Fréttablaðið - 16.12.2010, Blaðsíða 82
66 16. desember 2010 FIMMTUDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 16. desember 2010
➜ Tónleikar
20.00 Í Vídalínskirkju
verða haldnir tónleikar
í kvöld kl. 20. Fram
koma Dikta, Cliff Cla-
vin og Daníel Jón og
Ylfa Marín. Miðaverð er
2.000 krónur.
20.00 Í kvöld kl. 20 verða tónleikar
í Lágafellskirku í Mosfellsbæ undir
yfirskriftinni Orgeljól 2010. Douglas
Brotchie, organisti Háteigskirkju, spilar
tónlist eftir Bach og Einar Clausen
syngur aríu eftir Bach og gamla jóla-
sálma. Aðgangur ókeypis.
20.30 Hljómsveitin Valdimar og
söngvarinn Kalli efna til prófloka- og
jólatónleika í Fumleikhúsinu í Keflavík
í kvöld. Húsið opnar kl. 20.30 og er
aðgangseyrir 1000 krónur.
21.00 Í kvöld verða tónleikar með
Ólafi Arnalds og For a Minor Reflect-
ion í Tjarnarbíó. Húsið opnar kl 20.30
og hefjast tónleikarnir hálftíma síðar, kl.
21. Miðaverð er 1500 krónur.
21.00 Á Sódóma Reykjavík verður
tónlistarmaðurinn Steve Brodsky með
tónleika í kvöld. Tónleikarnir hefjast kl.
21 og er miðasala á midi.is.
22.00 Gylfi Ægisson verður með
tónleika á Faktorý í kvöld. Tónleikarnir
hefjast stundvíslega kl. 22 en efri hæðin
opnar kl. 21. Aðgangseyrir er 1000 kr.
og verða diskar með vinsælum lögum
Gylfa seldir á staðnum.
➜ Upplestur
17.00 Rithöfundarnir Anna Kristine
Magnúsdóttir og Ragnar Jónasson
lesa upp úr nýjum bókum sínum á
kaffihúsinu Tíu dropum, Laugavegi 27 í
dag kl. 17. Allir velkomnir.
➜ Dagskrá
20.30 Ungmenna-
ráð Ölfuss efnir til
skemmtikvölds í
Ráðhúskaffi á Þor-
lákshöfn í kvöld fyrir
16 ára og eldri. Dag-
skrá hefst kl. 20.30
og koma fram Guð-
mundur Þorsteins-
son, Jana Ármanns-
dóttir, Daníel Geir
Moritz, Heiðar Snær ásamt Rúnari
Gunnars og dúettinn Traktor. Frítt inn
og allir velkomnir.
➜ Tónlist
19.00 Jólablúsgjörningur Vina Dóra
fer fram í kvöld á Rúbín, Öskjuhlíð við
hlið Keiluhallarinnar. Húsið opnar kl. 19
og hefst jólablúsgjörningurinn kl. 21.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Tónlist ★★
Kínversk norðurljós
Xu Wen sópran ásamt Örnu Rún
Atladóttur píanóleikara
Meira kínverskt takk
Kínversk
þjóðlög
heyrast
ekki oft
hér á landi.
Geisla-
plata með
sópran-
söngkon-
unni Xu
Wen, sem
hefur búið á hér
á landi í rúm tuttugu ár, er því
skemmtileg viðbót í tónlistarflór-
una. Röddin er björt og hrein, og
lögin eru sungin af tilfinningu og
einlægni. Þetta er falleg tónlist,
og það er synd að lögin eru aðeins
fjögur.
Xu Wen hefur ekki verið áber-
andi í tónlistarlífinu, a.m.k. ekki
á Íslandi. Hún ætlar greinilega að
bæta úr því og kynna hlustendum
sem flestar hliðar á sjálfri sér. Ég
held að það séu mistök. Geislaplat-
an inniheldur nokkurs konar bland-
í-poka-dagskrá, þarna eru fimm
grísk þjóðlög í útfærslu Maurice
Ravels, nokkur lög eftir Sigvalda
Kaldalóns og fáeinar aríur. Það er
tónlist sem passar ekkert voða-
lega vel saman. Þetta er ekki bara
hlaup og súkkulaði, heldur líka
hákarl og harðfiskur. Ef hægt er
að nota þá líkingu.
Svona ósamstæð dagskrá gerir
geislaplötuna í heild ekkert sér-
staklega girnilega. Það er vaðið
úr einu í annað. Xu Wen er samt
prýðileg söngkona. En konsept-
ið er ekki nógu skýrt. Hefði ekki
verið meira spennandi að hafa ein-
göngu kínversk þjóðlög á plötunni?
