Fréttablaðið - 06.11.2010, Side 42
2 FERÐALÖG
Þ
orgrímur og Þuríður eru
betur þekkt sem Doddi
og Þurý í austurríska
smábænum St. Michael
og af gestum á hótelinu Speier-
eck sem þau festu kaup á sumar-
ið 2005.
„Ég hafði þá kennt á skíði í
fjöldamörg ár hér í Austurríki,
þar af fimm ár hér í Lungau.
Ég kom víða við á hótelunum og
meðal annars Speiereck. Þáver-
andi eigandi innti mig eftir því
hvort ég vildi ekki kaupa. Ég var
nú ekkert í þeim hugleiðingum en
síðan byrjaði boltinn að rúlla,“
segir Doddi um upphafið að hótel-
rekstri þeirra hjóna. Og var Þurý
alveg til í að flytja til Austur ríkis
og hella sér í skíðahótelrekstur?
„Já, hún var alveg til, ég var nú
bara hissa á því,“ svarar hann
hlæjandi.
St. Michael er lítill bær með
aðeins 3.000 íbúum, um hundrað
kílómetra suður af Salzburg í hér-
aðinu Lungau. „Við erum því ekki
nema 120 km frá ítölsku landa-
mærunum,” segir Doddi.
Inntur eftir því hvernig
rekstur inn gangi er Doddi nokk-
uð jákvæður. „Reyndar var þetta
svolítið erfitt í fyrra og hittí fyrra
þegar íslenski markaðurinn datt
út vegna kreppunnar,“ segir hann
en bætir við að Íslendingar séu
nú aftur farnir að huga að skíða-
ferðum. „Allavega eru farnar
að streyma inn pantanir fyrir
veturinn.“
Skíðamennskan er auðvitað
aðalsmerkið í rekstrinum en Doddi
kennir á skíði frá níu til fjögur og
stendur svo vaktina á kvöldin líka,
líkt og Þurý. „Þetta er sólarhrings-
vinna allan veturinn,“ segir hann
glaðlega. Gestir geta þó gert margt
annað en að skella sér á skíði. „Við
erum með veitingastað, líkamsrækt
og gufu, hægt er að fara í hesta-
sleðaferð um fjöllin og sinna úti-
vist,“ útlistar Doddi. Þó að mest sé
um að vera á veturna er ekki síður
fallegt í Lungau á sumrin. „Þetta er
paradís fyrir útivistarmanninn og
svo er hér 18 holu golfvöllur.“
Þau hjónin sakna ekki Íslands og
þess stress sem einkennir samfé-
lagið. „Hér er dásamlegt andrúms-
loft og reyndar næstum eins og að
fara hundrað ár aftur í tímann,“
segir Doddi ánægður með lífið.
Nánari upplýsingar um hótelið
er að finna á www.skihotel-speier-
eck.at - sg
ÍSLENDINGAR SNÚA
AFTUR EFTIR KREPPU
Hjónin Þorgrímur Kristjánsson og Þuríður Þórðardóttir hafa rekið skíðahótel
í Austurríki í fi mm ár. Þeim líkar hið stresslausa líf en þó er alltaf nóg að gera,
sérstaklega nú þegar vetrarvertíðin hefst og sólarhringsvinnudagur tekur við.
Frábært skíðasvæði Á svæðinu eru 68 lyftur
og hátt í 300 km af skíðabrekkum.
Við Hótel Speiereck Doddi og Þurý með starfsmanni fyrir utan hótelið. „Fyrir hrun var húsið
troðfullt af Íslendingum frá jólum og fram í mars,“ segir Doddi en nú í haust hafa glæðst
mjög pantanir frá Íslendingum.
FARFUGLAHEIMILIN HLJÓTA GÆÐAVOTTUN
Farfuglaheimilin í Reykjavík, í Laugardal og á Vesturgötu, fengu
nýlega Hi Quality-gæðavottun sem er vottun alþjóðlegu Farfugla-
samtakanna Hosteling International. Vottunin er veitt fyrir gæði í
aðbúnaði, þjónustu og innra eftirliti.
