Frjáls verslun - 01.05.2001, Blaðsíða 21
Institute, Southwest Airlines, Cisco Systems, Men’s
Wearhouse og New United Motor Manufacturing
Inc. (NUMMI). Þeir fjalla um hvert fyrirtæki fyr-
ir sig út frá atriðum eins og hagnaði, sögu fyrir-
tækisins, skipulagi, stjórnun og helstu stjórn-
endum. Síðan er tekið fyrir hvaða aðferðum
þessi fyrirtæki beita, m.a. við stjórnun starfs-
fólks, öflun umsækjenda og þjálfun og
hvernig umbunarkerfið styður við menn-
ingu fyrirtækisins, gildi og tilgang.
Lítil startsmannavelta hjá SAS Institute
SAS Institute er stærsta einkarekna hug-
búnaðarfyrirtækið í heiminum og rekur 68
skrifstofur um allan heim með samtals um
5.400 starfsmenn. 97% Fortune 100 fyrir-
tækjanna notar SAS hugbúnað. SAS Institute
býður verðandi starfsmönnum ekki upp á
hlutabréf eða bónusa. Þrátt fyrir það laðar fyrir-
tækið til sín marga umsækjendur og starfs-
mannaveltan er undir 4% í starfsgrein þar sem
starfsmannavelta undir 20% telst góð. Stefna fyrir-
tækisins er að byggja upp varanleg tengsl við við-
skiptavini, samstarfsaðila og starfsmenn. Hugmynda-
fræði þess er að koma fram við alla af sanngirni og á jafn-
réttisgrundvelli og að skapa vinnustað þar sem starfsfólk fær
að njóta sín. Áherslan er á gagnkvæmt traust og virðingu. SAS
trúir því að ef komið er fram við starfsfólk sem ábyrgðarfulla
einstaklinga þá muni þeir endurgjalda fyrirtækinu með tryggð
og auknu vinnuframlagi. Starfsfólk fær umboð til athafna og er Bókin Hidden Value: How Great Companies Achieve Extraordinary
treyst fyrir að skila góðri vinnu. SAS trúir því að þreyttur og Results with Ordinary People. O’Reilly og Pfeffer koma með lifandi
vinnuþjakaður starfsmaður skili ekki góðri vinnu og því er haft dœmifrá átta fyrirtœkjum. FV-mynd: Geir Ólajsson
að leiðarljósi að lágmarka yfirvinnu starfsfólks.
STJÓRNUN BÓKIN FflLIN GILDI
Cisco hefur viðskiptavininn í fyrirrúmi Cisco systems er fyrir-
tæki með 30.000 starfsmenn sem selur lagnir og tengibúnað
fyrir Internetið. Fyrirtækið hefur vaxið gífurlega frá stofnun
þess fyrir tæpum 20 árum og er það hinum mikla vexti í Inter-
netnotkun að þakka en einnig stöðugum kaupum á samkeppn-
is- og samstarfsaðilum. Cisco kaupir upp fyrirtæki til að öðlast
þekkinguna sem býr í starfsfólkinu. Á undanförnum árum hef-
ur Cisco gengið í gegnum ekki færri en um 60 sameiningar,
sem hafa auðvitað tekist misvel. Starfsmannaveltan hjá Cisco
er mjög lítil, fyrirtækið nær að halda um 95% þeirra sem hefia
störf hjá fyrirtækinu. Það er því þrennt sem forstjóri Cisco,
John Chambers, leggur áherslu á hjá Cisco. I fyrsta lagi að við-
skiptavinurinn verði alltaf að vera í fyrirrúmi. I öðru lagi að
komast hjá því eftir fremsta megni að segja upp fólki. Og í
þriðja lagi að fylgjast vel með tæknibreytingum og aðlagast
þeim.
Áhersla á „mjúku málin“ Fyrirtæki sem tekin eru fyrir í bók-
inni hafa náð lengra en önnur fyrirtæki í sömu starfsgrein. Það
sem aðgreinir þau frá öðrum er að frekar en að einblína á færni
fólks við ráðningar ráða þau til sín fólk sem hefur rétt viðhorf
og hentar menningu fyrirtækisins. Þau fjárfesta í starfsfólkinu
og gefa því tækifæri. Þau deila upplýsingum með starfsfólkinu,
sem gerir það að verkum að því finnst að það eigi í fyrirtækinu.
Leiðtogar fyrirtækjanna átta hafa snúið leiðtogahugtakinu við:
Fremur en að taka völdin gefa þeir starfsfólkinu vald og umboð
til athafna. Áhersla er lögð á hópvinnu og hver einasti starfs-
maður er mikilvægur fyrirtækinu. Þrátt fyrir þessa miklu
áherslu á „mjúku“ málin einblína þessi fyrirtæki engu að síður
á árangur. Þau hafa skýr frammistöðuviðmið og þeir sem ná
ekki að uppfylla þau skynja fljótlega að þeir henta ekki inn í
fyrirtækjamenninguna. Veikleikar bókarinnar eru miklar end-
urtekningar, skýringar eftir á, yfirborðsleg greining á fyrirtækj-
unum, skortur á tengingum við hvatningarmódel og skortur á
verkfærum eða aðferðum til að geta metið hvort tiltekið fyrir-
tæki sé á réttri leið, þ.e. tæki til að geta spáð fyrir um árangur í
framtíðinni. Styrkleikar bókarinnar liggja á hinn bóginn í lifandi
og sannfærandi dæmum frá ólíkum fyrirtækjum í mismunandi
rekstri. Áherslan á mikilvægi svokallaðra mjúkra mála í stefnu-
mótun fyrirtækja er áhugaverð og sannfærandi. Þeir sem vilja
fræðast meir um fyrirtækin átta og hvernig þau ná fram því
besta hjá starfsfólkinu ættu endilega að verða sér úti um eintak
afbókinni.tíl
Fyrirtækin, sem tekin eru fyrir í bókinni, hafa náð lengra en önnur fyrirtæki í sömu starfsgrein.
Það sem aðgreinir þau frá öðrum er að frekar en að einblína á færni fólks við ráðningar ráða þau
til sín fólk sem hefur rétt viðhorf og hentar menningu fyrirtækisins.
21