Frjáls verslun - 01.05.2001, Blaðsíða 28
Helgi Njálsson, einn afeigendum Iðunnar. „Viðskiptavinir afsvæðinu austan við Kringluna komu bara alls ekki vestur í bæ ogþví fannst okk-
ur rökrétt að leita eftir húsnæði í Kringlunni, miðbœnum eða Smáranum," segir hann um tildrög þess að oþna verslun í Kringlunni.
Mynd: Geir Olafsson
könnunin sýndi að við náðum einfaldlega ekki til íbúa í aust-
urhluta borgarinnar. Viðskiptavinir af svæðinu austan við
Kringluna komu bara alls ekki vestur í bæ og því fannst okk-
ur rökrétt að leita eftir húsnæði í Kringlunni, miðbænum eða
Smáranum. Smáralindin er ekki tilbúin og húsið sem við vor-
um að velta fyrir okkur á Laugaveginum er ennþá á bygging-
arstigi. Eg ræddi við þá hjá Þyrpingu og sagði þeim hvernig
húsnæði við værum að leita eftir. Við höfðum ekki áhuga á
því að opna mjög stóra verslun i upphafi. Við vildum hafa
hana grunna svo að fólk sæi vel inn í búðina. Þeir hjá Þyrp-
ingu tóku okkur mjög vel og þegar þetta verslunarhúsnæði í
Kringlunni losnaði virtist það besti kosturinn," svarar hann.
Iðunn opnaði verslunardyrnar í Kringlunni í fyrsta skipti
þann 4. maí og var strax vel tekið. Helgi segist alltaf hafa gert
ráð fyrir að einhver samdráttur yrði úti á Nesi en hann hafi
ekki orðið nærri eins mikill og búist hafi verið við. Iðunn velti
50 milljónum króna allt árið í fyrra og fyrsti mánuðurinn í
Kringlunni skilaði 30 prósenta veltuaukningu miðað við sama
tíma í fyrra en hjá Iðunni hefur salan alltaf verið langbest í
maí, mun betri en í desember. „Við erum núna að fá nýja við-
skiptavini því að hingað kemur fólk, sem þekkir vöruna en
hefur ekki nennt að fara út á Nes. Hérna ætlum við að auka
veltuna því að það borgar sig ekki að standa í þessari fjárfest-
ingu öðruvísi. Við gerum ráð fyrir að það sé nýjabrum á
þessu fyrst en við horfum til vetrarmánaðanna og veltum fyr-
ir okkur hvernig þeir muni koma út. Maður rennir blint í sjó-
inn með þetta,“ segir Helgi.
Maður Situr ekki hjá... Það er heilmikil breyting þegar jafn
rótgróin verslun og Iðunn opnar útibú í einni aðal verslunar-
miðstöð landsins og því hljóta viðskiptavinir að velta fyrir sér
hvort frekari breytinga sé að vænta. Helgi segir þó að ekki sé
neinna stórra breytinga að vænta í bráð en að sjálfsögðu sé
vöruúrvalið alltaf í endurskoðun. „Ef vara frá einhverju
ákveðnu fyrirtæki selst ekki þá fer hún strax út. Við erum
með góða kjarnavöru núna, góð vörumerki, en maður verður
alltaf að vera í viðbragðsstöðu og fylgjast með því hvað selst
og hvað ekki. Aætlunin er sú að reka þessa verslun næstu tvö
til þijú árin og sjá hvernig verslunin þróast úti á Nesi, hvort
fólk heldur áfram að koma þangað. Framtíðin er í svona versl-
unarkjörnum," segir hann.
Búast má við harðri samkeppni og jafnvel gríðarlegum
breytingum á næstu misserum þegar verslunarmiðstöðin í
Smáralind hefur starfsemi en Helgi tekur því af rósemi. „Nýj-
ar verslanamiðstöðvar hafa áhrif á alla sem ekki eru í Kringl-
unni eða á Laugaveginum, það væri fáránlegt að halda annað.
Okkar reynsla er sú að vöxturinn stöðvast tímabundið, í eitt
eða tvö ár, en svo hrökkva breytingarnar til baka. Fólk fer
þangað sem það fær góðar vörur. Ekki er víst að allir ijúki
upp til handa og fóta og fari að versla í Smáralind, eingöngu
af því að búið er að opna þar. Urvalið verður að vera gott. Hér
í Kringlunni er ákveðið vöruúrval, ef til vill frekar merkjavara
en hitt, og enginn veit hvernig Smáralindin verður. Hún er
óskrifað blað. A Laugaveginum er ákveðið úrval af verslunum
og hann hefur sinn sjarma. Spurningin er því hvað Smáralind-
in gerir. Allir reyna að gera eitthvað til að bregðast við yfirvof-
andi samkeppni. Maður situr ekki hjá og leyfir öðrum að taka
við,“ segir hann.
Helgi er sannfærður um að báðar verslanir Iðunnar standi
sig vel í harðnandi samkeppni. Kringlan er jú nafli verslunar
hjá mörgum höfuðborgarbúum og verslunin úti á Nesi er
móðurfyrirtækið sem flestir þekkja. „Aðgengi verður að vera
gott til að fólk komi til að versla. Við höfum lengi rekið þessa
verslun úti á Nesi. Fólk veit um hana, veit að þar er auðvelt að
leggja og stutt að ganga inn í verslunina. Það hefur gengið að
vörunni vísri og það er mest um vert. Við teljum vörur okkar
hafa fullt erindi til fólks og þannig verður það áfram,“ segir
hann að lokum. ffij
28