Frjáls verslun - 01.05.2001, Blaðsíða 74
Guðný Hansdóttir, yfirflugfreyja hjá Flugleiðum: „Ég þarfaðfljúga afog til svo ég muni eftir aðstœðunum í
vélunum og einnig til að athuga hvort ekki séfarið eftir vinnulagsreglum okkar, sem eru nokkuð strangar.“
FV-mynd: Geir Olafsson.
„Eftir námið kom ég hing-
að heim aftur og byrjaði að
fljúga," segir Guðný. „Ég ætl-
aði aldrei að fljúga svona
lengi en þótti það gaman og
það var erfitt að hætta. Ég
hlakkaði til að mæta í vinn-
una á hverjum degi og það er
dýrmætt.
Svo bauðst mér þessi
staða fýrir rúmum tveimur
árum en það er mjög óvana-
legt að svo ungri manneskju
sé boðið slíkt því hingað til
hafa eldri og reyndari konur
gegnt henni. Reyndar hef ég
unnið hjá Flugleiðum frá því
ég fór að vinna úti og hef
verið víða hjá fýrirtækinu og
þekki þannig starfsemina
nokkuð vel. Ég hef m.a.
unnið í Keflavík og veit því
gjörla hvernig ástandið er
þar en það hjálpar mér gífur-
lega þegar ég þarf að hafa
samskipti við fólk þar.“
Hvað áhugamál snertir
segir Guðný útivist og hreyf-
Guðný Hansdóttir, Flugleiðum
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur
r
sumrin starfa um 600
flugfreyjur og flugþjón-
ar hjá Flugleiðum og
Guðný Hansdóttir, yfirflug-
freyja hjá Flugleiðum, þekkir
þau öll með nafni; segir að
það sé markmið hjá sér að
þekkja starfsfólkið til að
halda persónulegum tengsl-
um við það. Hún hefur gegnt
starfi yfirflugfreyju í rúm-
lega tvö ár en þar á undan
starfaði hún sem flugfreyja í
fimm ár.
„Hér eru um 380 stöðu-
gildi að jafnaði en yfir sumar-
tímann fjölgar stöðunum og
eru þá um 600,“ segir Guð-
ný. „Flugfreyjustarfið er að
mörgu leyti sérstakt, það er
unnið við þröngar og erfiðar
aðstæður og þess oft krafist
að galdrað sé fram eitthvað
sem við fýrstu sýn virðist
ómögulegt, en einhvern veg-
inn tekst þetta alltaf og fólk
fer yfirleitt brosandi frá
borði. Reyndar heyrum við
oftast aðeins af því sem
aflaga fer en almennt séð
gengur þetta mjög vel og ég
er satt best að segja afskap-
lega stolt af starfsfólkinu
mínu.“
Guðný segist vera tals-
vert mikið á skrifstofunni en
fljúga þó af og til, mest til að
halda sér við. „Ég þarf að
fljúga af og til svo ég muni
eftir aðstæðunum í vélunum
og einnig til að athuga hvort
ekki sé farið eftir vinnulags-
reglum okkar, sem eru
nokkuð strangar. Ég hef líka
afskaplega gaman af því að
fljúga og kann vel við mig
um borð í flugvél."
Guðný ólst upp í Banda-
ríkjunum fýrstu sjö árin en
flutti svo heim til íslands.
Hún segist hafa búið víða og
gengið í nokkra skóla, m.a.
Melaskóla, Kársnesskóla og
Ölduselsskóla, en það hafi
gert að verkum að hún eigi í
dag marga vini og kunningja.
„Þetta mótaði persónu-
leika minn mjög og ég er
mjög opin og fljót að kynnast
fólki fýrir vikið,“ segir hún.
„Það eru eiginleikar sem
koma sér vel í þessu starfi
mínu.“
Eftir grunnskólann fór
Guðný í Verzlunarskólann
og þaðan til Flórída þar sem
hún tók BS gráðu í markaðs-
fræðum. Hún vann um eins
árs skeið á ferðaskrifstofu og
fór svo í mastersnám í al-
mennum viðskiptafræðum
við Florida Institute of
Technology. Hún lét það
reyndar ekki duga því hún
tók mastersgráðu í Human
Resource Managment (starfs-
mannastjórnun) þannig að
hún hefur tvöfalda masters-
gráðu.
ingu vera efsta á blaði og
skíði þar með. Hún er gift
Krístjáni Grétarssyni, fram-
leiðslustjóra hjá Norðurljós-
um hf., og hann deilir með
henni áhuga á útivist.
„Við hjónin förum að
minnsta kosti einu sinni á ári
í skíðaferð ásamt syni okkar
sem er 10 ára,“ segir hún.
„Okkur frnnst líka gaman að
því að fara á línuskauta og
hjól og erum þá gjarnan
saman öll þijú. Við hjónin
æfum á líkamsræktarstöð og
hittumst gjarnan þar í hádeg-
inu, að minnsta kosti tvisvar í
viku.
Sumarið lítur vel út. Við
ætlum á skíði til Austurríkis,
en þar er jökull þar sem
hægt er að renna sér á skíð-
um fyrri hluta dags og seinni
hlutann er hægt að fara í
tennis, hjólreiðar eða bara
eitthvað annað úti við.“3!]
74