Frjáls verslun - 01.05.2001, Blaðsíða 35
AUGLÝSINGAR fl NETINU
lýsingamiðill!
Gríðarleg tækifæri
Netið getur tekið við miklu af auglýsingum í viðbót því að það gefur svo mikla möguleika, t.d. í samskipt-
um fyrirtækja við viðskiptavini sína. Hvaða tækifæri liggja í því? Rosalega mikil. Fyrirtækin þurfa ekki að
byrja á byrjunarreit og kenna fólki á vöruna og þjónustuna frá grunni því að ákveðin þekking er til staðar.
Hvert er virðið?
Ef virðið er ekkert þá bregst notandinn ekki við. í stað þess að búa til hefðbundna auglýsingu er hægt að
hafa samskipti við fólk í gegnum miðilinn, leyfa einstaklingunum að prófa hann og fá upplýsingar um það
hvert virðið er fyrir hvern einstakling.
Ýmsir gætu talið að auglýsingar á Netinu hlytu að vera
bundnar við ákveðna aldurshópa.
Miðlarnir vinni saman „Tæplega 80 prósent íslendinga nota
Netið. Að meðaltali eru stærstu íjölmiðlarnir heimsóttir af 60
þúsund einstaklingum á dag. Hver er aldursdreifingin þar?
Hún fer minnkandi eftir því sem aldurinn hækkar en tölur frá
Bandaríkjunum og Skandinavíu sýna að eldra fólki ijölgar ört
meðal nýrra Netnotenda. Það er athyglisvert. Eldra fólkið
kemur seinna inn og verður virkara í notkun sinni á Netinu
því að það hefur það sem við hin höfum ekki, nefnilega tíma.
Með eldra fólki er kominn markhópur sem hefur aðra kaup-
getu og þar hefur virðið ótrúlega mikið að segja. Hvernig
nálgumst við þennan hóp? Það er undir okkur komið. Við
þurfum að blanda saman hefðbundinni markaðsaðferðafræði
og Netinu því að ekkert virkar eitt og sér lengur. Mengið hef-
ur stækkað. Miðlarnir þurfa að vinna saman og við þurfum að
bera virðingu fyrir hverjum miðli fýrir sig, styrk hans og
virkni. Ef við náum viðskiptavininum inn á Netið getum við
haldið honum í nokkrar mínútur eða nógu lengi til að láta
hann fá eitthvað sem honum finnst vera einhvers virði og fá
viðbrögð frá honum. Miðlarnir þurfa því að vinna saman. Við
verðum að senda sömu skilaboðin en nýta um leið styrkleika
hvers miðils íyrir sig.“
Hve stóran hlllta tekur Netið? „Netið er mjög ungur miðill,
við erum ennþá að læra á hann og hann er að breytast og
verða grunnur fyrir aðra ijölmiðlun. Upplýsingar og innhald
eru styrkur Netsins og það verður gagnagrunnur íyrir nýrri
og ókomna miðla. Netið getur bætt við sig miklu af auglýsing-
um í viðbót því að það gefur svo mikla möguleika, t.d. í sam-
skiptum fýrirtækja við viðskiptavini sína. Hvaða tækifæri fel-
ast þar? Afar mikil. Fyrirtækin þurfa ekki að byrja á byrjunar-
reit og kenna fólki á vöruna og þjónustuna frá grunni því að
ákveðin þekking er til staðar. Netið getur lfka miðlað gríðar-
lega miklum upplýsingum. Hvað vita t.d. margir af hverju fólk
hættir að kaupa einhverja tiltekna vöru eða þjónustu? I gegn-
um Netið er hægt að safna upplýsingunum, greina þær og
bregðast við. Þetta er einn af styrkleikum miðilsins og þar
eiga íslensk fýrirtæki enn ótal mörg sóknarfæri. Við getum
náð árangri með tiltölulega einföldum aðferðum sem skila
margfalt meiru. Oft er tekið dæmi um markpóst í Bandaríkj-
unum. Ef svörunin er 1% þykir það frábær árangur. Eg hef oft
spurt: Er 1% góður árangur? Nei. Okkur finnst að hagnaður
af fýrirtækjum eigi að liggja miklu hærra en hvernig getum
við þá sætt okkur við svona árangurstölu? Erum við ef til vill
að skjóta alltof mörgum skeytum, sem aldrei eiga eftir að
hitta í mark, með tilheyrandi kostnaði? Netið gefur gríðarlega
möguleika á þessu sviði,“ svarar hann. S9
35