Fréttablaðið - 16.12.2010, Blaðsíða 36
36 16. desember 2010 FIMMTUDAGUR
RISAJÓLI Þessa risastóru ljósastyttu af jólasveininum er að finna við
Tauenzienstrasse, sem er fjölfarin verslunargata í vesturhluta Berlínar.
Þar í grennd hefur verið haldinn jólamarkaður í fjölda ára.
ÓLÍKIR SVEINKAR Vinstra megin má sjá mann í gervi „Ded Moroz“, rússneska jólasveinsins og svo annan í hefðbundnara gervi, þar sem þeir
skoða sig um á jólamarkaði í Strassborg í Frakklandi. NORDICPHOTOS/AFP
GLUGGASKRAUT Í PARÍS Barn lítur aðdáunaraugum skraut í „jóla-
glugga“ stórverslunarinnar „Grands Magasins“ í París, rétt um viku fyrir
jól.
GLEÐILEGAR SKOTFLAUGAR Flugeldar lýstu upp himininn þegar ljósin voru kveikt á jólatré í miðbæ Beirút, höfuðborgar Líbanons, fimmtudaginn
9. desember síðastliðinn.
JÓLASÝNING Í JAPAN Höfrungur kastar þjálfara sínum í loft upp á
sérstakri jólasýningu í sýningarsal vatnagarðs í Shinagawa Prince hót-
elinu í Tókýó. Sýningar hófust í desember og standa fram á jóladag.
Jólin víða undirbúin
JÓLUM FAGNAÐ Í AMERÍKU Á laugardaginn síðasta var haldin
„Santacon“-hátíðin í borgum víða um Bandaríkin. Þá fjölmennir fólk
í jólasveinabúningum út á götur til að fagna því að jólin séu í nánd.
Hér að ofan má sjá stemninguna á litlum bar í New York.
LITLI OG STÓRI Hann lætur ekki mikið yfir sér en laðar að fjölda gesta,
litli jólamarkaðurinn sem stendur fyrir framan stórverslun Karstadt í
miðbæ Berlínar.
HJÓLASVEINAR Starfsmenn póstsins í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu,
klæddu sig í byrjun vikunnar upp sem jólasveina og færðu fátækum
gjafir. Með þessu var hafið sérstakt átak til styrktar fátækum í landinu
sem nær til níu borga í landinu og varir til ársloka.
Allur gangur er á því hvernig fólk fagnar og undirbýr jólahátíðina. Þess má engu að
síður víðast hvar sjá merki að hátíð ljóss og friðar sé á næsta leiti. Í þeim efnum gildir
nær einu hvar borið er niður í heiminum, víðast hvar getur að líta einhvern jólaundir-
búning. Fréttablaðið kíkti á myndir af undirbúningi frá hinum og þessum löndum.