Frjáls verslun - 01.05.2001, Blaðsíða 70
FÓLK
Þórarinn Ævarsson, framkvœmdastjóri Domino 's á Islandi: „Eg er með íþróttatösku hérna á skrifstofunni
sem hefur að geyma vinnufót pizzubakara. Egget því stokkið til án fyrirvara ogaðstoðað samstarfsfólk mitt
ef svo ber undir.“ FV-mynd: Geir Ólafsson.
Sambýliskona Þórarins
heitir Guðrún Snorradóttir
og þau búa í Garðabæ. Hann
á eina dóttur, Unni Þórarins-
dóttur, utan sambands.
„Hvað áhugamál mín varð-
ar eru þau helst af öllu við-
skipti af ýmsu tagi. Eg les
talsvert um viðskiptí og þykir
margt í viðskipaheiminum
spennandi. Samstarfsmenn
mínir í stjórn fyrirtækisins
eru mjög reyndir menn í við-
skiptalífinu. Það er margt í
þeirra fari sem ég get tileink-
að mér og að vinna með þeim
er góður skóli. Reyndar hef
ég gaman af fleiru, til að
mynda ferðalögum, bæði hér
heima og erlendis. Eg er að
vísu nýlega kominn heim eft-
ir ijögurra ára dvöl erlendis
og því mun ég leggja meiri
áherslu á að ferðast hér
heima á næstunni; skoða
Þórarinn Ævarsson, Dominos
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur
Starf mitt felst að mestu í
þvi að móta stefnu fyrir-
tækisins og sjá um mark-
aðsmálin," segir Þórarinn Æv-
arsson, framkvæmdastjóri
Domino's á Islandi. „Eg er
mikið á vettvangi og gætí þess
að fýlgjast grannt með rekstr-
inum. Samkeppnin er mikil og
til að ná árangri verður maður
að vera fyllilega meðvitaður
um öll smáatriðin. Eg er til að
mynda með íþróttatösku
hérna á skrifstofunni sem hef-
ur að geyma vinnuföt pizzu-
bakara. Eg get þvi stokkið til
án fyrirvara og aðstoðað sam-
starfsfólk mitt ef á þarf að
halda. Þetta vita vinnufélagar
minir og hika ekki við að biðja
um aðstoð ef mikið liggur við.
A móti kemur að með þessu
hef ég miklu nánara samstarf
við hinn almenna starfsmann
og ávinn mér með því traust
og skilning. Með mér stendur
svo geysimargt gott fólk sem
sér tíl þess að markmiðum
mínum og eigenda fyrirtækis-
ins sé framfylgt.“
Þórarinn er fæddur árið
1965 í Reykjavík en ólst upp í
Kópavogi. Hann var í Kárs-
nesskóla og Þinghólsskóla
sem barn og unglingur en
segist hafa verið kominn með
námsleiða eftir þá skóla-
göngu og ákveðið að skella
sér út á vinnumarkaðinn.
„Eg fór að vinna sem
verkamaður með handskóflu
og það var mjög skemmtileg-
ur og lærdómsríkur tími fyrir
mig. Eg vissi hreint ekkert
hvað ég vildi gera í framtíð-
inni og langskólanám höfðaði
ekki beint til mín. Eg starfaði
sem verkamaður hátt í tvö ár
meðan ég var að hugsa mig
um og skellti mér að því
loknu í bakaranám sem ég
lauk rúmlega tvítugur að
aldri. Mér þótti starf bakara
mjög áhugavert en 22 ára var
ég kominn með réttindi bak-
arameistara og varð yfirbak-
ari hjá Sveini Bakara í ein 6
ár. Eg flutti síðan til Sviss í
einn vetur til þess að veita æv-
intýraþránni útrás og líkaði
þar ágætlega. Það var síðan
fyrir algera tilviljun að ég
fékk starf hjá Domino's, sem
var á þeim tíma að hefja starf-
semi hér á landi. Eg var kom-
inn aftur til vinnu hjá Sveini
bakara, en þá var farið að
halla verulega undan fæti hjá
honum. Mörgum kollegum
mínum þótti ég taka niður fyr-
ir mig að fara að vinna á „ein-
hverjum pizzustað" en ég
ákvað að slá til.“
Þórarinn segir það hafa
verið nokkuð sérstakt að
heíja vinnu hjá svo stóru fyrir-
tæki sem Domino's er. Aginn
sé mikill, allt skipulagt og góð
stjórn á öllu. „Eg fékk til mín
amerískan þjálfara sem bein-
línis þjálfaði mig daglega til
starfa og kenndi mér öguð
vinnubrögð. Mér þótti það
sem hann sagði og kenndi
fjarstæðukennt og að það
gæti aldrei gengið hér á landi
en smám saman kom í ljós að
það var framkvæmanlegt.“
landið og njóta þess að vera
hér að nýju.
Eg hef einnig gaman af því
að fara á seglbretti en það er
fremur erfitt hér á landi
vegna veðurs. Eg hef þó lítið
stundað þá íþrótt upp á
síðkastið þar sem ég hef lít-
inn tima - reyndar hefðbund-
in afsökun - en vonast til að
fljótlega gefist til þess meiri
tími, hvort sem það verður
hér heima eða erlendis. Eg
hef einnig áhuga á bílum og
hef til að mynda talsvert gam-
an af Formúlunni og nýt þess
að sitja og horfa á hana.
En eitt stærsta áhugamál
mitt er nú samt vinnan, því er
ekki að neita, og það kemst
fátt annað að, þessar vikurnar
að minnsta kosti. Það er mjög
skemmtilegt að hafa fengið
tækifæri til að taka þátt í
stofnun fyrirtækis, sjá það
vaxa, dafna og ná árangri. Eg
er mikill keppnismaður og
það á vel við mig að starfa í
umhverfi sem þessu þar sem
samkeppnin er gríðarleg." 09
70