Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2001, Page 15

Frjáls verslun - 01.05.2001, Page 15
FORSÍÐUEFNI SKILNAÐIR OG SKIPTING EIGNA Sá fær húsið sem skráður er fyrir því Eignir hjóna eru almennt hjúskapareignir en margir gera sár ekki grein fyrir því að skráning og þinglýsing getur skipt máli og verkar í raun eins og forkaupsréttur. Þannig er bíll eða sjón- varp, sem þú kaupir og skráir á þitt nafn, þín hjúskapareign og þú hefur rétt til að fá það í þinn hlut við skiptin gegn því að greiða maka þínum helming af markaðsverði hlutarins. Sama gildir t.d. um skrifborð eða málverk sem þú fékkst í arf. Þegar stjúpbörn gera kröfu Ég vil benda á aðra mjög mikilvæga breytingu sem þá var gerð á erfðalögunum, sem sé það nýmæli að ef hjón gera með sér erfðaskrá geta þau mælt fyrir um það, að eftirlifandi maki skuli eiga rétt á setu í óskiptu búi með stjúpniðjum, þ.e. börnum hins skammlífari. Arfur er hjúskapareign Vert að benda á að arfur er hjúskapar- eign viðkomandi erfingja sem þýðir það að hann hefur rétt á því að halda sjálfum arfinum í sinni eign gegn því að greiða maka sínum helming verðmætis hans. Hvort ykkar er skráð fyrir hluta- bréfunum? Hlutabréf eru hjúskapareign þess sem er skráður eigandi og getur hvort þeirra hjóna því haldið þeim hluta- bréfum, sem það er skráð fyrir, gegn því að greiða makanum helm- ing markaðsverðs þeirra. „Ekki stressa þig, ég sé um fjármálin" Ég verð því miður að segja að hvað sem öllu jafnréttistali í þjóðfélaginu líður þá er allt of algengt að konur fylgist ekki með því sem eiginmaðurinn er að gera í fjármálum. Stundum stafar þetta af því að maðurinn vill ekki að konan fylgist með, það er afstaðan: „Vertu þú ekkert að stressa þig yfir fjármálunum, ég sé um þau“. j Svala Thorlacius Frjáls verslun hefurfengib einn helsta lögmann landsins á svibi skilnabarmála, Svölu Thorlacius hrl, til ab svara tiu áleitnum spurningum um skilnabi og ásteytingarsteina vib skiptingu eigna. Þetta eru eignir eins og sameiginlegt fyrirtæki, hlutabréf einbýlishús, lífeyriseign maka í séreignasjóbum, arfur, bilar, málverk, sumarbústabir og svo framvegis. Eftir Jón G. Hauksson Myndir: Geir Olafsson 15

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.