Fréttablaðið - 04.12.2010, Síða 127
LAUGARDAGUR 4. desember 2010 99
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Sunnudagur 05. desember 2010
➜ Tónleikar
13.00 Ballettinn Englajól verður
frumfluttur á tónleikum Töfrahurð-
arinnar í Salnum í Kópavogi í dag kl.
13. Sérstakur gestur á tónleikunum er
Kársneskórinn.
17.00 Kirkjukór Grensáskirkju heldur
sína árlegu aðventutónleika í Grensás-
kirkju í dag kl. 17. Stjórnandi og orgel-
leikari er Árni Arinbjarnarson. Aðgangur
er ókeypis.
18.00 Söngdeild TFÍH og hljómsveit
undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar
flytja söngperlur Megasar í Hátíðarsal
TFÍH. Tónleikarnir verða laugardaginn
4. desember kl. 20 og sunnudaginn 5.
desember kl. 18. Sérstakir gestir verða
Karítur Íslands undir stjórn Hilmars
Arnar Agnarssonar.
20.00 Aðventutónleikar Kórs
Hjallakirkju verða haldnir í dag kl.
20 í Hjallakirkju. Fjölbreytt efnisskrá.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
➜ Opnanir
12.00 Jólaþorpið í Hafnarfirði verður
opið laugardag og sunnudag frá 12-18.
Allir velkomnir. Skemmtidagskrá á sviði
frá 14-16.30.
Grasagarðurinn í Laugardalnum verður
opinn síðustu þrjár helgar fyrir jól. Café
Flóra opin frá kl. 13-18. Jólaboð Grýlu
verður haldið um helgina kl. 11.30 í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
➜ Síðustu forvöð
14.00 Síðasta sýningarhelgi Jóns
Henryssonar í sýningarsal Íslenskrar
grafíkur er um helgina. Sýningin er
opin frá 14-18 um helgina.
➜ Upplestur
16.00 Upplestur rithöfunda á
Gljúfrasteini. Bragi Ólafsson, Ólafur
Haukur Símonarson, Sigríður Péturs-
dóttir og Ari Trausti Guðmundsson lesa.
Dagskrá hefst kl. 16, aðgangur ókeypis.
➜ Dansleikir
20.00 Dansleikur Félags eldri
borgara í Reykjavík verður haldinn að
Stangarhyl 4 í kvöld frá 20-23. Dans-
hljómsveitin Klassík leikur danslög við
allra hæfi.
➜ Dagskrá
14.00 Jóladagskrá Þjóðminjasafns
Íslands hefst í dag, sunnudag. Dagskrá-
in hefst kl. 14 og spila Pollapönkararn-
ir Heiðar og Haraldur fyrir krakkana.
Grýla, Leppal úði og Jólakött-
urinn verða á staðnum.
Aðgangur ókeypis.
➜ Málþing
15.00 Í tenglsum við sýninguna Ný
aðföng 2006-2010 boðar Listasafn
Reykjavíkur til málþings á Kjarvals-
stöðum í dag kl. 15 þar sem innkaupa-
stefna Listasafns Reykjavíkur verður
krufin og rætt um listasöfn og listverka-
söfnun frá ýmsum hliðum.
➜ Dans
15.00 Dansað og marserað á vegum
Harmonikkufélags Reykjavíkur í Sjó-
minjasafninu Vík á Grandagarði sunnu-
daginn 5. desember frá kl. 15-17.
➜ Leiðsögn
14.00 Leiðsögn um yfirlitssýningu
á verkum Karls Kvaran kl. 14. í dag í
fylgd Halldórs B. Runólfssonar, safn-
stjóra.
➜ Samkoma
16.00 Bergmál, líknar- og vinafélag
býður velunnurum sínum til aðventu-
hátíðar í Háteigskirkju í dag kl. 16.
Fjölbreytt dagskrá. Veitingar í safnað-
arsal að lokinni athöfn í kirkjunni. Allir
velkomnir.
➜ Söngur
11.00 Gerðubergskórinn, kór félags-
starfs í Gerðubergi, syngur við messu í
Breiðholtskirkju kl. 11 í dag.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Johnny Marr, fyrrverandi
gítarleikari ensku hljóm-
sveitarinnar The Smiths, vill
að David Cameron, forsætis-
ráðherra Bretlands, hætti
að lýsa yfir hrifningu
sinni á sveitinni.
„Hættu að segja að
þú fílir The Smiths,
því þú gerir það
ekki,“ skrifaði
Marr á Twitter-
síðu sína. „Ég banna þér að
fíla okkur.“
Forsætisráðherrar Bret-
lands hafa í gegnum tíðina
verið duglegir við tjá sig
um uppáhaldshljóm-
sveitirnar sínar. Marg-
ir vilja meina að þeir
séu aðeins að reyna
að afla sér frekari
vinsælda hjá unga
fólkinu. Gordon
Brown sagðist fíla
The Arctic Monkeys
en þekkti síðan ekki
eitt einasta lag með
sveitinni í tímarits-
viðtali. Tony Blair sagðist vera
aðdáandi Oasis, sem varð til þess
að gítarleikarinn Noel Gallagher
fékk nóg og sagðist vera orðinn
leiður á því að gert væri grín að
sér vegna ummælanna, sem þóttu
síður en svo töff.
Hljómsveitirnar The Killers
og Pink Floyd ásamt Bob Dylan
eru einnig í uppáhaldi hjá David
Cameron en engum sögum fer af
mótmælum þeirra við aðdáun for-
sætisráðherrans.
Johnny Marr líkar ekki aðdáun Camerons
THE SMITHS Johnny Marr, fyrrverandi
gítarleikara The Smiths, líkar ekki aðdá-
un Camerons.
DAVID CAMERON
Forsætisráðherrann
segist vera aðdáandi
The Smiths.