Fréttablaðið - 06.11.2010, Síða 76
44 6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Í ÞÁ TÍÐ …
1900ÁR 2010200019501910
MYNDBROT ÚR DEGI | Þriðjudagur 2. nóvember | Myndavél Canon IXUS 860 IS.
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sat á þingi Norðurlandaráðs nú í vikunni og hafði þar í nógu að snúast.
Fréttablaðið skyggnist hér inn í þriðjudaginn síðasta sem leið við fundahöld og fréttaviðtöl en lauk með kvöldverðarboði.
Fundahöld og fréttaviðtöl
1 Um hádegisbil fór ég í sjónvarpsviðtal um umsókn Íslands að ESB. Spurt var um Evrópuumræðuna á
Íslandi og hvernig hagsmunum okkar yrði best borgið í
aðildarviðræðunum. Mats Holmström tók viðtalið.
2 Hér erum við finnski þingmaðurinn Arja Karhuvaara hressar í lok pallborðsumræðunnar með hádegismatinn
nærri. Við erum báðar fulltrúar í velferðarnefnd Norður-
landaráðs og sjúkraþálfarar.
3 Hérna er ég í viðtali við Norðmanninn Steen Ulrik Johannessen sem vildi vita hvernig stjórnmálaástand-
ið væri á Íslandi, hvaða áhrif mótmælin, sem voru nýlega
framan við Alþingi, hefðu haft og hvernig aðildarviðræð-
urnar við ESB færu fram.
4 Eftir hádegi lá leiðin aftur á Norðurlandaráðsþingið á Grand Hóteli. Þar hitti ég í anddyrinu Auði Guðjóns-
dóttur og aðstoðarkonu hennar sem voru að kynna rann-
sóknarsjóð um mænuskaða. Þarna eru þær eldhressar með
Margréti Tryggvadóttur alþingismanni.
5 Hér eru ritarar flokkahóps miðjumanna í Norðurlanda-ráði, Terhi Tikkala og Johanna Sandberg, í skrifstofu-
aðstöðu miðjumanna á Grand Hóteli. Þær vinna verkin hratt
og örugglega fyrir þingmennina og eru alltaf tilbúnar til
að aðstoða.
6 Um kvöldið bauð flokkahópur miðjumanna til kvöldverð-ar. Hér eru Kaj Leo Johannesen, lögmaður Færeyja, Siv
Friðleifsdóttir alþingismaður, Eygló Harðardóttir alþing-
ismaður og G. Valdimar Valdemarsson, formaður alþjóða-
nefndar Framsóknarflokksins.
Fyrir réttri öld gerðist sá merkis atburður að flugvél flaug í fyrsta sinn með vörur. Það voru sjálfir Wright-bræður, Wilbur og Orville,
sem nokkrum árum áður smíðuðu fyrstu flugvélina, sem áttu tækið
sem var notað að þessu sinni.
Það var þann 7. nóvember 1910 sem vél frá fyrirtæki þeirra bræðra
flaug rúmlega 100 kílómetra leið, frá Dayton-borg í Ohio til Columbus
í sama fylki með tvo stranga af silkiefni í kjóla fyrir Morehouse-Mart-
in verslunina.
Ferðin tók rétt rúman klukkutíma og var farmurinn bundinn í far-
þegasæti vélarinnar, við hlið flugstjórans Phil Parmelee. Þessi ferð
var að mestu leyti farin í kynningarskyni, enda var silkið klippt niður
og selt sem minjagripir í ferðalok.
Wright-bræður eru annálaðir sem frumkvöðlar flugsins, en eftir
fyrsta flug Wright Flyer árið 1903 stóðu þeir í kæru- og klögumálum
um áraraðir þar sem bæði voru menn sem töldu sig hafa fundið upp
flugvél á undan þeim, og eins liðu mörg ár þar til sumir evrópskir vís-
indamenn viðurkenndu afrek þeirra.
Wilbur, sá eldri, lést árið 1912, en Orville lifði hins vegar fram til
ársins 1948 og hafði þannig séð uppfinningu þeirra bræðra þróast upp
í hljóðfráar orrustuþotur.
Enn þann dag í dag er nafn þeirra tengt flugi, en bandaríska fyrir-
tækið Curtiss-Wright er komið í beinan legg frá fyrsta fyrirtæki þeirra
bræðra. Þar eru framleiddir íhlutir í flugvélar. - þj
Heimild/Wikipedia.org
Fyrsta vöruflugið
Flugvél Wright-bræðra flaug 100 kílómetra leið með efnisstranga.