Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 44

Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 44
4 FERÐALÖG N íu milljónir para giftast árlega í Kína. Kínversk- ar konur geta gengið í hjónaband þegar þær eru tvítugar og karlar tveimur árum seinna. Hjónabands aldurinn er þó oftast á aldursbilinu 24 til 26 ára. Þeir sem ekki hafa geng- ið í hjónaband á þeim aldri eru taldir eiga á hættu að heltast úr lestinni og foreldrar setja því aukna pressu á börn sín að finna sér maka, þar sem hjóna- band er talið undirstaða ham- ingju og farsæld- ar í lífinu. Foreldrar með í ráðum Shuhui Wang hefur verið búsett hér síðustu þrjú ár þar sem hún hefur lagt stund á íslensku við Háskóla Íslands. Hún er fædd og uppalin í Peking og þekkir þessa pressu af reynslu kínverskra vina sinna sem eru sumir komnir yfir hjóna- bandsaldurinn. „Foreldrar vilja að krakkarnir giftist eftir háskóla- útskrift, en meðan á námi í mennta- skóla stendur reyna þeir að hindra að þeir deiti þar sem ástamálin eru talin trufla námið. Krakkar, sem hafa ekki átt neitt ástalíf, eiga því allt í einu að hella sér út á markað- inn og finna sér lífsförunaut.“ Shuhui segir þennan hugsunar- hátt endurspegla kynslóðabilið í Kína. „Samfélagið hefur breyst síðustu áratugi þar sem mikil nútímavæðing hefur átt sér stað. Staða kvenna hefur batnað sem sést af því að þær sækja sér í auknum mæli framhaldsmenntun og fara út á atvinnumarkaðinn. Samt verða þær að giftast fyrir ákveðinn aldur, eins og karlarnir. Sumar hefðir eru því að veikjast, en aðrar lifa góðu lífi. Unga fólk- ið aðhyllist kannski ekki þennan hugsunarhátt en vill þóknast for- eldrum sínum.“ Foreldrar eru þó ekki einir um að blanda sér í ástamál unga fólks- ins, hjúskaparmiðlarar koma líka við sögu að hennar sögn. „Þeir hjálpa foreldrum að koma ungu fólki, sem þeir telja hæfa hvert öðru, á stefnumót,“ útskýrir hún og bætir við að leitin geti gengið misvel. „Stelpa sem ég veit um hefur til dæmis farið á stefnumót við 30 karlmenn án þess að hafa orðið nokkuð ágengt. Sumir grípa því til örþrifaráða eins og einn sem ég frétti af sem átti þrjú stefnumót á einum og saman deginum!“ Konur standa betur að vígi Í Kína fæðast talsvert fleiri karlar en konur, hlutfallið 120 var á móti 100 árið 2005. Shuhui telur konur í giftingarhugleiðingum því standa betur að vígi en karlar. „Þær geta kannski ekki sjálfkrafa fengið hvern sem er, en óneitanlega geta þær gert meiri kröfur, til dæmis hvað varðar menntun og atvinnu eiginmannsins verðandi.“ Hún kveðst ekki vita dæmi þess að foreldrar hafi lagst gegn ráðahag barna sinna, flestir séu himinlifandi yfir tilhugsuninni einni saman. Viss atriði geti þó sett strik í reikninginn, svo sem ef útlendingur er í spilinu. „Í Kína eiga foreldrar erfitt með að skilja að það geti gengið upp, þar sem þeir telja að ólíkrar afstöðu gæti til hjónabandsins eftir heimsálf- um. Vesturlandabúar séu of frjáls- lyndir fyrir Kínverja. Sömuleiðis má aldursmunur ekki vera of mikill, konan á helst ekki að vera meira en fimm árum eldri en karl- inn, það gæti þótt skrýtið.“ Þegar leitin að lífsförunaut er á enda ganga málin fljótt fyrir sig að sögn Shuhui. „Þegar foreldrar krakkanna hafa hist er blásið til brúðkaups þar sem ekkert er spar- að og hægt að velja um þrjár gerðir brúðkaups, hefðbundið kínverskt, vestrænt eða blöndu af þessu,“ segir hún og getur þess að síðasti kosturinn sé vinsælastur. „Að svo búnu fara brúðhjónin í brúðkaups- ferð, en um þessar mundir er vin- sælt að verja hveitibrauðsdögun- um á Balí eða í Evrópu.“ Er Ísland meðal áfangastaða? „Nei, en hver veit nema það muni breytast.“ - rve DEITMENNINGIN Í KÍNA Í Kína er hjónabandið talið vera undirstaða hamingju og farsældar. Því er mikið kapp lagt á að fi nna lífsförunautinn og algengt er að foreldrar og hjúskaparmiðlarar skipti sér af. Mikil pressa Að háskólanámi loknu er gerð krafa um að fólk finni sér lífsförunaut og komi sér fyrir. NORDICPHOTOS/GETTY Beihai-garður Í Peking er að finna ýmsa staði sem njóta vinsælda meðal fólks í rómantísk- um hugleiðingum. Þeirra á meðal er Beihai-garður sem er fallegur allt árið um kring. Shuhui Wang Leggur stund á íslenskunám við Háskóla Íslands og hefur verið búsett hérlendis síðustu þrjú ár. HVAÐ KOM ÞÉR MEST Á ÓVART VIÐ BORGINA ÞÍNA? Miðbær- inn, með gömlum og fallegum byggingum. Einnig þægilegar almenningssamgöngur. UPPÁHALDSVEITINGASTAÐUR- INN? Salve (Hietalahdenranta 11) er staður sem ég get farið á aftur og aftur. Gamalgróinn veitinga- staður sem hóf göngu sína sem lítil sjoppa með lúgu árið 1897. Sjómenn lögðu aðallega leið sína á staðinn í þá daga en í dag sækir alls konar fólk Salve. Þar er góður matur; hægt að fá fisk, kjöt, kjúkling og grænmetisrétti. FLOTTASTA FATAVERSLUNIN? Stockmann og Sokos standa alltaf fyrir sínu, verslunarmið- stöðvar í miðbænum. UPPSKRIFT AÐ GÓÐU KVÖLDI? Skella sér á tónleika eða ein- hvern annan menningar- viðburð, fá sér góðan mat á eftir og rölta svo um bæinn. Tón- leika má finna um alla borg, í menningarmiðstöðvum og í svokölluðu Finlandia-húsi. AF HVERJU MÁ MAÐUR ALLS EKKI MISSA? Það má alls ekki missa af stemningunni á Kauppatori/Salutorget/Market Square niðri við höfnina í mið- bænum. Þar er hægt að setjast niður og fá sér kaffi og með því, nýbakað meðlæti. Einnig er boðið upp á ferskan hádegismat, t.d. fisk með kartöflum. Þar eru líka seld finnsk ber og grænmeti. Klettakirkjan er líka mjög vinsæl. HEIMAMAÐURINN  Helsinki SIGRÚN BESSADÓTTIR RITARI Í SENDIRÁÐI ÍSLANDS Í HELSINKI Ný sending af erlendum bókum og önnur á leiðnni!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.