Frjáls verslun - 01.05.2001, Blaðsíða 22
Halldór Jón Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, er gestapenni Frjálsrar verslunar að þessu sinni: „Uppkaup á 100% eign-
arhlut í öðrum bönkum virðist vera það samstarfsform sem ríkjandi er meðal stórra fjármálasamsteypa á Norðurlöndum."
Halldór Jón Kristjánsson, bankastjóri
Landsbankans, segir hér frá sam-
runum stærstu banka Noróurlanda og
bendir á að stærsti banki Norður-
landa, Nordea, sé hundrað sinnum
verðmeiri en Landsbankinn. Hann
telur nauðsynlegt að sameina fleiri
fjármálafyrirtœki hér heima. Þá segir
Halldór Jón að húsnæðislánastarf-
semin sé eðlilegur og mjög mikilvægur
þáttur í rekstri allra norrænna banka
og telur brýnt að íbúðalánasjóður verði
virkur þátttakandi í áframhaldandi
samrunaferli hér á landi.
Eftir Halldór Jón Kristjánsson
Hagræðing og samþjöppun á norrænum ijármálamarkaði heldur
áfram af miklum kraftí og má í þvi sambandi nefna að Nordea-
bankasamstæðan hefur lokið kaupum á dönskum og norskum
bönkum (Kreditkassen og Unibank) og er nú orðinn stærsti banki Norð-
urlanda. En fleiri sameiningar eru á meðal stærstu banka Norðurland-
anna. Fyrst má nefna að Danske Bank hefur keypt Fokus bankann í Nor-
egi og sameinast RealDanmark í Danmörku. Þá hafa SEB og Swedbank
ákveðið að sameinast og er sá samruni með fyrirvara um samþykki sam-
keppnisyfirvalda, en í ljósi alþjóðlegrar þróunar er búist við að samrun-
inn verði samþykktur. Ennfremur hefur Svenska Handelsbanken nýlega
keypt Midtbank sem er millistór banki í Danmörku. Loks má nefna að
finnska banka- og tryggingasamstæðan Sampo er í samkeppni við Den
Norske Bank um kaup á norska tryggingafélaginu Storebrand.
Fimm stærstu banhar Norðurlandanna Fjórar bankasamstæður eru nú
stærstu ijármálafyrirtækin á Norðurlöndum. Fimmti stærsti banki
Norðurlanda, Den Norske Bank, er aðeins um 25% af stærð fjórða
stærsta bankans og aðrar bankasamstæður á Norðurlöndum eru mun
minni. Meðfylgjandi er tafla yfir markaðsverð fimm stærstu banka
Norðurlanda í samanburði við Landsbanka Islands og Islandsbanka.
Þróunin á Norðurlöndum leiddi til samruna milli landa í kjölfar þess
að hagræðingarmöguleikar sem fyrir hendi voru í hveiju norrænu ríkj-
anna fyrir sig voru fullnýttir. Líklegt er að við væntanlegan samruna SEB
og Swedbank ljúki samrunaferli stærri eininga á Norðurlöndum, að Is-
landi undanskildu. Talið er ólíklegt að til samruna komi milli banka inn-