Frjáls verslun - 01.05.2001, Blaðsíða 66
FYRIRTÆKIN fl NETINU
Björg Olafsdóttir, framkvœmdastjóri Friðriks J. Skúlasonar
ehf, bendir t.d. á Taste.co.uk um mat og veitingahús í
London, og Imdb.com um allt sem viðkemur kvikmyndum.
Björg Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Friðriks J.
Skúlasonar ehf., notar Netið talsvert sem upplýs-
ingamiðil, bæði til að fylgjast með þróun á ijármála-
markaðnum, td. Bi.is og Sedlabanki.is og leita upplýs-
inga um erlenda og innlenda aðila, með viðskiptahags-
muni í huga. Netið nýtist henni einnig vel í frítímanum.
F-secure.com Heimasíða samstarfsaðila okkar í Finn-
landi sem inniheldur upplýsingar um tölvuveirur og
tölvuöryggismál.
Barbie.C0m og POkemoo.com Þegar dóttir mín kemur
í heimsókn eru vinsælustu síðurnar barbie.com og
pokemon.com.
Taste.CO.Uk Gegnum þennan vef er hægt að finna veit-
ingahús sem gaman væri að heimsækja í London, hvort
sem maður vill afrískan, asískan eða ítalskan mat.
TTaveltammeflt.de/kanareR/hotels/ Þessi vefur inni-
heldur góðar lýsingar á flestum ef ekki öllum gististöð-
um á Kanaríeyjum ásamt ijölda mynda.
Search.britaflflica.com Einn besti upplýsingabrunnur
sem hægt er að komast í.
Á ArtChive.COm er hægt að ná í myndir af meistara-
verkum heimsins.
Marthastewart.com Erkihúsmóðirin í Ameríku,
Martha Stewart, segir manni hvað á að hafa í matinn,
gefa í afmælisgjafir og frá öllu hinu sem maður vissi
ekki að ofurhúsmæður ættu að gera.
Imdb.com kvikmyndagagnagrunnurinn er auðvitað
nauðsynlegur en þar er hægt að finna allt um allar bíó-
myndir. S!j
www.marel.is Marel
rekur upplýsingavef á
ensku, íslensku og rúss-
nesku sem ekki virðist
mikið í lagt. Vefurinn er í
bláum og hvítum lit, frá-
hrindandi í uppsetningu
og þurr í efnislegri fram-
setningu. Þjónar þó til-
gangi því að þeir eru sjálf-
sagt fáir sem fara inn á
vefinn í öðrum en viðskiptalegum tilgangi. Ekki verður betur séð en
að nauðsynlegar upplýsingar séu á vefnum. Myndir eru nokkrar og þá
af vélum fynrtækisins. Þegar blaðamaður skoðaði heimasíðuna voru
þar virkar síður um sýningar. Allt efiii vantaði inn á þessar síður. QJj
WWW.Sif.iS Heimasíða
SIF er dæmi um síðu þar
sem afar djúpt er á allar
upplýsingar. Forsíðurnar
eru tvær. Fyrst birtist
mynd af hafi með lógói
fyrirtækisins þar sem
hægt er að velja tungu-
mál, svo birtist nokkurs
konar undirforsíða og
þar er hægt að smella á
Fyrirtæki SÍF, Vörur, Fjárreiður og Starfsmenn. Undir Fyrirtæki
birtist listi yfir móðurfyrirtækið og dótturfyrirtæki þess með tak-
mörkuðum upplýsingum. Eina síðan sem heppnast sæmilega er listi
yfir starfsmenn. Lógóin eru á sínum stað en aðrar myndir eru litlar
og fáar og segja lítið. 33
www.grandi.is Grandi
hf. gerir heiðarlega til-
raun til að reka lifandi
upplýsingavef en vantar
gott átak til að takist og úr
verði fallegur og virkur
vefur. Á óreiðukenndri
forsíðu eru fréttir með
myndum. Það er gott, svo
langt sem það nær. Ekki
er gert ráð fyrir að aðrir
en innvígðir skoði vefinn því að efrii er litið sem ekkert unnið. Mynd-
ir eru litlar og ekki hægt að stækka þær með því að tvísmella. Galli hve
alltof littar mannamyndirnar eru. 33
★ Lélegur
★ ★ Sæmilegur
★ ★★ Góður
★★★★ Frábær
Miðað er við framsetningu og útlit, upplýsinga- og fræðslugildi, myndefni og þjónustu.
Guðrún Helga Sigurðardóttir.
ghs@talnakonnun.is
66