Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 13

Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 13
LAUGARDAGUR 6. nóvember 2010 13 JULIAN ASSANGE Vill rannsókn á mann- réttindabrotum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SVISS, AP Julian Assange, stofn- andi uppljóstrunarvefsíðunnar Wikileaks, skorar á bandarísk stjórnvöld að láta rannsaka hvort mannréttindi hafi verið brotin í Írak og Afganistan, frekar en að beina öllum kröftum sínum í að hafa uppi á þeim sem lekið hafa upplýsingum um athæfi Banda- ríkjahers í þessum löndum. „Nú er kominn tími til að Bandaríkin opni sig frekar en að fara í felur með hlutina,“ sagði hann við blaðamenn í Genf í gær, skammt frá höfuðstöðvum Sam- einuðu þjóðanna, en þar í borg hefst í dag fyrsta úttekt mann- réttindaráðs Sameinuðu þjóðanna á Bandaríkjunum. - gb Stofnandi Wikileaks: Skorar á banda- rísk stjórnvöld OSLÓ, AP Kínversk stjórnvöld hafa þrýst á evrópsk ríki að sniðganga afhendingar- athöfn Friðarverðlauna Nóbels í næsta mánuði. Þar verður kínverski andófs- maðurinn og rithöfundurinn Liu Xia- obo heiðraður, í mikilli óþökk stjórn- valda í Peking. Íslensk stjórnvöld staðfesta að þeim hafi borist bréf frá Kínverjum varðandi þetta mál, en engu að síður mun fulltrúi Íslands sækja athöfnina. AP-fréttastofan hafði í gær eftir Cui Tiankai, einum æðsta manni utanríkis- mála í Kína, að þær Evrópuþjóðir sem hyggist senda fulltrúa á athöfnina þurfi að spyrja sig hvort þeim sé í mun að eiga vinsamleg samskipti við Kína eða hvort þau kjósi heldur að gera atlögu að réttarkerfinu þar í landi. „Ef þau velja rangan kost munu þau þurfa að mæta afleiðingunum,“ sagði Tiankai, en fór ekki nánar út í hverjar þær gætu verið. Samkvæmt AP hafa yfirvöld í Finn- landi og Svíþjóð staðfest að hafa fengið bréf frá Kína, en enginn hefur enn afboðað sig. Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafull- trúi utanríkisráðuneytisins, staðfesti við Fréttablaðið að íslensk stjórnvöld hefðu fengið bréf frá kínverskum yfirvöldum sem varðaði afhendinguna, en gat ekki tjáð sig frekar um efni bréfsins. - þj Bjóða Kínverjum birginn Íslensk stjórnvöld hyggjast senda fulltrúa á afhendingu Friðarverðlauna Nóbels þrátt fyrir andstöðu kín- verskra stjórnvalda. Kínverjar hafa þrýst á evrópsk ríki að sniðganga athöfnina, eða „mæta afleiðingum“. ■ Liu Xiaobo er kínverskt skáld og andófsmaður sem afplánar nú 11 ára fangelsisdóm fyrir undirróðursstarfsemi gegn stjórnvöld- um. ■ Hann var meðal talsmanna róttækra umbóta á stjórnmála- kerfinu. ■ Eiginkona hans hefur setið í stofufangelsi síðan Nóbelsnefndin tilkynnti val sitt í október. ■ Kínversk stjórnvöld brugðust við útnefningunni af mikilli hörku og telja verðlaunin notuð af vestrænum löndum til að grafa undan auknum áhrifum Kína á heimssviðinu. Hver er Liu Xiaobo? UMDEILDUR Liu Xiaobo og kona hans hafa bæði mátt þola frelsissviptingu sökum skoðana sinna. NORDICPHOTOS/AFP islandsbanki@islandsbanki.is www.islandsbanki.is Sími 440 4000 Vaxtasproti er einfalda leiðin til að spara í áskrift Með sparnaði í áskrift getur þú sett þér markmið, lagt fyrir í hverjum mánuði, safnað vöxtum og átt fyrir því sem þig langar að gera. Hvort sem það er sumarfrí fjölskyldunnar, heimilistæki sem þarf að endurnýja eða eitthvað allt annað – þá er ódýrara að safna og eiga fyrir hlutunum en að fá lánað fyrir þeim. Vaxtasproti er sparnaðar- reikningur sem er alltaf laus. Þú getur því bæði safnað þér fyrir einhverju ákveðnu en um leið notað reikninginn sem varasjóð til að bregðast við óvæntum útgjöldum. Fyrir hverju langar þig að safna með sparnaði í áskrift? Byrjaðu að spara á islandsbanki.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.