Fréttablaðið - 16.12.2010, Side 84

Fréttablaðið - 16.12.2010, Side 84
68 16. desember 2010 FIMMTUDAGUR tonlist@frettabladid.is Rapparinn Kanye West og kanadíska hljómsveit- in Arcade Fire eiga plötur ársins samkvæmt árslistum hinna ýmsu dagblaða og tónlistartímarita. Árslistar helstu tónlistartímarita og dagblaða heims hafa verið að tínast inn að undanförnu. Bresku tónlistartímaritin Mojo og Q og hið bandaríska Rolling Stone hafa sent frá sér uppgjör, auk þess sem heimasíðan Metacritic.com hefur tekið hina ýmsu árslista saman og gefið flytjendum einkunnir eftir sætunum sem þeir lenda í. Ljóst er að plöturnar The Suburbs með kanadísku hljómsveitinni Arcade Fire og My Beauti ful Dark Twisted Fantasy með bandaríska rapparanum og hroka gikknum Kanye West skara fram úr þegar allt er tekið saman og hljóta því að teljast plötur ársins. Báðir flytjend- urnir hafa lengi verið í há vegum hafðir hjá tónlistargagnrýnendum og ætti því að koma fáum á óvart að sjá þá í efstu sætunum. Arcade Fire fékk frábæra dóma fyrir tvær fyrstu plötur sínar, sérstaklega hina mögnuðu Funeral, á meðan Kanye sló í gegn með frumburðin- um The College Dropout. Önnur plata ofarlega á mörgum árslistum er Brothers með rokk- dúóinu The Black Keys, auk þess sem bandaríski sveitasöngvarinn Jamey Johnson fær óvænta rós í hnappagatið fyrir plötuna The Guitar Song. Aðrir sem komast í mjúkinn eru rapparinn Big Boi úr hljómsveitinni Outkast sem hefur fengið fína dóma fyrir sína fyrstu sólóplötu, bandaríska sveitin LCD Soundsystem, draumpoppararnir í Beach House, John Grant og gamla kempan Robert Plant. freyr@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson TÓNLISTINN Vikuna 9. desember - 15. desember 2010 LAGALISTINN Vikuna 9. desember - 15. desember 2010 Sæti Flytjandi Lag 1 Dikta ......................................................................Goodbye 2 Hjálmar ....................................................Gakktu alla leið 3 Páll Óskar & Memfismafían ........Það geta ekki allir... 4 Rihanna .......................................Only Girl In The World 5 Björgvin Halldórsson & Mugison ................... Minning 6 Bruno Mars ..................................Just The Way You Are 7 P!nk .........................................................Raise Your Glass 8 Robbie Williams & Gary Barlow ........................Shame 9 Jón Jónsson ...................................When You’re Around 10 Katy Perry .............................................................Firework Sæti Flytjandi Lag 1 Baggalútur ..........................................................Næstu jól 2 Elly Vilhjálms .......................................... Heyr mína bæn 3 Bubbi ..................................Sögur af ást, landi og þjóð 4 Páll Rósinkranz ...........................................Ó hvílík elska 5 Raggi Bjarna ........................... 75 ára afmælistónleikar 6 Frostrósir ................................................... Hátíðin heilsar 7 Blaz Roca ............................. Velkomin til KópaCabana 8 Björgvin Halldórsson .............................................Duet II 9 Sigurður og Memfismafían ........ Nú stendur mikið til 10 Justin Bieber ....................................................My Worlds Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds- son, 12 tónar, Smekkleysa plötubúð, Havarí, Elkó, tonlist.is Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Skýringar: Þó að stjarna franska dúósins Daft Punk skíni kannski ekki alveg jafn skært í dag og þegar hún lagði heiminn að fótum sér með snilldar plötunum Homework og Discovery er alltaf mikill spenningur fyrir nýju efni frá þeim Thomas Bangalter og Guy- Manuel de Homem- Christo. Og þeir voru að senda frá sér nýja plötu. Tron Legacy er samt ekki hefðbundin Daft Punk plata, heldur tónlist við samnefnda kvikmynd sem verður frumsýnd hér á landi á annan í jólum. Myndin er framhald kvik- myndarinnar Tron frá 1982. Þetta er ekta fram- tíðarstórmynd í leik- stjórn Josephs Kosinski, en Jeff Bridges, Garrett Hedlund, Bruce Boxleitn- er og Olivia Wilde fara með stærstu hlutverkin. Meðlimir Daft Punk leika reyndar líka sjálfir í myndinni, tvo MP3- snúða í End of the Line klúbbnum. Það var Kosinski sem vildi ólmur fá Frakkana til að búa til tónlist- ina, enda að eigin sögn búinn að vera harður aðdáandi þeirra í tíu ár þegar hann hitti þá á kaffihúsi í Hollywood í nóvember 2007. Platan hefur fengið góðar viðtökur, enda þykir þeim félögum hafa tekist frábærlega að blanda saman hefðbundinni kvikmyndatónlist og raf- tónlist. Hin 85 manna London Orchestra spilar á plötunni sem flakk- ar á milli heima kvikmyndatónlistar og danstónlistar. Sum lögin eru hefðbundin kvikmyndatónlist, en svo detta inn brjáluð sánd og gamal kunnir taktar hér og þar. Fín plata. Og svo er það bara að vona að þeir kýli á venjulega Daft Punk plötu fljótlega. Á nýjar slóðir með Disney DAFT DISNEY PUNK? Félagarnir í Daft Punk sjá um tónlistina í Disney-myndinni Tron Legacy. > Plata vikunnar Apparat Organ Quartet - Pólýfónía ★★★★★ „Orgelkvartettinn Apparat keyrir upp stuðið með frábærri plötu.“ - TJ > Í SPILARANUM John Grant - Queen of Denmark Cliff Clavin - The Thief’s Manual Kanye West - My Beautiful Dark Twisted Fantasy Ryan Adams & The Cardinals - III/IV The Black Keys - Brothers JOHN GRANT THE BLACK KEYS Ólafur Arnalds og For a Minor Reflection munu halda sameiginlega tón- leika í Tjarnarbíói í kvöld. Húsið verður opnað klukkan 20.30 og er miða- verð 1.500 krónur. Miða- sala er hafin á midi.is. Ólafur Arnalds gaf út plötuna …and They Have Escaped the Weight of Darkness í ár og fékk hún góðar viðtökur. Hann hefur verið á stífum tónleikaferðalögum til kynningar plötunni í ár og spilað víða um heim, eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu – allt frá Þýskalandi til Slóvakíu og meira að segja til Suður-Kóreu og Kína. For a Minor Reflection sendi frá sér aðra breið- skífu sína fyrr á árinu og ber hún nafnið Höld- um í átt að óreiðu. Plöt- una vann hljómsveitin í Sundlauginni í Mosfells- bæ með upptökustjór- anum Scott Hackwith sem hefur meðal annars unnið með goðsögnunum í The Ramones. Ólafur Arnalds snýr heim LANGT FERÐALAG Ólafur Arnalds hefur ferðast víða á árinu. Hann er nú kominn heim og kemur fram í Tjarnarbíói í kvöld ásamt hljómsveitinni For a Minor Reflection. Arcade Fire og Kanye West skipta með sér toppsætinu BEST Arcade Fire og Kanye West eiga bestu plötur ársins 2010 ef marka má erlend tónlistartímarit. METACRITIC 1. Kanye West - My Beautiful Dark Twisted Fantasy 2. Arcade Fire - The Suburbs 3. LCD Soundsystem - This Is Happening 4. High Violet - The National 5. Janelle Monáe - The ArchAndroit ROLLING STONE 1. Kanye West - My Beautiful Dark Twisted Fantasy 2. The Black Keys - Brothers 3. Elton John og Leon Russell - The Union 4. Arcade Fire - The Suburbs 5. Jamay Johnson - The Guitar Song MOJO 1. John Grant – Queen Of Denmark 2. Arcade Fire – The Suburbs 3. MGMT – Congratulations 4. Edwyn Collins – Losing Sleep 5. The Black Keys – Brothers TÍMI ÁRSLISTANNA RUNNINN UPP Hringdu í síma ef blaðið berst ekki
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.