Fréttablaðið - 04.12.2010, Page 24

Fréttablaðið - 04.12.2010, Page 24
24 4. desember 2010 LAUGARDAGUR Til eru bækur sem mann langar til að lesa og bækur sem karl- menn þurfa að lesa. En spurningin er hvað við, karlarnir, viljum. Upp- lifun mín af sjálfum mér sem karl- manni og samkynja félög- um mínum er á stundum slík að ég held að við gætum sómt okkur vel í hópi þeirra sem rembdust eins og rjúpan við staur- inn hér um árið og vildu ekki taka neinum rökum um annað en að jörðin væri flöt. Öðru hvoru læð- ist sú hugsun í koll mér að margur karlinn vilji áfram vera í þeim hópi og gott ef ég verð ekki var við einstaka konur sem reyna að bætast í hópinn. En ég vil reyna að brjótast upp úr því djúpa hjólfari sem karlremba árþúsundanna situr enn föst í. Þó þykir mér sem það gangi hægt – það að koma sjálfum mér upp úr þessu hjólfari. Sum skref eru hins vegar betur til þess fallin að átta mig á því öng- stræti sem þetta hjólfar leiðir í og hjálpa mér að uppgötva hvar og hvenær ég styð hið karllæga sam- félag og hvernig ég get stuðlað að samfélagi sem byggir á jafnrétti kynjanna. Eitt slíkt skref reyndist lestur bókar sem kom nýverið út hjá Háskólaútgáfunni og ber titil- inn Ofbeldi, margbreytileg birting- armynd. Bókin inniheldur helstu niðurstöður úr fjórum íslensk- um rannsóknum sem gerðar voru nýverið og taka allar á ofbeldi gegn konum. Hér er á ferðinni bók sem nýst getur körlum og konum sem vilja bæta fagleg og persónu- leg viðhorf sín í garð þess samfé- lags friðar sem við viljum byggja upp. Um leið verður lesandanum ljóst hversu alvarlegt vandamál ofbeldi á heimilum, í nánum sam- böndum og í garð kvenna er. Mér þykir nefnilega sem við karlarnir séum ekki að átta okkur á alvarleikanum. Stöku sinnum þegar ég var yngri var ég stadd- ur á sveitaböllum þar sem svo vildi til að tveir karlar tókust á í forinni fyrir utan félagsheimilið. Misvel gekk að ganga á milli kappanna og oft endaði slagurinn þannig að einn eða fleiri fengu hressi- lega á kjaftinn áður en tókst að stöðva slagsmálin. Köppunum var komið heim, þeir sett- ir aftur í Svörtu Maríu eða á annan hátt fund- inn staður til að jafna sig. Og gjarnan heyrð- ust setningar eins og: „Þeir verða búnir að jafna sig eftir góðan svefn.“ Ég trúði þess- ari setningu þá. Og vandinn er að ég trúi þessari setningu allt of oft ennþá. Það sem verra er, mig grunar að ég og margir aðrir karlar höldum að hægt sé að yfirfæra hana á hvers konar ofbeldi, líka á það ofbeldi sem á sér stað innan veggja heimilisins. Þau sem hafa tekið sér tíma til að hlusta á konur sem hafa orðið fyrir ofbeldi í nánum samböndum eða innan veggja heimilisins, sem og þau sem hafa gefið sér tíma til að kynna sér niðurstöður rannsókna eins og þeirra sem fjallað er um í umræddri bók, vita hins vegar að þetta er ekki rétt. Áhrif ofbeldis á andlega líðan og heilsufar kvenna hverfa ekki og þaðan af síður á einni nóttu. Afleiðingarnar geta jafnvel varað alla ævi þó svo að konan sem fyrir ofbeldinu varð nái að slíta sig snemma úr hinu ofbeldiskennda sambandi. Takk Brynja, Erla Kolbrún, Kolbrún og Sía fyrir framtakið að koma rann- sóknum ykkar á framfæri í þessari bók. Og takk þið