Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 16

Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 16
16 6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is greinar@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Viðbrögð við viðhorfskönn-unum segja stundum meir en tölurnar. Könn-un sem birt var í vikunni hafði þau áhrif að forsætisráð- herra lýsti því yfir að endursemja yrði við AGS um stefnuna í ríkis- fjármálum. Ein könnun getur varla leitt til meiri kúvendingar. Viðbrögðin eru þess eðlis að ástæða er til að rýna nánar í baksvið talnanna en ella. Fjármálaráðherra hefur réttilega sagt að stjórnarflokkar sem glíma við mikla erfiðleika þurfi að þola kannanir sem sýna slaka í fylgi. Það athyglisverða er að eðlismunur er á fylgisbreytingu ríkisstjórnar- flokkanna í þessari könnun. Sömu skýringar eiga því ekki við þá báða. VG er að missa um fimmtung kjósenda sinna eftir einhvern mesta kosninga- sigur sem sögur fara af. Þó að það sé að vísu allmikið tap eiga skýringar fjármálaráðherra eigi að síður við. Samfylkingin er á hinn bóginn að missa um fjörutíu hundraðshluta af fylginu. Það er hrun. Ástæðan er ekki sú að forsætisráðherrann hafi tekið hitann og þungann í vörn fyrir erfið mál. Það hefur fjármála- ráðherrann hins vegar gert. Það er beinlínis ein af skýringun- um á þessu hruni að forysta Sam- fylkingarinnar víkur sér jafnan undan að verjast ágjöfinni. Önnur skýring er sú að flokkurinn hefur gefið eftir nánast öll þau mál sem aðgreina hann frá VG nema Evr- ópusambandsmálið, enn sem komið er. Afleiðingin er sú að vinstrivæng- ur VG, sem var áhrifalítill í byrjun, hefur smám saman náð undirtök- um í stjórnarsamstarfinu. Fyrir vikið er ríkisstjórnin föst í mál- efnakreppu og Ísland hefur borið af þeirri leið sem mörkuð var með endurreisnaráætlun AGS. Ólíkar skýringar á fylgisfalli ÞORSTEINN PÁLSSON Forsætisráðherra hafnaði umsvifalaust tilboði for-manns Sjálfstæðisflokks-ins í vikunni um breiða pólitíska samvinnu við ríkisstjórn- arborðið. Venjulega hefðu hvorki tilboðið né svarið sætt tíðindum. Í ljósi aðstæðna var tilboðið hins vegar athyglisvert en svarið þótta- fullt. Staða stjórnarandstöðuflokk- anna er ólík með svipuðum hætti og stjórnarflokkanna. Ytri aðstæður eru báðum flokkunum hagstæðar vegna vantrausts í garð ríkisstjórn- arinnar. Innri veikleikar hljóta því að ráða mestu um að Framsóknar- flokkurinn nær ekki kjörfylgi. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki náð fyrri styrk. Honum hefur hins vegar tekist að hagnýta sér veika stöðu ríkisstjórnarinnar til að bæta stöðu sína. Í vikunni kynnti flokk- urinn umfangsmiklar tillögur í efnahagsmálum. Með þeim hefur hann styrkt málefnastöðuna. Í ríkisfjármálum stefna tillög- urnar að sama marki og ríkis- stjórnin hefur gert fram til þessa samkvæmt AGS-áætluninni. Skattastefnan miðar hins vegar að því að draga úr lamandi áhrifum á atvinnusköpun. Orkunýtingar- stefnan þýðir framkvæmdir í stað stöðnunar. Í tillögunum er ekki fjallað um stefnuna í peningamálum. Það er veikleiki. Eigi að síður eru þær gilt framlag til málefnalegr- ar umræðu og samstarfs. Snöggi bletturinn er óábyrg afstaða til heildaraflaaukningar. Þóttafullt afsvar Kjarni málsins er sá að Samfylkingin virðist vera að tapa fylgi eftir því sem vinstrivængur VG verð- ur áhrifaríkari. Ástæðan er sú að stór hluti kjósenda hennar stendur nálægt miðju stjórnmálanna. VG hefur fram til þessa beitt margvíslegum stjórnsýsluráðum til að hindra hagvöxt með frekari orkunýtingu og erlendri fjárfest- ingu. Margt bendir til að flokkurinn hyggist beita sams konar meðulum til að hindra framgang aðildar- viðræðnanna án þess formlega að rjúfa samkomulagið um umsóknina. Kyngi Samfylkingin því gæti traust hennar rýrnað enn frekar. Verra er þó að slík þróun mála myndi veikja samningsstöðu Íslands. Á hinn bóginn gæti það skapað tækifæri fyrir stjórnarand- stöðuflokkana til að styrkja stöðu landsins með jákvæðari afstöðu. Ríkisstjórnin hefur ekki fylgt eftir þeim orkunýtingaráformum sem samstarfsáætlunin við AGS gerir ráð fyrir. Nýlega lýsti forsæt- isráðherra því yfir að horfið yrði frá viðmiðunum áætlunarinnar varðandi lausn á skuldavanda