Samtökin leggja mikið upp úr vottuninni og stefna að því að 600
farfuglaheimili hafi verið vottuð fyrir árið 2012. Farfuglaheimilið í
Laugardal var valið til að taka þátt í mótun vottunarkerfisins árið
2005 og síðan hefur starfsfólk þess unnið að innleiðingu kerfis-
ins og uppbyggingu. Því er um að ræða endurnýjaða vottun fyrir
Farfuglaheimilið í Laugardal en nýja vottun fyrir Farfuglaheimilið á
Vesturgötu.
Sigrún Ólafsdóttir, rekstrarstjóri Farfuglaheimilanna í Reykjavík,
segir á vef Ferðamálastofu að grundvallaratriði gæðastefnunnar
sé að starfsfólk sé sífellt að leita leiða, hugmynda og aðferða til að
bæta þjónustu og starfsemi farfuglaheimilanna. Þess má geta að
fyrir hálfu ári tóku farfuglaheimilin á móti umhverfis- og gæðavottun
Svansins, merki Norrænu ráðherranefndarinnar, og eru þau ennþá
einu umhverfisvottuðu gististaðirnir í Reykjavík.
KERLINGARFJALLAHELGI
Doddi kenndi lengi á skíði í
Kerlingarfjöllum á gullaldarárum
þeirra á níunda áratugnum. Hann
ætlar að endurvekja gamlar
minningar og vera með Kerlingar-
fjallaviku 5.-12. febrúar á Hótel
Speiereck. Hann var í hljómsveit-
inni Skíðabrot og mun rifja upp
gamla takta þessa vikuna. Þá
koma gamlir starfsmenn úr Kerl-
ingarfjöllum og aðrir gestir sem
áttu góðar stundir í fjöllunum.
Uppáhaldsborgin mín er Kaupmannahöfn. Það er víst einkar ófrumlegt
val fyrir Íslending en síðan ég bjó þar í tæp þrjú ár hef ég haldið upp
á borgina við sundin. Ég þekki hana vel og þykir alltaf gaman að koma
þar við, heimsækja vini og hafa uppi á nýju kaffihúsi eða skoða eitthvað
skemmtilegt.
Ég var þar á dögunum í nokkra daga.
Að þessu sinni gafst ekki mikill tími til að uppgötva nýja hluti. Fyrsta
morguninn mælti ég mér mót við vinkonu á þeim gamla og góða stað
Cafe Europa við Amagertorg á Strikinu. Tveimur kaffibollum síðar og
reyndar tveimur vatnsglösum einnig (venjulegt blávatn) þá kom reikn-
ingurinn; 120 danskar krónur. Eða um 2.500 íslenskar krónur. Alveg
brjálæðislegt verð auðvitað fyrir kaffi.
Kaupmannahöfn er reyndar með dýrustu borgum til að heimsækja um
þessar mundir og ég minnist þess að jafnvel á námsárunum – þegar ein
dönsk króna var ekki nema tíu íslenskar – að ég fór sjaldan á Kaffi Evr-
ópu en 2.500 krónur fyrir tvo kaffibolla er súrrealískt verð.
Það er snúnara að vera ferðalangur í útlöndum núna en þegar krónan
stóð betur gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Stuttar ferðir geta hæglega
kostað skildinginn þegar farið er á kaffihús og út að borða. En svo er auð-
vitað hægt að hafa annan hátt á ferðalag-
inu og þá er sannarlega hægt að sleppa
ódýrar frá Kaupmannahöfn.
Það er til dæmis ódýrara að kaupa í
matinn í Kaupmannahöfn en hér – merki-
legt nokk. Og úrvalið töluvert betra sann-
ast sagna.