Eitthvað alveg einstætt í íslensku
tónlistarlífi? Þannig plata myndi
vekja mikla athygli.
Niðurstaða: Xu Wen er flott söng-
kona en lagavalið á geislaplötunni er
ósamstætt.
Tónlist ★★★★
Heilagur draumur
Verk eftir John Tavener. Kammer-
kór Suðurlands syngur undir stjórn
Hilmars Arnars Agnarssonar.
Tónverk úr draumi
Geisla-
plata með
verkum
eftir John
Tavener
ber heitið
Heilagur
draum-
ur. Plat-
an heit-
ir eftir einu
verkinu á plötunni, en tónskáldið
mun hafa dreymt það eftir messu
í rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni.
Tavener gekk í rétttrúnaðarkirkj-
una þegar hann var rúmlega þrí-
tugur, og dulúðin og andaktin í
kirkjunni hefur einkennt tónlist
hans allar götur síðan.
Einfaldleikinn er í fyrirrúmi í
verkunum á geislaplötunni. Oft er
einn undirliggjandi tónn út í gegn,
og það gefur tónlistinni fókus,
þjappar henni saman. Samt er
músíkin ekki einfeldningsleg eða
ódýr, það er merking í hverjum
tóni. Hendingarnar eru sprottnar
af íhugun og innri upplifun, og það
er einfaldlega ekki hægt annað en
að hrífast með.
Kammerkór Suðurlands undir
stjórn Hilmars Arnar Agnarsson-
ar syngur af mikilli tilfinningu
og nákvæmni. Einsöngvararn-
ir eiga líka góða spretti, sérstak-
lega Hrólfur Sæmundsson, sem
ég held að hafi aldrei sungið eins
vel. Hann er auðheyrilega vaxandi
söngvari.
Niðurstaða: Falleg, stundum hug-
leiðslukennd tónlist. Þetta er flott
plata!
Tónlist ★★★
Kviða
Tríó Blik
Sumt er áhugavert
Það er sitt lítið af hverju á geisla-
plötunni
Kviðu sem
Tríó Blik
hefur sent
frá sér.
Bland í
poka, rétt
eins og
hjá Xu
Wen.
Tríó-
ið sam-
a n s te ndu r a f
Freyju Gunnlaugsdóttur klar-
inettuleikara, Danielu Hlinková
píanóleikara og Hönnu Dóru
Sturludóttur söngkonu. Þarna eru
tveir söngvar eftir Brahms op.
91, sex þýsk ljóð eftir Spohr, tvær
aríur eftir Mozart og tveir ferða-
söngvar eftir Atla Heimi Sveins-
son.
Þessi ólíku verk passa þó betur
saman en á geislaplötu Xu Wen.
Dagskráin er eins og á fremur
hefðbundnum kammertónleikum.
Það þarf að hlusta á plötuna út í
gegn og helst þegja á meðan!
Eins og gengur þegar um fjöl-
breytta dagskrá er að ræða, er
geislaplatan hvorki skemmtileg
né leiðinleg. Verkin eru misáhuga-
verð, en flutningurinn er alltént
góður. Freyja spilar af listfengi og
píanóleikurinn er tær og öruggur.
Og Hanna Dóra syngur af tilfinn-
ingaþrunginni áfergju, af krafti og
ástríðu. Í það heila er þetta ágæt
útgáfa, en e.t.v. hefði mátt hugsa
heildarsvipinn aðeins betur.
Jónas Sen
Niðurstaða: Góður flutningur, mis-
áhugaverð tónlist. Heildarsvipurinn
mætti vera sterkari
Bland í poka og innri íhugunBækur ★★
Jónína Ben
Sölvi Tryggvason
Málsvörn og ákæra
Það er kannski til lítils að ritdæma bók eins og Jónínu Ben eftir Sölva
Tryggvason, áhugi lesenda eða áhugaleysi á bókinni ræðst fremur af við-
fangsefninu en efnistökum bókarinnar eða aðferð. Auðveldlega má pirra sig
á ýmsu í kringum hana, markaðssetningu og framgöngu dreifingaraðilans
svo dæmi sé tekið. Jónína er býsna yfirlýsingaglöð í fjölmiðlum og sést
ekki fyrir þegar hún er í vígaham eins og ótal dæmi sanna bæði gömul og
ný. Ofan á allt þetta bætast svo mál eiginmanns Jónínu en hún hefur farið
mikinn í málsvörn fyrir hann og missmekklegum ummælum um konur sem
hafa ásakað hann um kynferðislega áreitni undanfarið. En þessi ritdómur er
ekki um Jónínu sjálfa eða N1 heldur um bók Sölva Tryggvasonar um Jónínu.