öll sem ætlið að verða ykkur úti um bókina og lesa hana spjaldanna á milli. Breytum hugarfarinu, breytum samfélag- inu, stöndum saman. Jörðin er flöt Bækur Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni í Glerárkirkju Ég vil reyna að brjótast upp úr því djúpa hjólfari sem karl- remba ár- þúsundanna situr enn föst í. Þó þykir mér sem það gangi hægt Tveggja landa sýn – Ísland og Malaví Merkilegar upplýsingar koma fram í nýrri þró- unarskýrslu Sameinuðu þjóð- anna um „Lífskjaravísitölu mannkyns“ (e. Human devel- opment index). Ekki er hægt að sýna fram á beint samhengi milli hagvaxtar og velsæld- ar almennings. Þau lönd sem þokast hraðast upp listann eru ekki endilega mikil hagvaxtar- lönd. En þau eiga það sameig- inlegt að leggja mikla áherslu á menntun og heilsu. Og jafn- vel þótt hagvöxtur aukist víða um lönd má sjá í skýrslu SÞ að ójöfnuður í heiminum gerir það líka; ekki njóta allir þótt takist að hífa upp þjóðaframleiðslu. Og að fleiru er að hyggja: Vitað er að það land sem hefur mest- an hagvöxt, Kína, borgar fyrir þann vöxt með gríðarlegum umhverfisspjöllum, þótt þau séu ekki mæld í þessari vel- ferðarvísitölu. Lífskjaravísitala SÞ er nú 20 ára. Hún var á sínum tíma kynnt til sögunnar því menn þóttust vita að efnahagsleg- ur vöxtur sannaði ekki allt um velferð fólks. „Þjóðartekjur á mann“ segja ekki hvernig þær nýtast. Því vildu menn búa til vísitölu sem byggði á velferðar- þáttum auk efnahagsþátta, svo sem menntun og lífslíkum. Nú er búið að bæta við jöfnuði og jafnrétti kynjanna til að finna enn áreiðanlegri mælikvarða á þróun samfélaga. Íslenska samhengið Ísland „hrynur“ úr fyrsta sæti (2007) í sautjánda sæti í ár. Árið 2005 vorum við í tíunda sæti. Við erum nú í nágrenni við Finna og Belga, fyrir ofan Dani, en Norðmenn tróna efstir eins og oft áður. Sjálfsagt vegur þarna mest kaupmáttarhrunið eftir 2008, því lífslíkur og menntunarstig hafa sáralítið breyst, og hvað sem fólk segir er Ísland mjög ofarlega á lista í jafnréttis- málum. Mörgum gæti óað við þessu mikla falli. En það má líka skoða jákvæðu hlið máls- ins: Þrátt fyrir eitt mesta efna- hagsáfall sem þróað ríki hefur orðið fyrir (sem hlutfall af þjóðarframleiðslu), þá er við- spyrnan mikil. Hún felst í háu menntunarstigi (sem þó gæti verið betra) og heilsugæslu. Við höfum því borið gæfu til að fjárfesta rétt og eigum þarna „varasjóð“ þegar peningahyggj- an springur á limminu. Ísland er þrátt fyrir allt á topp 20 list- anum, af þeim 160 ríkjum sem þarna eru. Og góðir möguleikar að rétta sig af. Á hinum endanum? Núverandi heimaland mitt, Malaví, er á listanum yfir þau 20 ríki sem erfiðast eiga. Fólks- fjölgun er gríðarleg og sóknar- þungi landsmanna í þverrandi auðlindir reiknast sem afrán upp á 5,8% af landsframleiðslu árlega. Landið fékk almennt grunnskólakerfi fyrir aðeins 16 árum, og er því áratugum á eftir öðrum Afríkuríkjum. Nú vantar 30.000 skólastofur og jafn marga kennara til að full- nægja þörf. Þótt Malaví hafi færst upp um sjö sæti á velferð- arvísitölunni milli ára eru 72% landsmanna talin lifa á minna en 150 krónum á dag. Árang- ur landsins felst í því að nú eru „aðeins“ 39% landsmanna á því