Fréttablaðið - 16.12.2010, Side 54
Vaxmyndastytta af Lady Gaga var afhjúpuð við hátíðlega athöfn á vaxmyndasafni
Madame Tussaud í New York fyrir stuttu. Alls voru búnar til átta styttur af söngkonunni
og verða þær til sýnis í London, Berlín, Sjanghæ og Hong Kong auk New York.
„Hún Kristín vinkona mín er flug-
freyja og hugmyndin að teppa peys-
unni vaknaði hjá henni á löngum
flugferðum þar sem hún fylgdist
með því hvernig farþegar reyndu
að koma sér þægilega fyrir undir
litlu teppi,“ segir Ingibjörg Þóra
Gestsdóttir fatahönnuður, sem
hefur hannað skemmtilega peysu í
samvinnu við vinkonu sína Krist-
ínu Unni Þórarins dóttur.
„Stína kom til mín með þá hug-
mynd að hanna flík sem gæti gert
fólki lífið auðveldara á ferðalög-
um,“ útskýrir Ingibjörg. Þær stöll-
ur hófu að gera nokkrar tilraunir
í febrúar. Þær veltu hugmyndinni
á milli sín og fengu meðal ann-
ars vini og ættingja til að leggja
höfuðið í bleyti. Einn þeirra kom
með þá hugmynd að nota ull. „Við
hönnuðum mynstur, létum prjóna
efni fyrir okkur í Glófa og létum
bursta það bæði að utan og innan
svo það stingi ekki,“ segir Ingi-
björg en þær Kristín saumuðu
síðan peysuna úr vélprjónuðu
efninu.
En hvernig virkar peysan?
„Hún virkar í fyrsta lagi sem
utanyfirflík sem rennt er upp með
rennilás. Þá er neðri hluti hennar
hnepptur upp. Í öðru lagi er flík-
in teppi. Þá eru hnapparnir los-
aðir og til verður teppapeysa þar
sem hægt er að stinga tánum ofan
í prjónaðan poka,“ segir Ingibjörg
og áréttar að peysan sé mjög hlý
enda fjórföld í bakið þegar neðri
hluta hennar er hneppt upp. „Hún
vegur þó aðeins rúmt kíló og því
ekki þungt að vera í henni,“ segir
hún og bendir á að hægt sé að
rúlla peysunni allri inn í hettuna.
Þannig verði til koddi auk þess
sem auðvelt sé að ferðast með
hana.
Nánar má fræðast um peysuna
á www.koffort.is en peysuna má
fá í Ísbirninum á Laugaveginum,
Hrím hönnunarhúsi á Akureyri og
í Leifsstöð. solveig@frettabladid.is
Hlýjar tær á ferðalagi
Vinkonurnar Ingibjörg Þóra Gestsdóttir fatahönnuður og Kristín Unnur Þórarinsdóttir flugfreyja hafa
hannað lopapeysu sem nýtist líka sem hlýtt teppi. Peysan nýtist sérlega vel á löngum ferðalögum.
Ingibjörg hefur það notalegt með góða bók og vafin inn í teppapeysuna notalegu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Íslensk hönnun
Sölustaðir:
Meba Kringlunni og Smáralind | Michelsen úrsmiðir, Laugavegi 15 | Kraum Aðalstræti 10
Gullsmiður Dýrfinna Torfadóttir, Akranesi | Halldór Ólafsson, Glerártorgi Akureyri
Klassík, Egilsstöðum | Karl R. Guðmundsson, Selfossi | Palóma föt og skart, Grindavík
SKARTHÚSIÐ
LAUGAVEGI 44
SÍMI 562 24 66
Tilvalin jólagjöf
Ný sending af vinsælu
hringtreflunum - mjúkir,
hlýir og flottir. Einnig mikið
úrval af húfum, treflum, vett-
lingum, grifflum, hnésokkum
og legghlífum.
Verð frá kr. 2990
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI
FRÉTTIR