Bókin um Jónínu Ben er að flestu leyti hefðbundin viðtalsbók eins og
lesendur þekkja. Hratt er farið yfir sögu í lífi Jónínu framan af þótt raunar sé
þar ýmislegt í frásögur færandi. Jónína fer ung að heiman, fyrst til Reykja-
víkur en sautján ára gömul er hún flutt til Kanada, gift kona. Þar kemst hún
í kynni við líkamsrækt og eróbikk og eftir það virðist framabraut hennar
í líkamsræktarbransanum greið. Hún verður frumkvöðull í uppbyggingu
líkamsræktarstöðva, fyrst á Íslandi og seinna í Svíþjóð.
Lífshlaup Jónínu er alveg efni í eina viðtalsbók en þó fer fyrst að draga til
tíðinda þegar hún kemst í kynni við Jóhannes Jónsson í Bónus. Sá kafli er
eðlilega sá sem mesta forvitni vekur meðal þeirra sem eru á annað borð
forvitnir um Jónínu. Hún virðist fyrr en flestir aðrir hafa séð í gegn um spill-
ingu og fjárglæfra sem tíðkuðust meðal íslenskra fjárfesta og bankamanna
og það virðist lítill vafi leika á því að hún fékk að gjalda fyrir það bæði
fjárhagslega og persónulega.
Megintilgangur bókarinnar er að sýna fram á þetta, bæði með frásögn
Jónínu sjálfrar, birtingu gagna og samráði við aðra heimildarmenn. Form
bókarinnar er hið hefðbundna form viðtalsbókarinnar, Jónína hefur sjálf
orðið og segir frá en skrásetjarinn birtist ekki nema í neðanmálsgreinum
sem flestar hafa þann tilgang að greina frá því að leitað hafi verið staðfest-
inga á orðum hennar hjá öðrum, þótt þeir séu sjaldnast nafngreindir. Bókin
er að flestu leyti vel unnin, þó verður sums staðar vart við flaustur í frágangi.
Framsetningin verður á stöku stað óljós, samtölum er skotið formálalaust
inn í frásögn án þess að alltaf sé ljóst hvenær og hvar þau eiga sér stað
og tengslin milli frásagnarinnar og skjala sem birt eru í bókinni mætti vera
skýrara. Jón Yngvi Jóhannsson
Niðurstaða: Jónína Ben er málsvörn hennar og ákæruskjal á hendur and-
stæðingum hennar, ágætlega unnin viðtalsbók.
Kór Flensborgarskólans og Flensborgarkórinn leiða
saman hesta sína og syngja jólalög á svonefndum Vina-
kvöldum í Hamarssal Flensborgarskólans í kvöld og
annað kvöld.
Kór Flensborgarskólans hefur aldrei verið fjölmenn-
ari en nú og telur 90 nemendur. Flensborgarkórinn er
hins vegar skipaður 30 eldri kórsöngvurum sem allir
hafa stundað nám í skólanum og voru í skólakórnum.
Samtals munu því 120 manns standa á sviðinu í
Hamarssal Flensborgarskólans. Hrafnhildur Blomster-
berg stjórnar báðum kórum.
Flensborgarkórinn er meðal fremstu kóra lands-
ins og vann meðal annars til gullverðlauna í kóra-
keppni í Pétursborg síðastliðið sumar. Þá fór skóla-
kórinn á kóramót til Ítalíu í haust og hélt fimm
tónleika við góðar undirtektir.
Flensborgarkórarnir í jólaskapi
Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Flensborgarkórarnir héldu vortónleika á þessu ári þar sem þeir sungu meðal annars með Kristjáni
Jóhannssyni. LJÓSMYND/LÁRUS KARL INGASON
Jóladagatal Norræna hússins 1.-23. des. kl: 12.34
Jólaúthlutun Fjölskylduhjálpar Íslands
Er sem hér segir:
Reykjanesbær
Hafnargötu 29
S. 697 3521
22. des
Akureyri
Freyjusnesi 4
S. 869 0820
22. des
Reykjavík
Eskihlíð 2-4
S. 892 9603
14-15-21-22 des.
Frá kl 14:00
Gefðu góðar
stundir!
Gjafakort í Salinn er jólagjöfin!
Þú velur sjálf(ur)
upphæðina
á gjafakortinu.
Gjafakortin koma í fallegum
umbúðum og fást í miðasölu
Salarins Hamraborg 6,
s. 5700400.
Opið virka daga
kl. 14–18.
salurinn.is
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRA AF LANDSBYGGÐINNI
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem
setja „like“ við Vísi á Facebook geta
unnið óvænta vinninga í hverri viku.