19. júní - 19.06.1988, Síða 40
TIMARNIR
BREYTAST
SKÓLARNIR
MEÐ?
Grunnskólinn og yngstu börnin
tli mörgum foreldrum
bregði ekki í brún eins
og mér, er börnin þeirra
sex ára yfirgefa fimm
tíma leikskóla og hefja nám í
tveggja tíma skóla, sem auk þess
hefst ekki fyrr en í september og
lýkur um miðjan maí? Er þetta
náttúrulögmál, eða má hér ein-
hverju breyta? Þetta varð mér til-
efni hugleiðinga og baráttu er
hófst fyrir nokkrum árum.
í lögum um grunnskóla segir svo:
„Hlutverk grunnskólans er, í sam-
vinnu við heimilin, að búa nemendur
undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi,
sem er í sífelldri þróun“.
Ég vil skilja þetta þannig að öll
starfsemi skólans skuli taka mið af
meginstraumum í þjóðfélaginu, en að
ekki sé aðeins átt við breytilegar
áherslur innan þess ramma sem
grunnskólum hefur lengi verið mark-
aður.
Ég tel að stjórnvöld hafi brugðist
þessu markmiði og finnst heildar-
skipulag grunnskólakennslu á Islandi
miðast við lífshætti er löngu heyra
40
sögunni til hérlendis og verða varla
aftur upp teknir.
Ég vil taka það skýrt fram í upphafi
að þar sem ég þekki til er starfið í
grunnskólunum til fyrirmyndar, nám-
ið er fjölbreytt, kennarar hæfir,
starfsandi góður og börnin frjálsleg
og ánægð.
Athugasemdir mínar beinast að
skólavist 6-10 ára barna og eru eink-
um tvær: í fyrsta lagi tel ég að skóla-
veran sé of stutt barnanna vegna, að
nota þurfi tímann betur og sinna bet-
ur fræðsluhlutverki skólans. I öðru
lagi tel ég skólann ekki koma til móts
við þarfir foreldra, er þurfa örugga
vistun barna á vinnutíma.
Grein: Alda Möller
Samkvæmt stundaskrá er mennta-
málaráðuneytið gefur út eru 7-8 ára
börn í skólanum 22-24 kennslustund-
ir í viku en 9 ára börn í 27 stundir. Sex
ára börn eru utan skólaskyldu, en
njóta um 16 kennslustunda í viku.
Dagleg skólavist er því að jafnaði um
2 klst. fyrir 6 ára börn, 3 klst. fyrir 7-8
ára börn en um 3 'h klst. fyrir 9 ára
börn. Kennsla fellur auk þess niður
öðru hvoru á starfstímanum, ýmist
vegna sérstakra skólafrídaga eða ráð-
stöfunardaga kennara. Börn í sömu
fjölskyldu sækja sum skóla árdegis en
önnur síðdegis og hafa foreldrar orð-
ið að lúta því.
Margir hafa orðið til að benda á, að
stutt skólavera sé andstæð sívaxandi
kröfum sem gerðar eru til skólastarfs
og menntunar barna og verður því
varla á móti mælt. í fróðlegu riti
Skýrsla forskólanefndar 1981 var til
dæmis lögð áhersla á að auka þurfi
skólavist sex ára barna og raunar má
segja að rauði þráðurinn í skýrslunni
sé þörf og geta ungra barna til aukinn-
ar skólaveru.
Könnun vinnuhóps, er Ragnhildur