Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 40

Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 40
40 6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR DEKK fyrir fólksbíla og jeppa BFGoodrich Bílabúð Benna - Tangarhöfða 8 - Reykjavík Sími 590 2000 - www.benni.is www.bfgoodrich.com A ndstaða við aðkomu erlendra fyrirtækja að íslenskum orku- iðnaði er misráðin að mati Michaels Porter, prófessors við Harvard háskóla í Bandaríkj- unum. Porter er meðal virtustu fræðimanna heims á sviði rann- sókna á samkeppnishæfni þjóða og höfundur kenninga um klasamynd- un í þekkingargeirum og iðnaði og áhrif hennar á velsæld þjóða. Porter sótti landið síðast heim árið 2006 þegar hann kynnti rannsókn á samkeppnishæfni landsins, hélt fyrirlestur og tók við heiðursdokt- orsnafnbót við viðskipta- og hag- fræðideild Háskólans. Síðan þá hefur áhugi hans á Íslandi enn vaxið og sér í lagi klasamynd- un í íslenskum jarðvarmaiðnaði. Í byrjun vikunnar kynnti Port- er rannsókn sína á stöðu íslenska jarðvarmaklasans. Michael Porter segir rétt athug- að í nýlegu áliti sendinefnd- ar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að vexti séu vissar skorður settar hér á landi, með því að ekki sé hægt að auka veiðar og að tíma taki að koma í gang orkuverkefn- um. Reynslan úr orkugeira sýni hins vegar að hægt sé að auka mun hraðar við slíka starfsemi á alþjóðavettvangi. „Þar undir er hvers kyns þjónusta tengd tækni, verkfræði og leit að virkjunarkost- um,“ segir hann og bendir á að raunar hafi ekki verið mikið um að Íslendingar tengdust jarðhitaverk- efnum utan landsteinanna fyrr en nær dró falli fjármálakerfisins og verkefnum fækkaði innanlands. „Íslensk fyrirtæki með þekkingu sína og tækni fundu þá töluverða vaxtarmarkaði erlendis.“ Hafsjór fyrirspurna um samstarf Með útrás segir Porter Ísland geta aukið hlut sinn í jarðvarmaiðn- aði heimsins langt umfram eigin stærð. „Jafnvel þótt Ísland eigi miklar auðlindir tengdar jarð- varma, þá eru þær smáar í sam- anburði við heiminn allan. Mun öflugri svæði eru í Norður- og Mið- Ameríku, Asíu og Afríku. Mögu- leikar Íslands liggja í samstarfi við önnur lönd og þar held ég að megi byggja upp mikla starfsemi,“ segir hann og kveður Ísland hafa færi á að marka sér sess í þessum iðnaði sem áhrifavaldur í að búa til betri heim. „Helsta niðurstaða viðræðna síðustu daga held ég að sé að það standi enginn í veginum nema við sjálf og að við þurfum að taka til hendinni,“ segir hann. Unnið er að því markvisst í nokkrum öðrum löndum að efla jarðvarmageirann. Porter bendir til dæmis á starfsemi sem hafin sé í Nevada í Bandaríkjunum og svo virkjanir á Nýja-Sjálandi. „En við erum jafnlangt komin og hvaða land annað, og jafnvel lengra,“ segir hann og vísar einn- ig til þess að Ísland hafi mjög gott orðspor í heiminum þegar kemur að nýtingu jarðvarma. Núna segir Porter Ísland fá yfir sig hafsjó fyrirspurna um samstarf á sviði jarðvarmavirkjana frá löndum á borð við Kína, Indland, Rúss- land og fleirum. „Við verðum því að skipuleggja okkur til þess að standa undir fyrirheitum okkar. Tækifærin eru núna og þau verð- ur að grípa.“ Samhæfing aðgerða telur hann líklegt að verði leidd af sameiginlegu átaki iðnaðarráðu- neytisins og einkageirans. „Verk- efnið sem heild nýtur mikillar velvildar nú um stundir og and- rúmsloftið er rétt til að taka næstu skref.