Frjáls verslun - 01.05.2001, Blaðsíða 46
Gubrún Barbara Tryggvadóttir og Guðjón Ólafur Sigurbjartsson, eigendur Tanna. „Ég sé að mestu um þetta daglega en Guðjón kemur meira
að stefnumótandi aðgerðum og svo sér hann að mestu um allt sem viðkemur tölvukerfinu, “ segir Guðrún Barbara. Mynd: Geir Ólafsson
förum heim og höfum litla þörf fyrir að ræða hana heima
nema eitthvað sérstakt komi til.“ Guðjón er viðskiptafræðing-
ur að mennt og segir Guðrún hann vera verðmæta viðbót þó
svo hún hafi meiri reynslu af sölumennsku en hann. „Hann
kemur inn í fyrirtækið með íjölmargar góðar hugmyndir en
kannski hefur það komið mér svolítið á óvart hvað hann
hefur geysilega gaman af því að selja. Hann býr enn yfir eld-
móði, sem ég ef til vill hef misst að einhverju leyti, og það
skilar sér svo sannarlega til fyrirtækisins.“
Þau hjón eru sammála um að umburðarlyndi sé það sem
mestu máli skipti þegar hjón bæði vinna og búa saman. „Auð-
vitað kemur eitt og annað upp á hjá okkur, annað væri óeðli-
legt,“ segir Guðrún. „Við höfum ekki beina verkaskiptingu á
milli okkar en þó er hún til staðar á þann veg að ég sé að
mestu um þetta daglega en Guðjón kemur meira að stefnu-
mótandi aðgerðum og svo sér hann að mestu um allt sem við-
kemur tölvukerfmu. Ragnar sér að mestu um fjárhagsbók-
haldið." Þau segja bæði mikilvægt að hafa áhugamál utan
vinnunnar til að öðlast ferskari hugsun og kynnast fólki á öðr-
um forsendum. Einnig að gæta þess að taka ekki vandamálin
eða vinnunna alltaf með sér heim; ræða málin frekar í vinn-
unni. Segja það gott fyrir fólk að vinna saman á þennan hátt
ef það hefur þroska og treystir sér til. Það þroski fólk og geri
því kleift að kynnast makanum á öðrum vettvangi en heimil-
inu. Alagið sé oft mikið en um leið sé um að ræða margs kon-
ar ávinning, bæði persónulega og í starfi. HH
Gunnar Hilmarsson og
Kolbrún Petrea Gunnarsdóttir, GK:
Vinnum þegar
börnin sofa
Þau eru ung, til þess aö gera nýbyrjuð að vinna sam-
an, en segja það góða líjsreynslu og að þau myndu
ekki vilja hafa farið á mis við það. Hjónin Gunnar
Hilmarsson og Kolbrún Petrea Gunnarsdóttir reka
saman verslanirnar GK á Laugavegi, sem opnaði
1997, og í Kringlunni, sem opnaði 1999. Þau eiga
tvö lítil börn og segjast heppin að geta unnið saman.
Við höfum það að reglu að hætta að vinna þegar krakkarn-
ir koma heim og notum tímann þar til þau eru sofnuð til
að sinna þeim og eiga með þeim stund,“ segja þau.
46