Fréttablaðið - 04.12.2010, Page 90

Fréttablaðið - 04.12.2010, Page 90
62 4. desember 2010 LAUGARDAGUR „Það var dálítið fyndið að þegar við byrjuðum að skrifa handritið áttum við í erfiðleikum með að verða okkur úti um eintak af bókinni, því hún var alls staðar uppseld. Ég þurfti að leita á náðir fornbókasölu til að redda málunum, en nú er bókin aftur fáanleg víðast hvar, sem betur fer,“ segir Gunnar. Handritshöfundarnir Gunnar og Ottó höfðu ekki beint samráð við Ólaf Hauk, höfund bókarinnar, við skriftirnar, en Ólafur las handritið þó yfir að verki loknu. „Hann kom með nokkra punkta, en var mjög sáttur við útkomuna. Ég var afar ánægður með það, því hann er jú maðurinn sem bjó þetta til. Ég held að Ólafur hafi fundið þessa rosalegu virðingu sem við berum fyrir bókinni. Sú virðing skín líka í gegn í myndinni,“ segir Gunnar. Þ að má segja að allt sé á fljúgandi siglingu á öllum vígstöðum,“ segir leik- stjórinn Gunnar Björn Guðmunds son sem stendur í ströngu þessa dagana. Í vikunni lauk tökum á Áramótaskaupi sjónvarpsins, sem Gunnar leikstýrir annað árið í röð og semur einnig handritið að ásamt sama hópi höfunda og í fyrra. Um síð- ustu helgi var einnig lögð lokahönd á klippingu Gauragangs, sem er önnur kvikmynd Gunnars í fullri lengd. Það er því skammt stórra högga á milli hjá leikstjóranum. „Tökum á Skaupinu er reynar ein- ungis lokið í bili,“ tekur Gunnar fram, „því nú þurfum við að vakta fjölmiðla og sjá hvort eitthvað fleira gerist sem við teljum þörf á að gera skil. Við höf- undarnir tökum stöðufund um miðj- an mánuðinn og erum tilbúnir til að rjúka til og taka upp ef þörf gerist á. Ástandið er dálítið skemmtilega skrít- ið núna, stjórnlagaþingið og fleiri mál í gangi, og það er engin leið að vita hvað gerist. Það er úr alveg jafn miklu efni að moða nú í ár og í fyrra, þegar við vorum að koma út úr stóra skellinum, en það liggur kannski ekki alveg jafn ljóst fyrir. Svona í fyrstu umferð að minnsta kosti.“ Missti áhugann á öllu öðru Gunnar Björn fæddist á Selfossi árið 1972 en fluttist ungur að árum í Hafn- arfjörðinn þar sem hann ólst upp. Hann segir eiginlegan kvikmynda- áhuga sinn hafa kviknað fremur seint, þótt hann hafi dundað sér við að búa til útvarpsleikrit og fleira ásamt félög- um sínum í góðu sprelli sem barn. „Auðvitað var maður alltaf að reyna að vera fyndinn, það hefur alla tíð keyrt mig áfram, en svo var ég plat- aður til að leika í stuttmynd í fram- haldsskóla og þá kom áhuginn fyrir alvöru. Þá uppgötvaði ég að ég hafði fundið nokkuð sem ég hefði áhuga á að taka mér fyrir hendur í framtíðinni,“ segir Gunnar, sem gekk svo langt að skrá sig í kvikmyndaklúbb Fjölbrauta- skólans í Garðabæ til að svala kvik- myndatengdum fýsnum sínum. „Kvikmyndaklúbburinn tók til dæmis alltaf upp allar ræðukeppnir, sem ég hafði engan áhuga á en komst þannig reglulega í tæri við myndavél, byrjaði að gera stuttmyndir, auglýsingamyndir fyrir böll og ýmislegt fleira og gleymdi mér alveg í þessu. Missti nánast áhug- ann á öllu öðru en kvikmyndagerð og reyndi bara að gera nógu djöfulli margt. Svo stækkuðu verkefnin smám saman og ég slípaðist allur til,“ rifjar Gunnar upp, en stuttmynd hans, Kara- mellumyndin, hlaut meðal annars Eddu- verðlaunin sem besta stuttmynd ársins 2003. Þá var Gunnar einnig tilnefndur til Edduverðlauna sem besti leikstjóri ársins 2007 en þá var Astrópía, fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd, frum- sýnd. Um 50.000 áhorfendur sáu Astrópíu í kvikmyndahúsum og var hún vin- sælasta íslenska mynd þess árs. „Ég er ennþá að hitta fólk sem hrósar mér fyrir Astrópíu og hef rosalega gaman af því. Það er mjög heillandi að gera hluti sem fólk sér og hefur skoðun á.“ Leikstjórinn hefur einnig leikið töluvert sjálfur, auk þess að starfa jöfnum höndum í leikhúsi, sjónvarpi og kvikmyndum. „Ég byrjaði fyrst og fremst að leika til að geta lært af öðrum leikstjórum, en kann best við mig fyrir aftan myndavélina. Ég leik þó sjálfur af og til, til að mynda lék ég smá í Skaupinu og braut næstum á mér hendina í áhættuatriði,“ segir Gunnar og hlær. Hversdagsleg ævintýri Auk þess að leikstýra kvikmyndinni Gauragangi, sem áætlað er að frum- sýna á öðrum í jólum, skrifar Gunn- ar handritið að myndinni ásamt Ottó Geir Borg. Hófst sú vinna strax árið 2007 þegar verið var að leggja loka- hönd á gerð Astrópíu. Handritið er unnið upp úr sam- nefndri skáldsögu eftir Ólaf Hauk Símonarson sem kom út árið 1988. Ekki jafn erfiður og Ormur Gunnar Björn Guðmundsson frumsýnir Gauragang, aðra kvikmynd sína í fullri lengd, síðar í mánuðinum en myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Ólafs Hauks Símonarsonar. Hann leikstýrir einnig Áramótaskaupi sjónvarpsins annað árið í röð og semur handritið ásamt fleirum. Kjartan Guðmundsson ræddi við Gunnar um verkefnin sem hann er að ljúka og fleiri sem í bígerð eru. EILÍFÐARSPURNINGARNAR „Þetta er grínmynd um unglinga sem ég held að allir sem eru ungir í anda geti haft gaman af,“ segir Gunnar Björn Guðmundsson um Gaura- gang, aðra kvikmynd sína í fullri lengd. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA períódukvikmyndagerð hafa ótal vandamál í för með sér. „Þetta er alveg djöfullegt, það vit- lausasta sem maður gerir held ég,“ við- urkennir hann og skellir upp úr. „Svona lagað lítur gríðarlega vel út á blaði en er hræðilega erfitt í verki. Ég lagði þetta strax upp á þann hátt að tíma- setningin væri frekar stíll en regla, en við reyndum eftir fremsta megni að láta umhverfið líta út fyrir að vera ósvikið og lagfærum ýmis smáatriði með tölvutækni. Til að mynda hafa gulu strætisvagnarnir reynst okkur erfiðir, við þurftum að kippa nokkr- um slíkum út því strætió var auðvitað ekki svona gulur árið 1979. Við gerð myndarinnar höfum við komist að því að strætókerfið í Reykjavík er mjög gott, því þeir leynast ansi víða.“ En þrátt fyrir slíka minni háttar hnökra segir leikstjórinn gerð mynd- arinnar hafa gengið eins og í sögu. Til að mynda reyndist veðurfar í vetur honum sérstaklega hagstætt. „Ég hafði fyrir löngu ákveðið að nokkrar tökur þyrftu að fara fram í snjó. Daginn sem við hófum vetrar- tökur byrjaði að snjóa, allt fór á kaf og beinfrysti, en svo þiðnaði allt síðasta tökudaginn. Ég hef unnið mjög mikið fyrir kirkjuna og gæti trúað að þetta tengist því,“ segir Gunnar og hlær. Mjög ánægður með útkomuna Eins og áður sagði lauk klippingu á Gauragangi um síðustu helgi og þessa dagana vinna aðstandendur myndar- innar meðal annars að hljóðvinnslu, tæknibrellum og tónlist. „Myndin hefur verið í klippingu frá því í sumar. Á tökustað var klippari sem klippti jafnóðum og við tókum upp, og svo fór myndin í lokaklipp- ingu. Ég er rosalega ánægður með útkomuna, hef sýnt nokkrum hana og fengið frábær viðbrögð og hlakka mikið til að sjá viðtökur almennings. Þetta er skemmtileg mynd, það er ástæða þess að ég geri kvikmyndir, og ég vona að sem flestir sjái hana,“ segir Gunnar. Næsta stóra verkefni sem hann tekur sér fyrir hendur verð- ur gamanmynd um tvo gamla menn á elliheimili, sem Gunnar gerir ráð fyrir að tökur hefjist á í vor. Bókin hefur æ síðan notið mikilla vinsælda og er í raun orðin klassísk, hefur meðal annars verið lesin af heilu árgöngunum í skólum og verið þýdd á þrjú tungumál. „Ég held að ég hafi nú ekki verið alveg jafn erfiður unglingur og Ormur Óðinsson,“ segir Gunnar og hlær þegar hann er spurður hvort hann samsami sig að einhverju leyti með aðalpers- ónu sögunnar. „En ég held samt að allir ættu að geta fundið sig að ein- hverju leyti í Ormi. Ég heillaðist mjög af þessari sögu þegar ég las hana fyrst og hafði lengi haft í huga að gera kvik- mynd upp úr henni. Ævintýri Orms eru ævintýri sem mig grunar að allir kannist við, bæði stelpur og strák- ar. Það sem rekur persónuna áfram, til dæmis að drífa sig í skólann út af stelpu sem hann er skotinn í en ekki vegna námsins, að fara á ball sem hann hefur engan áhuga á, eingöngu vegna þess að hún gæti mögulega verið þar, og þar fram eftir götunum. Þetta eru ævintýri, en samt svo ósköp mannleg og hversdagsleg í raun. Þetta eru eilífð- arspurningarnar, ástin og vináttan.“ Virðing fyrir bókinni Söngleikur sem byggður var á Gaura- gangi var fyrst frumsýndur í Þjóð- leikhúsinu árið 1994 og hefur verið settur upp oft og víða síðan, nú síð- ast í Borgarleikhúsinu á síðasta ári. Gunnar Björn tekur þó skýrt fram að hann og Ottó hafi verið fullkomlega trúir bókinni við handritsgerð nýju myndarinnar. „Sumir virðast halda að um sé að ræða bíómynd upp úr söngleiknum, en sú er alls ekki raunin. Söngleik- urinn er alveg frábær, en við völd- um þá leið að fara beint í bókina og gjörsamlega eimuðum hana. Ég bann- aði meira að segja leikurum myndar- innar að sjá leikritið því ég vildi ekki að þeir fengju sínar hugmyndir um karakterana þaðan. Leikhúsið er allt annar miðill og þeir þurftu að finna persónurnar sjálfir. En svo fórum við öll að sjá leikritið að loknum tökum og skemmtum okkur konunglega,“ segir Gunnar. Gott strætókerfi til vandræða Gauragangur er svokölluð períódu- mynd, en Gunnar og Ottó ákváðu að láta atburði sögunnar gerast árið 1979. Í bókinni eftir Ólaf Hauk kemur raun- ar aldrei nákvæmlega fram hvenær sagan á að eiga sér stað. „Okkur þótti ýmislegt í bókinni benda til þess að sagan gerðist ein- hvern tímann á bilinu 1974 til 1985, svona um það bil, en við völdum þetta ártal líka vegna þess að á þessum tíma var þjóðfélagið á dálítið svipuðum slóðum og Ormur, aðalpersóna mynd- arinnar. Hann er að breytast úr ungl- ingi í mann sem þarf að taka ábyrgð á lífi sínu og samfélagið er einnig á ákveðnum krossgötum. Vigdís er að taka við sem forseti, myntbreyting- in fræga, pönkið að fæðast og diskó- ið að drepast og fleira í þeim dúr. Auk þess hefðu nútímalegir hlutir eins og til dæmis GSM-símar komið sér mjög illa fyrir söguna,“ segir Gunnar. Aðspurður segir hann slíka ÁTTI Í ERFIÐLEIKUM MEÐ AÐ FINNA BÓKINA Daginn sem við hófum vetrartökur byrjaði að snjóa, allt fór á kaf og beinfrysti, en svo þiðnaði allt síðasta tökudaginn. Ég hef unnið mjög mikið fyrir kirkjuna og gæti trúað að þetta tengist því.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.