heim- ilanna og nú hefur hann bætt ríkis- fjármálunum við að kröfu vinstri- vængs VG. Þá er harla lítið eftir. Rétt er hjá forsætisráðherra að ríkisstjórnin þarf ekki á stuðningi stjórnarandstöðunnar að halda. En það er aðeins rétt í þeim skilningi að stjórnin gangi að þeim afarkost- um sem vinstrivængur VG setur henni. Talsmenn vinstrivængsins hryll- ir við atvinnusköpun með orkunýt- ingu svo þeirra eigin tungutak sé notað. Forsætisráðherra kýs þann kost fremur en samstarf á miðj- unni um atvinnu. Þetta val forsæt- isráðherra endurspeglast skýrt í skoðanakönnunum. Niðurstaðan er þessi: Ríkisstjórn- in er ofurseld vinstrivæng VG og rúin trausti. Stjórnarandstöðu- flokkarnir þurfa meira traust til að stefna að eigin stjórn í bráð. For- sætisráðherra hafnar breiðu ríkis- stjórnarsamstarfi. Fyrir vikið er þjóðin stödd í pólitískri blindgötu. Fylgið speglar val Þ ingi Norðurlandaráðs er nýlokið hér í Reykjavík. Það er ánægjulegt að sjá að svo virðist sem nú sé áhugi á nor- rænu samstarfi að aukast meðal Norðurlandabúa eftir nokkurt áhugaleysi undanfarinna ára. Við setningu þings- ins í vikunni vitnaði forseti þess, Helgi Hjörvar, í nýja könnun sem sýnir að 80 prósent Norðurlandabúa styðja norrænt samstarf. Þannig virðast þjóðirnar sjálfar og stjórnvöld Norður- landaríkjanna ganga í takt í þessum efnum. Í áranna rás, og ekki síst á hinum svokölluðu uppgangsárum, hafa sumir efast um gildi nor- ræns samstarfs og jafnvel lagt til að dregið yrði úr því eða því jafnvel hætt. Hér á landi hafa margir fremur viljað líta fjær og til vesturs um samstarf á marg- víslegum grunni. Bent hefur verið á að við séum í samstarfi við Norðurlandaþjóðir og fjölmargar aðrar vestrænar þjóðir á vettvangi NATO og svo verði einnig og ekki síður fari svo að Ísland gangi í Evrópusambandið. Því sé ekki þörf á þeim formlega vettvangi sem Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin sé. Hvað sem því líður er ljóst að engar þjóðir standa okkur Íslend- ingum nær en hinar Norðurlandaþjóðirnar. Allar þjóðirnar, utan Finna, tala tungumál sem eru náskyld íslenskunni. Þetta þýðir að með góðum vilja skilja þjóðirnar hver aðra, jafnvel þótt ekki liggi að baki mikið formlegt nám í grannmálunum. Málskilningurinn er mikilvægur liður í norrænu samstarfi sem ber að verja af krafti nú þegar ensk tunga sækir svo mjög á á flestum sviðum á öllum Norðurlöndunum. Norðurlandaráð styður dyggilega við margvísleg norræn samstarfsverkefni sem tengjast námi og kennslu í grann- málunum á Norðurlöndum. Einnig hafa verkefni eins og Nordjobb ýtt undir dvöl norrænna ungmenna á hinum Norðurlöndunum og þar með aukna þekkingu á grannmálum. Menning þjóðanna er sömuleiðis meira og minna reist á sama arfi og sömu gildum. Því ríkir gagnkvæmur skilningur í samskiptum Norðurlandabúa, sem gera þau aðgengileg og áreynslulaus. Það hefði því verið mikill missir, ekki síst fyrir litla þjóð eins og okkur Íslendinga, ef flosnað hefði upp úr formlegu norrænu sam- starfi. Hvort heldur sem Ísland verður innan eða utan Evrópusam- bandsins er formlegt og öflugt samstarf við Norðurlandaþjóðirnar mikilvæg kjölfesta lítillar þjóðar í stórum heimi. Norrænu þjóðirnar eru litlar samanborið við velflestar Evrópu- þjóðir og Ísland telst á þeim vettvangi beinlínis örríki. Með öflugu samstarfi geta þessar þjóðir hins vegar fengið aukið vægi. Þegar er farið að ræða um að sameinast um sendiskrifstofur landanna í einhverjum löndum og athyglisverð er sú hugmynd að Norður- landaþjóðir eigi sameiginlega fulltrúa í G-20 hópnum og eigi þannig sinn fulltrúa við borð öflugustu ríkja heims. Enn róttækari er hug- mynd Gunnars Wetterberg um að Norðurlandaþjóðirnar myndi sambandsríki. Hvað sem því líður lítur út fyrir að kreppan hafi fremur styrkt hin norrænu bönd en hitt. Vonandi auðnast Norðurlandaþjóðunum að þétta enn frekar samband sitt og samstarf í framtíðinni. Böndin styrkjast í norrænu samstarfi. Kreppan þéttir raðirnar SKOÐUN Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fjölbreytt og gott veganesti fyrir lífið Kjarngóð næring Ósaltað Ósykrað Engin aukaefni www.barnamatur.is Lífrænn barnamatu r
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.