Fréttablaðið - 04.12.2010, Page 100
72 4. desember 2010 LAUGARDAGUR
1. HEIÐMÖRK
Líf og fjör í jólaskógi
Jólaskógur Skógræktar-
félags Reykjavíkur í Hjalla-
dal í Heiðmörk verður opinn
helgarnar 11. til 12. desem-
ber og 18. til 19. desem-
ber frá klukkan 11 til 16.
Alla daga verður líf og fjör,
varðeldur, kakó, piparkökur
og jólalög. Sagir og klippur
verða til útláns fyrir þá sem
vilja ná sér í jólatré.
2. FOSSÁ
Sveitaferð í Hvalfjörð
Þeir sem vilja fara í meiri
sveitaferð gætu kíkt að
Fossá í Hvalfirði. Þar er opið
allar helgar fram að jólum
frá tíu til 16 eða meðan bjart
er. Ekki þarf að panta tíma
eða boða komu sína en gott
að vita af stórum hópum
með fyrirvara. Starfs-
menn aðstoða við að pakka
trjám í net, lána einnig sagir
en eigi fólk góða sög er mælt
með að taka hana með.
3. MOSFELLSBÆR
Opið alla daga frá 11. 12.
Jólasveinar verða í jóla-
trjáasölu Skógræktarfélags
Mosfellsbæjar í Hamrahlíð
við Vesturlandsveg helgarn-
ar 11 og 12. desember og 18.
og 19. desember. Hægt er að
fara í skóginn og saga sjálf-
ur en einnig verða til söguð
tré. Salan er annars opin
alla daga frá 11. desember,
milli kl. 10 og 16 um helgar
en 12-16 virka daga.
4. GARÐABÆR
jólaskógur 18. desember
Skógræktarfélag Garða-
bæjar verður með
opinn jólaskóg laugar-
daginn 18. desember
kl. 12-16 en nánari upp-
lýsingar fást síðar.
5. HAFNARFJÖRÐUR
Jólasveinar kíkja í heimsókn
Jólatrjáasala Skógræktar-
félags Hafnarfjarðar verður
að venju í Selinu við Kald-
árselsveg. Athugið að hér
er ekki hægt að höggva tré
sjálfur en gestum er boðið
upp á heitt kakó og kökur.
6. JÓLAÞORPIÐ
Hafnfirskt jólastuð
Í Hafnarfirði er hið eina
sanna Jólaþorp landsins. Þar
er opið allar helgar fram að
jólum frá eitt til sex. Alla
opnunardaga verður fjöl-
breytt skemmtidagskrá á
sviði Jólaþorpsins í Hafnar-
firði. Þar koma fram lands-
þekktir listamenn, óþekkir
jólasveinar og ýmsir óvænt-
ir gestir. Sungið, trallað
og dansað í kringum
jólatréð.
7. JÓLABÆR
Tréhús og
tjöld í mið-
bænum
Á Hljómalindar-
reitnum milli Laugavegs og
Hverfisgötu verður Jólabær-
inn opnaður fimmtudaginn
9.desember. Í skreytt-
um tréhúsum og
tjöldum verður
varningur
til sölu auk
þess
sem
ýmis
skemmtiatriði
verða flutt í viðburða-
tjaldi veglegu er þar mun
standa. Þegar nær dregur
jólum lengist opnunartími
verslana og uppákomum
fjölgar í miðbænum sem
alltaf er gaman að rölta um
þegar jólin nálgast.
8.
ÁLA-
FOSS-
KVOSIN
Útimarkaður í Mosó
Útimarkaðurinn
verður haldinn í
Álafosskvos í
Mosfellsbæ
á laugar-
dögum og
sunnudög-
um milli
tólf og
fimm í desember. Ýmis
varningur verður til sölu
í sölubásum, jólatónlist-
in ómar og súkkulaði, jóla-
glögg og piparkökur verða á
hverju strái.
9. ÁRBÆJ-
ARSAFN
Jólaball úti
við
Hver sagði að
jólaball þyrfti
að vera innandyra?
Árbæjarsafn opnar dyrnar
sunnudagana fram að jólum
og þar er dansað í kringum
jólatré útivið í góðum félags-
skap íslensku jólasveinana
sem halda uppi fjörinu. Það
er fátt jólalegra en að rölta á
milli húsa
safnsins, smakka hangikjöt
og laufabrauð og komast í
jólafíling. Þess má geta að
dansað er í kringum jóla-
tréð klukkan 15 en safnið er
opnað klukkan eitt.
10. LÍF Í DALNUM
Líf og fjör í Laugardalnum
Jólastemmingin ræður
ríkjum í Laugardalnum á
aðventunni. Frá Grasagarð-
inum berst ilmur af ristuð-
um möndlum en Café Flóra
verður opin allar aðventu-
helgarnar í desember. Á
torginu fyrir framan garðinn
selur Flugbjörgunarsveitin í
Reykjavík jólatré og greina-
búnt um helgar. Grýla held-
ur jólaveislu í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum, boðið er
upp á hest-
vagnaferðir um garðinn
og litla jólalistasmiðju í
Hafrafelli. Og í Skautahöll-
inni verður skautað í kring-
um jólatré allan desember-
mánuð.
11. FRIÐARGANGAN
Gleðigjafi á Þorláksmessu
Friðargangan á Þorláks-
messu hefur fyrir löngu
skipað sér sinn fasta sess
í jólaundirbúningi Reyk-
víkinga. Lagt er af stað
frá Hlemmi klukkan 18 og
gengið með kyndla niður á
Lækjartorg. Kór Mennta-
skólans við Hamrahlíð leið-
ir sönginn og allir sem taka
þátt eða fylgjast með finna að
jólin eru bara alveg á næsta
leiti.
Jólatré og jólasveinar í skóginum
Jólaljós og jólastemning lífga aldeilis upp á desember þegar dagurinn er stystur. Þó að notalegt sé að sitja inni við kertaljós,
bakstur og huggulegheit er ýmislegt jólalegt á seyði úti við nú á aðventunni. Jólamarkaðir, jólaböll og ekki síst ferð í jólaskóg til
að höggva sitt eigið jólatré kemur jafnvel mestu skröggum í hið eina sanna jólaskap.
1
4
5
6
7
9
10
11
8
3
2
Skógræktarfélög landsins bjóða mörg hver upp á þann skemmtilega mögu-
leika að fólk sæki sitt eigið jólatré, hver
veit svo nema jólasveinar leynist í skóg-
inum? Á höfuðborgarsvæðinu eru mögu-
leikarnir nokkrir. Víða er einnig hægt að
kaupa söguð tré. Jólaskógur er vitaskuld
víðar en á höfuðborgarsvæðinu eins og
þetta kort sýnir. Nánari upplýsingar eru
að finna á heimasíðu Skógræktarfélags
Íslands www.skog.is.
JÓLASKÓGUR TRÉIN HÖGGVIN