýna öll gögn strax, en
markmiðið er að meginniðurstöð-
ur verði kynntar á sunnudaginn,“
segir Berghildur Erla.
thorunn@frettabladid.is
Fyrst og fremst er
verið að reyna að fá
fram visku hvers og eins. Við
erum ekki að tala um að vera
sérfræðingar í stjórnarskrá”
BERGHILDUR ERLA BERNHARÐSDÓTTIR
UPPLÝSINGAFULLTRÚI ÞJÓÐFUNDARINS
Niðurstöður kynnt-
ar strax á morgun
Þjóðfundur fer fram í Laugardalshöll í dag. Fólk á ekki að vera sérfræðingar í
stjórnarskrá heldur koma með sína lífssýn á fundinn, segir upplýsingafulltrúi.
Meginniðurstöður fundarins verða kynntar á blaðamannafundi á morgun.
STJÓRNSÝSLA Stjórn Fjármálaeftir-
litsins hefur lokið athugun á hæfi
Gunnars Þ. Andersen forstjóra
og sér ekki tilefni til að aðhafast
frekar.
Í tilkynningu frá stofnuninni
segir að Andri Árnason lögmaður
hafi gert sérstaka athugun á hæfi
Gunnars Þ. Andersen, forstjóra
Fjármálaeftirlitsins, að beiðni
stjórnar. Það sé gert með hliðsjón
af umfjöllun í skýrslu rannsókn-
arnefndar Alþingis um viðskipti
Landsbanka Íslands hf. og félags-
ins LB Holding Ltd. með hluta-
bréf Kaupþings banka hf. á árinu
2001, „og í tilefni af upplýsingum
um viðskipti Landsbankans og
félagsins NBI Holding Ltd. með
hlutabréf í [V] á árinu 2001.“
Í tilkynningu frá FME segir að
Andri hafi nú skilað athuguninni
til stjórnar og fjallaði hún um
niðurstöður hennar á fundi sínum
í dag. „Í ljósi niðurstöðu athugun-
arinnar tók stjórnin ákvörðun um
að ekki væri tilefni til að aðhafast
frekar í málinu.“
Rannsókn á forstjóra FME:
Aðhefst ekkert
frekar í málinu
GUNNAR Þ. ANDERSEN Stjórn FME
hyggst ekki aðhafast frekar í málum
forstjórans. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÞJÓÐFUNDURINN UNDIRBÚINN Það var líf og fjör í Laugardalshöllinni í gær en þá
stóð undirbúningur fyrir Þjóðfundinn sem hæst. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL