Fréttablaðið - 16.12.2010, Blaðsíða 98
82 16. desember 2010 FIMMTUDAGUR
Ég er ekki til
í að láta neitt
of mikið að
stjórn.
ÓLÖF ARNALDS
SÖNGKONA
Ólöf Arnalds er nýkomin
til landsins eftir langa og
stranga tónleikaferð um
Evrópu og Bandaríkin.
Hvíldin verður stutt því í
janúar fer hún til Ástralíu
þar sem hún hitar upp fyrir
hljómsveitina Grinderman.
Tónlistarkonan Ólöf Arnalds er
stödd hér á landi í jólafríi eftir
langa og stranga tónleikaferð.
Hún spilaði á 32 tónleikum í Evr-
ópu og Bandaríkjunum frá sept-
ember fram í desember bæði sem
aðalnúmerið og sem upphitunar-
atriði fyrir hljómsveitirnar Air
og Blonde Redhead. „Þetta var
mikil áskorun vegna þess að fólk
var komið til að heyra eitthvað
sem er mjög ólíkt því sem ég er
að gera,“ segir Ólöf um upphitun-
aratriði sitt sem fékk fín viðbrögð
áheyrenda.
Ólöf er að fylgja eftir sinni ann-
arri sólóplötu, Innundir skinni,
sem hefur fengið frábæra dóma,
bæði hér heima og erlendis.
Breska tímaritið Uncut valdi hana
eina af fimmtíu bestu plötum árs-
ins, Mojo gaf henni fjórar stjörn-
ur af fimm mögulegum og blöðin
The Guardian og The Wall Street
Journal skrifuðu heilsíðu grein-
ar um Ólöfu. Einnig spilaði hún í
útvarpi bæði hjá BBC og á tveimur
stærstu almenningsútvarpsstöðv-
um Bandaríkjanna. Að auki var
lag hennar Madrid valið lag árs-
ins í flokki söngvaskálda á iTunes.
„Það er frábært að fá viðurkenn-
ingu fyrir það sem maður er að
gera og það er mjög hvetjandi. Ég
reyni samt að halda mig á jörðinni
í sambandi við þessa dóma en vona
að þeir hjálpi til við að gera mér
kleift að halda áfram að gera það
sem ég er að gera,“ segir hún.
Eftir að hafa stundað nám í
Listaháskóla Íslands og unnið með
múm, Skúla Sverrissyni og fleiri
tónlistarmönnum gaf Ólöf út sína
fyrstu sólóplötu, Við og
við, árið 2007. Þjóðlaga-
skotin tónlistin þar sem
kassagítarinn og óhefð-
bundinn söngur Ólafar
var í aðalhlutverki féll
í góðan jarðveg og plat-
an hlaut Íslensku tónlist-
arverðlaunin. Sjálf lítur
Ólöf ekki á sig sem þjóð-
lagaflytjanda. „Það að ég
skuli spila á órafmögnuð
hljóðfæri veldur því að
ég fell í þennan flokk. Það
verður alltaf að setja allt í bása en
ég væri mjög til í að sprengja það
upp,“ segir hún ákveðin og hefur
lítinn áhuga á að festa sig við eina
tónlistarstefnu.
Innundir skinni er nokkuð frá-
brugðin Við og við. Hljómurinn er
stærri, enda hljóðfærin og sam-
starfsmennirnir fleiri en áður.
Lögin eru bæði á íslensku og
ensku. „Ég var að prófa svolítið
að víkka allt út. Ég myndi segja að
lögin væru fjölbreyttari og ólíkari
hvert öðru heldur en á Við og við,
sem var meira eitt þema,“ útskýr-
ir Ólöf. „Ég lagði upp í vinnuferli
að Innundir skinni með átján lög,
tók upp tólf lög og svo fóru bara
níu á plötuna. Hún varð kannski
heilsteyptari en ég bjóst við miðað
við hvað ég var úti um
allt með hugmyndir og
hvað það var mikill til-
raunahugur í mér.“
Björk syngur í lag-
inu Surrender. Spurð út
í samstarf þeirra segir
Ólöf: „Ég var að spila
fyrir hana plötuna
þegar ég var að „mixa“
hana og langaði að fá
viðbrögð. Þá fékk hún
hugmynd að stefi og
sagði mér að hún gæti
tekið þetta upp og látið mig hafa.
Ég gæti notað þetta hvernig sem
ég vildi. Ég tók ákvörðun um að
hafa þetta óbreytt sem hún sendi
mér.“ Björk var þá stödd í Púertó
Ríkó á meðan Ólöf var í Reykja-
vík. „Ég var búin að taka upp lagið
í heild sinni áður en röddin henn-
ar bættist við. Svo kom þetta góða
boð og þetta fallega innlegg frá
henni og ég var mjög ánægð með
það.“
Myndband við lagið má sjá á
heimasíðu Ólafar og er það djarf-
ara en fólk á að venjast frá tón-
listarkonunni. Leikstjórar voru
þeir Árni og Kinski sem hafa
áður unnið fyrir Jónsa, Sigur Rós,
Snow Patrol og Placebo. Mynd-
bandið var tekið á Þingvöllum þar
sem Ólöf dansar við hinn fransk-
belgíska Damien Jalet, sem hefur
unnið með Íslenska dansflokknum
og Ernu Ómardóttur. Hugmyndin
sem lögð var upp með var líkam-
leg togstreita milli karls og konu.
„Við unnum þessar hreyfingar og
það var ótrúlega gaman fyrir mig
því ég hafði aldrei dansað neitt
áður. Við höfðum bara einn dag
í tökur og það var hellirigning,
alveg ískalt. Þetta var alveg svaka-
legt og við vorum ansi hrakin eftir
þetta,“ segir hún og hafði gaman
af erótískum dansinum. „Ég held
að þetta snúist líka um að þegar
það er búið að setja á mann ákveð-
inn hatt kemur þessi tilhneiging
að sprengja sig út úr því. Eins og
þegar ég var búin að gera heila
plötu á íslensku [Við og við] og það
var búið að setja á mig íslenskr-
ar-tungu-geislabaug. Annar hver
íslensku kennari í menntaskóla
var að hringja og biðja mig um að
syngja á degi íslenskrar tungu. Þá
kom bara upp einhver mótþrói í
mér. Þetta er kannski þetta ung-
æðislega í manni. Ég er ekki til í
að láta neitt of mikið að stjórn.“
Fram undan hjá Ólöfu er tón-
leikaferð um Ástralíu um miðjan
janúar þar sem hún spilar á tón-
listarhátíð í Sydney. Síðan fer hún
til Tasmaníu og hitar upp fyrir
Grinderman á einum tónleikum.
„Það er frábært að fá að spila á
undan Nick Cave í hans heima-
landi. Þetta er flottur listamaður
og mikið skáld líka. Þetta verð-
ur mjög spennandi,“ segir hún.
„Út af því að það var ljóst að ég
yrði í Ástralíu á þessum tíma var
ég eitt af þeim atriðum sem komu
til greina. Mér skilst að þeir hafi
valið mig úr þeim hópi.“
Tónleikaferð um Evrópu er síðan
fyrirhuguð í febrúar og í mars
spilar Ólöf á tónlistarhátíðinni
South By Southwest í Texas. Hún
er einnig að vinna að sinni þriðju
plötu sem hún vonast til að komi út
fyrri hluta ársins 2012. Það er því
nóg fram undan hjá Ólöfu á nýju
ári. „Þetta lítur mjög spennandi út.
Ég vona bara að ég uppskeri eins
og ég er búin að sá.“
freyr@frettabladid.is
Vill ekki vera sett undir einn hatt
ÓLÖF ARNALDS Tónlistarkonan hefur haft í nógu að snúast undanfarna mánuði við að kynna plötu sína Innundir skinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
PLÖTUR ÓLAFAR
Við og við - 2007
★★★★
„Gríðarlega vel heppnuð plata
sem inniheldur undurfögur lög
með ævintýralegum blæ.“ SHA
Innundir skinni - 2010
★★★★
„Ólöf Arnalds heldur áfram að full-
komna stílinn sinn á fínni plötu.“
TJ