stigi sem skilgreinist sem „sár fátækt“, en talan var 53% fyrir nokkrum árum. Landið þróast því nokkuð áleiðis. En hér vant- ar viðspyrnu. Menntunarstig er ákaflega lágt (50% barna ljúka ekki grunnskólaprófi, aðeins 16% árganga fara gegn- um framhaldsskóla). Getan til að taka við meiri þróunaraðstoð eða skapa nýja atvinnuvegi er því ákaflega takmörkuð. Samanburður enda á milli Þegar borið er saman ástand- ið á sitt hvorum enda lífskjara- kvarðans má því sjá tvö smá- ríki: Ísland og Malaví, þar sem annað ríkir „hrapar“ um 17 sæti á nokkrum árum en býr samt við mikla velsæld, en hitt ríkið fetar sig upp um hænufet en glímir eigi að síður við nán- ast óviðráðanlegar aðstæður. Munurinn á Malaví og Íslandi er vissulega mikill vegna þess að við eigum miklar náttúru- auðlindir en Malavar fáar. En við búum líka að mennt- un og velferðarkerfi sem gerir okkur mögulegt að bregðast við vanda og vinna okkur út úr honum – ef við sjálf berum gæfu til þess. Malavar þurfa utanaðkomandi aðstoð, og hana mikla: Þróunaraðstoð til Mal- aví nemur nú 32 Bandaríkjadöl- um á hvert mannsbarn árlega (3.700 kr.) og þriðjungur ríkis- útgjalda er styrkjafé. Efnahagskreppan og þróunaraðstoð Þess sjást glögg merki víða um heim að þróunaraðstoð minnk- ar vegna heimskreppunnar. Skilningur ríkir á því að Ísland hafi dregið saman framlög, en þess er vænst að það sé aðeins tímabundið því ekki var úr háum söðli að detta. Þegar við vorum númer eitt á lífskjara- kvarðanum voru hlutfallsleg framlög okkar til þróunarmála langt á eftir þeim sem næstir voru á listanum. Stjórn íhalds- manna og frjálslyndra í Bret- landi er reyndar undantekning frá reglunni í ár, þar er þróun- arfé aukið á hrikalegum niður- skurðartímum. Áskorun í þróunarmálum verður bersýnilega sú að ná meiri árangri fyrir minna fé. Hér þarf skýrari verkaskipt- inu milli ríkja, samræmdar aðgerðir þróunarsamvinnu- stofnana í löndum eins og Mal- aví, og miklu skarpari for- gangsröð ríkisstjórna. Hér í Malaví kom nýlega út stöðu- skýrsla SÞ sem einmitt und- irstrikar þetta. Þróunarsam- vinnustofnun Íslands í Malaví er hluti af þessu samræming- ar- og skipulagsferli sem nú stendur og stefnubreyting ÞSSÍ í landinu undanfarin tvö ár er í samræmi við stöðumat ann- arra þróunarsamvinnustofnana um bættan árangur og meiri skilvirkni. Áherslur okkar í heilsu- og menntamálum eru einnig í samræmi við lykilá- herslur í stöðuskýrslu SÞ. Eigi Malaví að þokast upp listann verði að bæta innviði samfé- lagsins og getu heimamanna sjálfra til að takast á við vand- ann. Númer 17 getur vel hjálp- að númer 153. Þróunarmál Stefán Jón Hafstein umdæmisstjóri Þróunar samvinnu- stofnunar Íslands í Malaví Jafnvel þótt hagvöxtur aukist víða um lönd má sjá í skýrslu SÞ að ójöfnuður í heiminum gerir það líka; ekki njóta allir þótt takist að hífa upp þjóðaframleiðslu BORÐSTOFUHÚSGÖGNUM HELGINA 4. - 5. DESEMBER 25% AF ÖLLUM ILVA Korputorgi Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík, sími 522 4500 www.ILVA.is mánudaga - föstudaga 11-18:30, laugardag 10-20, sunnudag 12-20 Bjóðum uppá vaxtalaust lán til 6 mánaða sendum um allt land
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.