Frjáls verslun - 01.05.2001, Blaðsíða 54
„Gullni hringurinn“, það þarf ekki ab fara mörgum orðum um Mjóifjörður, œgifógur náttúra eftir hrikalegan akstur.
kraftana við Geysi í Haukadal.
12. Mjóifjördur og Borgorfjörður cystri Margir fara til Egilsstaða og aka að nærliggjandi fjörðum, eins og Seyðisfirði, Reyð-
arfirði, Eskifirði, Norðfirði og Fáskrúðsfirði. En við nefnum hér tvo firði sem margir gefa sér ekki tíma til að sækja heim; Mjóafjörð
og Borgarijörð eystri. Akstur niður að Mjóafirði og út að Dalatanga er vissulega svolítið hrikalegur en þarna blasir við ægifögur nátt-
úra. Borgarijarður eystri sendir frá sér sömu kraftana, þar fara saman fámenn byggð og fagur ijallahringur.
FERÐAAÆTLUN HERJOLFS
MAÍ-SEPTEMBER Frá Frá
Vestmannaeyjum Þorlákshöfn
Alla daga Aukaferóir: Mánud.*, 08.15 12.00
fimmtud., föstud., sunn ud. 15.30 19.00
Breyting veróur á áætlun vegna þjóðhátíðar
Vestmannaeyinga. *Frá 11. júní til og meó
3. september verða einnig aukaferðir á mánudögum.
Fariö er frá Umferðarmiðstöóinni í Reykjavík
Nánari upplýsingar:
Vestmannaeyjar: Sími: 481-2800 • Fax: 481-2991
Þorlákshöfn: Sími: 483-3413 • Fax: 483-3924
HERJÓLFUR
Sími: 481 2800 / www.herjolfur.is
13. Sigling út í Vigur og Jökulfirói Sigling út í eyjuna Vigur í ísafjarð-
ardjúpi með Hafsteini og Kittý þar sem hrikaleg fjöll Djúpsins blasa hvar-
vetna við lætur engan ósnortinn. Gönguferð um Vigur er ferð um ævintýra-
heim þar sem flölskrúðugt fuglalífið og stórkostíegt útsýnið snerta djúpt.
Góður veitingastaður er úti í Vigur. Þá bjóða Hafsteinn og Kittý upp á sigl-
ingu út í Jökulfirði sem eru heill heimur út af iyrir sig.
14. Göngufcrö um Surtshelli Ferð í Húsafell er tilvalin íyrir fjöl-
skylduna, þar er hægt að komast í sund, spila golf, fara í útreiðartúr eða
fara í snjósleðaferð upp á Langjökul. Allt gott og gilt. En við mælum þó
eindregið með því að ljölskyldan fari upp að Surtshelli og skoði króka
hans og kima. Þetta er sáraeinföld ferð og þægilegt er að fara um hell-
inn. Surtshellir og aðrir hellar eru ekki aðeins undirheimar heldur fyrst
og fremst undraheimar.
15. Sigling mcö Logorfljótsormi og óó í fltlovík Það var skemmti-
leg nýjung í ferðaþjónustu á Austurlandi þegar fljótabáturinn Lagar-
fljótsormurinn var tekinn í notkun sumarið 1999. Gráupplagt er að taka bát-
inn snemmdægurs inn í Atiavík í Hallormsstaðaskógi, eyða deginum þar í
göngu- og lautarferðir um einhvern fegursta skóg landsins og taka síðan
bátinn aftur til baka inn til Egilsstaða þegar degi fer að halla.
16. Vestmonnocyjor Nánast allir sem sækja Vestmannaeyjar heim fá
sömu tilfinninguna; þeir eru komnir á einhvern veginn allt öðru vísi stað.
Við mælum með gönguferð um nýja hraunið, sem varð til í gosinu árið
1973, siglingu í kringum Heimaey og áningu í Herjólfsdal. 1 gönguferð um
nýja hraunið sér maður einstaka breytingu móður náttúru á eyjunni. I Vest-
mannaeyjum er sömuleiðis einhver allra skemmtilegasti golfvöllur lands-
ins. Ferð til Eyja er í öruggu sæti á topp tuttugu listanum.
54