Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2001, Síða 18

Frjáls verslun - 01.05.2001, Síða 18
Hvort ykkar hjóna er skráð fyrir bílnum? sem sjá um skilnaðarmálið um makalifeyri milli hjóna og er þá lagt til grundvallar sú leiðbeiningaregla sem lögin gefa, þ.e. aðal- lega hverjar tekjur hjónanna hafa verið næstu ár á undan og hve lengi hjónabandið hefur staðið. Einnig ber að líta til þess hvort því hjóna, sem lifeyris krefst, sé e.t.v. þörf á menntun eða endurhæf- ingu. Ennþá er hér á landi almennt mikill launamunur á körlum og konum og þvi er makalífeyrir greiddur í flestum hjónaskilnuð- um. Akveðin verklagsregla er notuð við ákvörðun makaiifeyris sem er í þvi fólgin að makalifeyrir sé fjórðungur af tekjumismun hjóna. Einfalt dæmi myndi lita þannig út Maðurinn hefur haft í tekjur í 2 ár fyrir skilnað að meðaltali kr. 300.000.- á mánuði, kon- an kr. 120.000.- Mismunur er kr. 180.000.- á mánuði, flórðungur af því er kr. 45.000.- sem myndi þá vera sú upphæð sem samið yrði um. Náist ekki samkomulag um makalífeyri má skjóta þeim ágreiningi til úrskurðar sýslumannsembættis. Athygli skal vakin á þvi að lög gera ekki ráð tyrir að makalífeyrir sé úrskurðaður eft- ir að lögskilnaður er fenginn nema sérstaklega standi á. Svo vikið sé aftur að spurningunni vil ég þó taka fram að stund- um kemur fyrir að samið sé um að makalífeyrir sé greiddur í nokkur ár og einnig er oft samið um mun hærri makalifeyri en áð- urgreinda fjórðungsupphæð, t.d. vilja menn sem hafa mjög háar tekjur oft gera vel við eiginkonur sem þeir hafa e.t.v. verið kvænt- ir árum saman.“ r ififf/'/tf'/ity ftf' 4 Karpað um arf annars makans Ungt fólk gengur í það heilaga rúmlega tvítugt. Annað hjónanna á mjög ríka foreldra og getur, ef það er þannig þenkjandi, búist við verulegum arfi þegar fram i sækir. Ungu hjónin gera ekki með sér kaupmála. Aratugum síðar kemur á daginn að viðkomandi, ásamt Jjórum systkinum sinum, erfir fyrirtæki foreldranna og eignast fyrir vikið 20% í þvi. En svo kemur að því að þau hjón ákveða að skilja. Vel gengur að skipta hefðbundnum eignum; húsi, bíl og inn- búi. Karp verður hins vegar um ariinn, 20% hlutinn í fyrirtækinu. Makinn fer fram á að fá helminginn af honum, 10%, enda hafi arf- urinn fallið til í hjúskapartíð þeirra og enginn kaupmáli verið gerður. Er nokkuð sem getur komið í veg fyrir að við þessari kröfu sé orðið? Svar við spurningu nr. 4 „Eina leiðin til að halda arfi í eigu erf- ingja sem séreign er kaupmáli eða þá að arfláti hafi gert erfðaskrá þar sem kveðið er á um að að arfur eftír hann skuli verða séreign erfingja. Arfurinn kemur því til skipta. Hins vegar er vert að benda á að arfur er hjúskapareign viðkomandi erfingja sem þýðir það að hann hefur rétt á því að halda sjálfúm arfinum í sinni eign gegn þvi að greiða maka sínum helming verðmætís arfsins. Til skýringar má td. segja að ef annað hjónanna fær hlutabréf í arf þá á það rétt á að halda sjálfum bréfunum gegn því að greiða maka sínum helming markaðsverðs þeirra eins og þau standa á þeim tíma sem uppgjörið fer fram.“ < Sþia*ft(/u/ /tf'. S Þráttað um hlutabréfaeign í skráðum fyrirtaelqum Ungt fólk giftíst. Með tímanum ákveða þau hjón að kaupa talsvert af hlutabréfum í skráðum fyrirtækjum á Verðbréfaþingi. Eigin- maðurinn lætur skrá sig fyrir öllum hlutabréfunum og telur eigin- konunni trú um að það skipti ekki máli þar sem bréfin séu sam- eign þeirra hjóna. En svo kemur að því; þau ákveða að skilja. Er eitthvað sem getur komið í veg fyrir að eiginkonan fái sinn helm- ingshluta í hlutabréfunum þótt hann sé skráður fyrir þeim? En hverning er á málum tekið hafi hjónin skráð hlutabréfin á hvort annað, þ.e. hún er skráður eigandi í nokkrum hlutafélögum og hann í öðrum? Svar VÍð spurningu nr. 5 „Nei, það er ekkert sem kemur í veg fyrir að hún fái sinn helmingshlut í hlutabréfunum greiddan út. En á sama hátt og ég svaraði áðan - og ágætt er að árétta - að þá eru hlutabréf hjúskapareign þess sem er skráður eigandi og getur hvort þeirra hjóna því haldið þeim hlutabréfum, sem það er skráð fyrir, gegn því að greiða makanum helming markaðs- verðs þeirra." < ififf/t//f/i(y /t/'. 6 ’ Getur ekki hugsað sér að makinn haldi fyrirtækinu Hjón eiga saman stórt fyrirtæki og ákveða að skilja. Annað hjón- anna gerir kröfu um að halda fyrirtækinu gegn því að hitt fái í stað- inn einbýlishús og ýmsar aðrar eignir þeirra hjóna sem nema and- virði helmingshlutarins í fyrirtækinu. Svarið við því verður hins vegar eitt stórt „Nei“. Getur það hjónanna sem segir nei farið fram á að fyrirtækið verði selt og fengið hlut sinn greiddan út enda geti það ekki hugsað sér, þ.e. af hreinum tilfinningalegum ástæð- um, að makinn reki fyrirtækið áfram, fyrirtækið sem þau byggðu bæði upp frá grunni? Svar við spurttingu nr. 6 „Svipað svar og við fyrstu spurningu. Eins og áður er það skráningin á fyrirtækinu eða hlutabréfunum, sem ræður þvi hvort annar aðili getur krafist útlagningar á fyrir- tækinu eða hlutabréfum þess. Sá, sem er skráður eigandi að fyrir- tækinu, á það sem hjúskapareign og hefur eins konar forkaups- rétt að því gegn greiðslu á helmingsverðmæti til maka.“ 18

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.