Fréttablaðið - 06.11.2010, Side 12
12 6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
FÓLK Þrjú hundruð krónur af
hverju seldu eintaki heimildar-
myndarinnar Síðasta ferðin munu
renna til Mæðrastyrksnefndar-
innar í Reykjavík. Myndin er
eftir Elínu Hirst fréttamann og
afhenti hún Mæðrastyrksnefnd
fyrsta eintakið af myndinni á
fimmtudag.
Haldið var upp á útgáfuna í
húsakynnum Mæðrastyrksnefnd-
ar í Hátúni. Þangað var skjól-
stæðingum nefndarinnar boðið í
vöfflur og kaffi í tilefni dagsins.
Síðasta ferðin fjallar um
íslenska vesturfara og var sýnd í
Ríkissjónvarpinu um páskana.
- þeb
Mæðrastyrksnefnd fær styrk:
300 krónur af
hverri mynd
HJÁ MÆÐRASTYRKSNEFND Elín Hirst
afhenti Ragnhildi Guðmundsdóttur, for-
manni Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur,
fyrsta diskinn á fimmtudag.
EFNAHAGSMÁL Stjórn efnahags-
mála verður að bregðast illilega
til þess að gjaldeyrishöftum verði
hér við haldið um lengri tíma.
Þetta er meðal þess sem fram kom
í máli Más Guðmundssonar seðla-
bankastjóra á fundi Viðskiptaráðs
Íslands í gærmorgun. Hann sagði
höftin hafa gegnt hlutverki í að ná
stöðugleika en þau væru nú farin
á rekast á önnur markmið, svo
sem um aukinn hagvöxt, fjárfest-
ingu og tengingu landsins við aðra
fjármálamarkaði.
Um leið kom fram í máli Más
að ekki væri hægt að útiloka að
Alþingi samþykkti að framlengja
gjaldeyrishöftin á næsta ári, en
samkvæmt lögum rennur gildis-
tími þeirra út í ágúst 2011.
Fulltrúar í pallborði lýstu marg-
ir hverjir efasemdum um að hægt
yrði að aflétta höftum í bráð, enda
hefðu þau staðið í áratugi í ein-
hverri mynd áður en þeim var aflétt
á tíunda áratug síðustu aldar.
Arnór Sighvatsson aðstoðarseðla-
bankastjóri sagði aðstæður í dag
hins vegar aðrar á tímum alþjóð-
legra viðskipta og því afar ólíklegt
að höftin vörðu lengi. „Svo lengi
sem við erum aðilar að Evrópska
efnahagssvæðinu sé ég ekki fyrir
mér að við getum verið lengi með
höftin,“ sagði hann og benti á að
þeim yrði ekki viðhaldið nema í
skjóli samþykktar Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins. Hann benti á að efna-
hagsáætlun stjórnvalda rynni út í
ágúst á næsta ári og ekki seinna en
þá þyrfti að liggja fyrir tímasett
áætlun um afnám hafta.
Arnór sagði jafnframt ljóst að ef
þjóðin hafnaði aðild að Evrópusam-
bandið þyrfti að bæta framkvæmd
peningastefnunnar. „Við þurf-
um einhvers konar viðbótartæki
til viðbótar við vaxtatækið til að
minnka veltinginn,“ sagði hann en
taldi „draumóra“ að gera ráð fyrir
því að sveiflur á gengi krónunnar
hyrfu. olikr@frettabladid.is
Í PALLBORÐI Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, stýrði umræðum á fundi
Viðskiptaráðs í gær. Í pallborði voru Arnór Sighvatsson, Kristín Pétursdóttir, Benedikt
Jóhannesson og Ásgeir Jónsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Höftin eiga að hverfa
Gengissveiflum krónunnar verður ekki forðað, segir aðstoðarseðlabankastjóri.
Hafni Íslendingar ESB-aðild þarf að bæta framkvæmd peningastefnunnar.
Sekt og sýkna fyrir vændi
Maður var í gær dæmdur í ríflega 100
þúsunda króna sekt fyrir vændiskaup.
Annar maður var sýknaður af ákæru
um að hafa keypt vændi.
DÓMSMÁL
Auður kaupir Já
Fagfjárfestasjóðurinn Auður 1 hefur
keypt Já upplýsingaveitu ehf. af Skipt-
um hf. Skrifað var undir samninginn
í gær. Kaupverðið er trúnaðarmál en
söluhagnaður Skipta af viðskiptunum
nemur 1,3 milljörðum króna. Greitt er
fyrir hlutinn með reiðufé.
VIÐSKIPTI
KNÚINN ÞOTUHREYFLUM Svisslend-
ingurinn Yves Rossi er eini maðurinn,
svo vitað sé, sem flýgur um á þotu-
knúnum flugvængjum. Hér sést hann
þjóta um loftin blá yfir Sviss.
NORDICPHOTOS/AFP