Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2001, Qupperneq 19

Frjáls verslun - 01.05.2001, Qupperneq 19
FORSÍÐUEFNI SKILNflÐIR OG SKIPTING EIGNfl f ///«. 2 Neitar að maki sinn stýri fyrirtækinu áfiram Afram kemur svipað dæmi. Hjón eiga saman stórt fyrirtæki og ákveða að skilja. Annað hjónanna gerir kröfu um að fyrirtækið verði selt og að það fái sinn hlut greiddan út Makinn vill það ekki. Ur verður að það hjónanna, sem gerði kröfu um sölu fyrirtækis- ins, sættist á halda áfram sínum hlut, 50% í fyrirtækinu, en neitar algerlega að maki sinn stýri því áffam af ótta við að hann klúðri þar málum. Hvernig er málum háttað í svona tilviki? Svar VÍð spurningu nr. 7 „Félög sem eru í jaihri (50/50) eigu tveggja aðila geta verið erfið í rekstri ef ekki er samkomulag um hvernig honum skuli háttað. Osamkomulag getur leitt til þess að félagið verði óstarfhæft á skömmum tíma sem verður til þess að báðir aðilar tapa þeim verðmætum sem í félaginu felast. I fram- kvæmd er algengast að annar hvor aðilinn haldi öllu hlutafénu, en komi til þess að samið sé um sameiginlegt eignarhald yrði slíkur samningur að fela í sér útlistun á þvi hvernig félagið skuli rekið og hvernig farið verði með ágreining. Eg tel þó frekar óraunhæft að slíkt fyrirkomulag geti gengið upp og myndi ekki mæla með því við mína umbjóðendur." um stafar þetta af því að maðurinn vill ekki að konan fylgist með, það er afstaðan: „Vertu þú ekkert að stressa þig yfir fjármálunum, ég sé um þau,“ eða þá: „Þetta er min deild, þér kemur þetta ekkert við.“ Eða þá hreinlega það, sem er því miður alltof algengt að kon- ur vilja ekki vita um fjármál heimilisins. Það má auðvitað segja að það sé ósköp þægilegt að þurfa ekki að hafa áhyggjur af peninga- málunum, en svo gerist það óvænta að makinn fellur frá eða hjóna- skilnaður blasir við og þá verður áfaliið mikið.“ t Ífifí/vif/u/ ///\ /O Maki fellur firá - bömin vilja fyrirtældð Víkjum að lokum að því ef maki fellur frá. Hjón eiga saman fyrir- tæki, fallegt einbýlishús, glæsilegan sumarbústað og eitthvað af hlutabréfúm. Þau eiga fimm börn. Gefúm okkur að annað þeirra falli skyndilega frá. Eftirlifandi maki á fyrir helminginn í eignum þeirra hjóna og erfir síðan sjálkrafa þriðjung eftir maka sinn. Börnin fimm sætta sig við að eftirlifandi foreldri þeirra sitji áfram í einbýlishúsinu en gera kröfu til að öllum öðrum eignum búsins, eins og td. fyrirtækinu, sé skipt upp. Geta þau farið fram á skipt- ingu búsins að hluta gegn vilja eftuiifandi foreldris síns? Situr for- eldri þeirra „sjálfkrafa“ áfram í óskiptu búi? < ýiu/'flifiy /i/'. (S’ Sögumar um óréttláta skiptingu eigna I gegnum tíðina hefur borið á sögusögnum um ,ff eka karlinn sem heldur fyrirtækinu sem þau hjón byggðu upp en lætur konu sína í staðinn fá einbýlishúsið sem reynist miklu verðminna". Eflaust borgar sig ekki að gefa mikið fyrir svona sögur en hvernig er best að standa að málum til að koma í veg fyrir að svona skipti fari ffam? Svar VÍð spumingu nr. 8 „Það liggur nú beinast við að ég svari þessu á þann veg að þetta gerist ekki ef konan hefur góðan lög- mann! Við skilnað á að meta allar eignir hjónanna á markaðsverði og ifamreikna allar skuldir. I tilvikum eins og þessu myndu lög- menn koma sér saman um að tilnefna sérfróðan matsmann eða matsmenn til að meta raunvirði fyrirtækisins eins og það stendur á þeim tíma sem skilnaðurinn fer fram og fasteignasali yrði fenginn til að meta markaðsverð hússins. A þessum grundvelli yrði skipt" t Iþa/'/ii/ia ///•. i) Að komast hjá því að annað hjónanna fari illa með hitt Svar við spurningu nr. 10 „Mikilvæg breyting var gerð á erfðalögum árið 1989. Aður var staðan þannig, eins og margir muna, að eftirlifandi maki varð að ganga með eins konar bænaskjal milli barna sinna til að fá samþykki til setu í óskiptu búi. Eftir lagabreytinguna á eftirlifandi maki rétt á því að sitja í óskiptu búi með sameiginlegum börnum í öllum eignum búsins, nema skammlífari makinn hafi gert erfðaskrá þar sem mælt er fýrir um að skipti skuli fara fram. Ég vil benda á aðra mjög mikilvæga breytingu sem þá var gerð á erfðalögunum, sem sé það nýmæli að ef hjón gera með sér erfðaskrá geta þau mælt fýrir um það að eftirlifandi maki skuli eiga rétt á setu í óskiptu búi með stjúpniðjum, þ.e. börnum hins skammlífari. Þarna er sem sagt hægt að koma í veg fyrir að börn þess sem fyrr fellur frá geti krafist skipta, en til þess þarf, eins og áður segir, erfðaskrá. Verða þá engin skipti fyrr en bæði hjónin eru fallin frá. Að lokum þarf að benda fólki sem býr í óvígðri sambúð á að huga vel að sinni stöðu. Engin lög eru til um óvígða sam- búð og mikil réttaróvissa ríkir um fjármálalegt uppgjör sam- býlisfólks. I hjónabandi hefur fólk þó að minnsta kosti lög til að fara eftir!“HI Jafnan er rætt um að kaupmálar eða einhvers konar sér- samningar séu trygging gegn öllu fjárhagslegu karpi við hjónaskilnaði. Hvað er til ráða fyrir ung hjón til að komast hjá því að annað þeirra fari illa með hitt flárhagslega skilji þau síðar á ævinni? Þ.e. hverjir eru helstu pyttirnir sem fólk hefur dottið ofan í til þessa? Svar við spurningu nr. 9 „Til að koma í veg fyrir slíkt er það grundvallaratriði að jafhræði ríki í hjónabandinu og hvor aðili fylgist náið með öllu sem gerist hvað fjármál snertir. Ég verð því miður að segja að hvað sem öllu jafhréttistali í þjóðfélaginu liður þá er allt of algengt að konur fylgist ekki með því sem eiginmaðurinn er að gera í fjármálum. Stund- 19
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.