Enn er líka hægt að gera afar hagstæð
fatakaup í þeirri dásamlegu búð Hennes
og Mauritz, HM. Búðin hefur þann kost
að hún er ekki á Íslandi þannig að enn
er hægt að gera kaup í henni án þess að
eiga á hættu að önnur hver kona sé í eins
flík. Ekki það að í bestu HM-búð í heimi
sem er á Strikinu rétt hjá Amagertorgi
eru iðulega Íslendingar að gera stórinnkaup, en líkurnar eru samt minni
á að margir skarti djásninu hér heima.
Það má ekki gleyma að minnast á það að á flugvellinum á Kastrup er
mjög þægilegt að fá endurgreiddan söluskattinn sem þýðir góðan afslátt
á innkaup – sé maður í því stuðinu.
Í Kaupmannahöfn eru líka fjölmörg skemmtileg söfn sem ekki kost-
ar mikið að skoða, og svo má ekki gleyma að það er forvitnilegt að líta á
nýju hverfin sem byggst hafa upp undanfarin ár, neðanjarðarlestin flytur
mann þangað á nokkrum mínútum. Það kostar ekkert að skoða hús!
Þrátt fyrir þessi huggunarorð gat ég samt ekki annað en hugsað til
gömlu góðu daganna (fyrir ríflega tíu árum) þegar ég leigði íbúð í Kaup-
mannahöfn á 17.000 á mánuði ásamt vinkonu minni, 8.500 á manninn sem
sagt, fékk gefins hjól og bjórinn kostaði 200 krónur.
Það voru dýrðardagar.
Sigríður Björg Tómasdóttir
1.200 KRÓNA KAFFIBOLLI
flugfelag.is
Netið
Þú færð alltaf
hagstæðasta verðið
á www.flugfelag.is
ferðalög kemur út mánaðarlega
með helgarblaði Fréttablaðsins.
Ritstjóri Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is Roald Viðar Eyvindsson roald@fretta-
bladid.is Vera Einarsdóttir vera@frettabladid.is
Útlit Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir
Forsíðumynd Nordicphotos/getty
Pennar Júlía Margrét Alexanders dóttir, Sólveig Gísladóttir, Roald Viðar Eyvinds-
son, Gunnþóra Gunnarsdóttir, Ragnheiður Tryggvadóttir, Friðrika Benónýsdóttir
og Vera Einarsdóttir
Ljósmyndir Fréttablaðið
Auglýsingar Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
J ólalegir áfangastaðir, sem til-tölulega auðvelt er fyrir Íslend-inga að ferðast á eru mýmarg-ir, í Ameríku og Evrópu úir og grúir af snjóslegnum þorpum, bæjum og borgum í desember með fallegum jólamörkuðum og stemningu.
Ítölsk aðventa
Þótt flestallir staðir á Ítalíu séu skemmtilegir á aðventunni er Norð-ur-Ítalía eflaust vinsælli hjá jólaunn-endum á þessum tíma þar sem smá snjó gæti verið þar að finna. Óhætt er þó að mæla með ferðum hvert á land á
Ítalíu sem er í desember, Mílanó, Flór-ens, Feneyjar og Róm eru iðandi af lífi á aðventunni.
Suður-Týrol hljómar eins og nafn á héraði í Austurríki en ólíkt því sem
NÓVEMBER 2010
FRAMHALD Á SÍÐU 6
FERÐAST Á KOMANDI AÐVENTU
Fram undan er einn notalegasti tími ársins, aðventan. Ferðalög í desember-mánuði eru spennandi, mikil upplifun fyrir yngri kynslóðina og fjölskyldufólk og ekki síður rómantísk fyrir pör.
Fastmótað tilhugalíf Shuhui Wang segir frá tilhugalífinu í Kína. SÍÐA 4
k ffi
Afslöppuð í Austurríki Íslensk hjón sem reka skíða-hótel í Austurríki segja Íslend-inga panta skíðaferðir á ný.SÍÐA2
250 ára gamall markaður Christkindl-jólamarkaðurinn í Nürnberg.