Frjáls verslun - 01.05.2001, Blaðsíða 48
Saga árangurs! Þeir Ingi Guðjónsson og Róbert Melax ruddu brautina fyrir fimm árum þegar frelsi lyfjafræðinga til að stofna lyjjabúðir var
aukið. Þeirhafa uþþskorið vel. Þeirbyrjuðu með eina verslun, Lyfiu tLágmúla, en eiga núna 45% ístœrstu lyfiabúðakeðju landsins, Lyfiu, ásamt
því að reka keðjuna. FV-myndir: Geir Ólafsson
Þeir Róbert Melax og Ingi Guðjónsson ruddu braut-
ina jyrir fimm árum þegar frelsi lyfafrœðinga til að
stofna lyfabúðir var aukið. Þeir hafa heldur betur
ávaxtað sitt pund á þessum fimm árum. Þeir eiga
45% hlut í lyfabúðakeðjunni Lyfu, dótturfélagi
Baugs, en hún rekur lyfaverslanir undir heitunum
Lyfa ogApótekið. Tvær lyfabúðakeðjur eru núna
allsráðandi á þessum markaði, Lyfa og Hagræði sem
rekur lyfaverslanir undir heitinu Lyfog heilsa.
Eítir Vigdísi Stefánsdóttur
eir Róbert Melax og Ingi Guðjónsson þóttu býsna áræðnir
þegar þeir lögðu út í að stofna lyfjaverslun með nýjum
áherslum sem margar hveijar þóttu byltingarkenndar.
Versluninni var fundinn staður í Lágmúla og hlaut hún nafnið
Lyfja. Hugsið ykkur, það eru ekki nema rúm fimm ár síðan! Þeir
voru fátækir lyljafræðingar en ævintýri þeirra hefur borgaði sig.
Verslunin Lyfja í Lágmúla er langsöluhæsta apótek landsins og
þeir Róbert og Ingi, sem byijuðu með fátt annað en þekkingu
fýrir fimm árum, eiga nú 45% hlut í lyíjakeðjunni Lyfju, sem velt-
ir á þriðja milljarð króna, og reka sömuleiðis keðjuna, en innan
hennar eru tvö söluhæstu apótek landsins; Lyfla í Lágmúlanum
og Apótekið í Smáranum.
Ævintýrið hófst á árinu 1996 þegar tóku gildi ákvæði nýrra
lyflalaga sem tryggðu frelsi í stofnun og rekstri lyfjabúða. Þessi
lagabreyting hafði að vonum mikil áhrif á lyfjamarkaðinn þar
sem lyfsöluleyfum hafði áður verið úthlutað af yfirvöldum og
apótekin í raun skipt með sér markaðssvæðum. Samkeppni var
nánast engin og lyijaverð var það sama í öllum apótekunum.
Lyijaverð hefur lækkað talsvert síðan og samkeppni aukist mjög
milli apóteka en Lyfla í Lágmúla varð fyrsta apótekið í Reykjavík
til þess að vinna samkvæmt nýjum lögum.
„Við stigum ákveðið skref með því að kaupa húsnæði og selja
síðan auglýsingu í Morgunblaðið þar sem við óskuðum eftir
starfsfólki í ýmis störf í nýtt apótek með breyttum áherslum,"
segir Ingi Guðjónsson, einn eigenda Lytju. „Það var ákvæði í
lyfjalögunum um opnun lyijabúða sem átti að taka gildi 1. nóvem-
ber 1995. Á hinn bóginn var greinilegt að þáverandi heilbrigðis-
ráðherra hafði hreint engan áhuga á því að þetta lagaákvæði öðl-
aðist gildi, en skv. því gat hvaða lytjafræðingur sem var sett á
stofn apótek að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Daginn eftir
auglýsinguna kom ráðherra fram í sjónvarpi og tilkynnti að fresta
ætti gildistöku þessa hluta í lögunum um óákveðinn tíma. Þetta
setti að sjálfsögðu allar okkar áætlanir úr skorðum auk þess sem
við misstum báðir vinnuna. Kerfið sá um sína. Þegar Alþingi kom
saman um haustið var þetta fyrsta mál á dagskrá og ákveðið var
48