Frjáls verslun - 01.05.2001, Blaðsíða 47
Gunnar Hilmarsson og Kolbrún Petrea Gunnarsdóttir, GK, vinna svo náið saman að þau geta gengið í störfhvors annars og því skiþtir í raun-
inni ekki máli hvort þeirra er á staðnum. Mynd: Geir Olafsson
„Börnin eru ekki lítil nema fá ár og allt of stutt þangað til að
þau eru farin að heiman. Við viljum njóta þessara ára með
þeim og vinnum frekar á kvöldin eftir að þau eru sofnuð. Það
er ansi oft sem við gerum það - tökum upp mál sem eftir er að
afgreiða til þess að eiga það ekki eftir næsta dag.“
Reykjavík Collection Rekstur umfangsmikillar tískuverslun-
ar og heildverslunar, sem þar að auki flytur fatnað til útlanda
undir merkjum Reykjavík Collection og hefur náð góðum ár-
angri, hlýtur að vera tímafrekur og taka talsverða orku.
Margt getur farið úrskeiðis og svo er alltaf spurning um það
hver ræður, hvort einhver einn er stjórnandinn eða hvort
verkaskipti eru lítil eða jafnvel engin heldur gengið í það sem
gera þarf hverju sinni.
„Þar sem við vinnum mjög náið saman getum við gengið í
störf hvort annars og það skiptir í raun ekki máli hvort okk-
ar er á staðnum,“ segir Gunnar. „Við vitum nákvæmlega
hvernig við viljum hafa hlutina og höfum ekki myndað okkur
neina ákveðna verkaskiptingu heldur ræðum það sem upp á
kemur og finnum lausnir." Þau segjast hafa sömu áhugamál
og skoðanir og að það skipti verulega miklu máli, bæði í starfi
og einkalífi. Það sé auðvitað ekki fyrir alla að heija eigin
rekstur saman en séu ákveðin grundvallaratriði höfð í huga,
þá gangi það upp. H3
Þetta er mikilvægt!
Samstarfsviljinn skiptir miklu máli. Verkaskipting
mótast smám saman. Miklu skiptir að bera virðingu
fyrir frítíma og áhugamálum hvors annars.
47