“ Verkefnin sem við stöndum nú frammi fyrir snúa, að mati Port- ers, einna helst að regluverki og umgjörð orkugeirans. „Fyrst á blaði er að huga betur að reglum um nýtingu jarðvarmans. Núna eru verkferlar of hægir, gagn- sæi skortir og það á eftir að skil- greina betur hvaða verkefni á að ráðast í og hver ekki. Allt virðist verða að risastórum, flóknum og löngum umræðum. Þetta leiðir til ástands þar sem hlutirnir gerast bæði of hægt og auðlindirnar eru ekki nýttar á sem hagkvæmastan hátt,“ segir Porter. Viljum blöndu ólíkra fyrirtækja Að mati Porters er hins vegar engum vandkvæðum bundið að lönd haldi umtalsverðum eignar- hlut hið minnsta yfir auðlindum sínum. „Ég held ekki að það sé slæm stefna. Alþjóðleg fyrirtæki ættu hins vegar að fá að aðstoða við nýtingu auðlindanna. Núna vantar okkur fé og óráð að fest- ast í að þurfa að eiga hlutina að fullu,“ segir hann. „Fjárfesting- in er lykilatriði í þessum efnum, þótt mannauðurinn skipti auðvit- að líka máli.“ Porter segir engan munu kjósa fimm ára kyrrstöðu meðan þess er beðið að hér verði byggt upp stöndugt fjármálakerfi á ný. Hann telur gjaldeyrishöftin sem komið var á eftir hrun bank- anna of ströng. „Við teljum tíma- bært að losa um höftin í varfærn- um skrefum, því að við viljum fá rétta tegund af fjárfestingum til Íslands. Við viljum fjárfestingar sem styðja landið, bæta kjör og búa til betri störf.“ Til bóta yrði ef hægt væri að auka á gagnsæi í orkugeiranum að mati Porters, sem áréttar að hann telji Landsvirkjun vera hið ágætasta fyrirtæki þótt það hafi yfirburðastöðu gagnvart öðrum orkufyrirtækjum, stærðar sinn- ar vegna. „En verandi með svona stórt fyrirtæki þarf að auka á gagnsæi þess og leggja áherslu á góða stjórnunarhætti. Við vilj- um að fyrirtækið hagi sér eins og einkafyrirtæki þrátt fyrir ríkis- eigu. Við viljum að það skili hagn- aði og að þar séu teknar skynsam- legar ákvarðanir,“ segir hann og bendir á að fordæmi séu fyrir því að orkufyrirtæki í ríkiseigu séu rekin þannig að til fyrirmyndar sé, svo sem í Singapúr. „En um leið held ég að það sé mikilvægt að í landinu séu líka fleiri orkufyrir- tæki, sem bæði megi og fái hvatn- ingu til að vaxa. Einkafyrirtæki held ég líka að væru góð viðbót í þessa flóru því með þeim fengist meiri samkeppni.“ Aðhald það sem fæst með sam- keppni í orkusölu segir Porter ýta undir að orkufyrirtækin kalli eftir betri þjónustu á heildsölu- sviði orkunnar og búi til umhverfi sem á endanum hjálpi til við útrás íslenska orkugeirans. „Við viljum hafa öflugan samkeppnismarkað í orkugeira á Íslandi með blöndu opinberra fyrirtækja og fyrir- tækja í einkaeigu. Þess vegna er líka mikilvægt að regluverk orku- geirans sé gott til þess að tryggja jafnræði allra á markaðnum.“ Gagnaver fremur en álver Álfyrirtæki verða seint talin sér- stakur þyrnir í augum Michaels Porter sem unnið hefur ítarlegar rannsóknir á áliðnaði og verið fyr- irtækjum í geiranum til ráðgjafar. „Ég held að þau hafi sínu hlutverki að gegna. Sér í lagi ef okkur tæk- ist að gera landið að stað sem ekki bara framleiðir álið heldur vinn- ur áfram með það. Ísland er hins vegar ekki kjörlendi ódýrrar fram- leiðslu á málmvarningi. Landið er tiltölulega dýrt og með hæft vinnu- afl. Ég held að staða álsins hér verði frekar þannig að málmur- inn verði framleiddur hér og síðan seldur úr landi,” segir hann og kveðst því telja miklivægt að orku- Einkafyrirtæki yrðu góð viðbót Michael Porter, prófessor við Harvard háskóla í Bandaríkj- unum, höfundur klasakenningar og sérfræðingur í sam- keppnishæfni þjóða, segir Ísland spennandi land þar sem draga megi lærdóm af ein- stæðum tækifærum og möguleikum til umbóta. Óli Kristj- án Ármannsson tók Porter tali og spurði út í jarðvarmaklasa, sam- keppni á orkumarkaði, peningamál og áhuga Porters á Íslandi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V A LL I PORTER Á HOLTINU Prófessor Michael Porter gaf sér tíma til að hitta blaðamann á Hótel Holti skömmu áður en hann hélt af landi brott á þriðjudag. Daginn áður hélt hann erindi í Háskólabíói.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.