Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2001, Qupperneq 31

Frjáls verslun - 01.05.2001, Qupperneq 31
að lætur lítið yfir sér, fyrirtækið Go Pro Landsteinar Group, þar sem það er til húsa við Stórhöfðann í Reykja- vík en það segir ekki alla söguna. Innandyra hefúr vöxtur- inn verið slíkur að Go Pro Landsteinar Group er nú stærsta hugbúnaðarfyrirtæki landsins, a.m.k. ef marka má veltu og starfsmannafiölda. Af 16 milljarða heildarveltu í upplýsinga- tækniiðnaðinum í fyrra nam velta fyrirtækisins um 3 milljörð- um króna, þar af koma um 60 prósent að utan. Og þó að lítið hafi farið fyrir fyrirtækinu, jafnt sem lykilstjórnanda þess, Olafi Daðasyni, hefur það náð ýmsum merkum áföngum. Það hlaut t.d. útflutningsverðlaun Forseta íslands á dögunum og lenti ný- lega í annað sinn á lista yfir 500 framsæknustu fyrirtæki í Evr- ópu, að þessu sinni í 16. sæti, sem er auðvitað frábær árangur, ekki síst miðað við það að næsta íslenska fyrirtæki er Oz.com í 123. sæti. Það er því engin furða að forvitnum augum sé beint að þessu fyrirtæki. „Við erum í hópi þeirra 20 fyrirtækja sem eru að vaxa hvað hraðast í Evrópu í dag. Vaxtartakturinn er viðunandi, menn eru almennt að ná sínum markmiðum og við erum að mínu mati að framleiða og flytja út vörur sem standast fullkomlega allan sam- anburð. Viðskiptavinir okkar eru nokkur af þekktustu fyrirtækj- um Evrópu. Þau væru ekki að versla við 5-6 ára gamalt íslenskt fyrirtæki nema þeim þætti eitthvað til okkar lausna koma,“ seg- ir Olafur Daðason, framkvæmdastjóri og einn af aðaleigendum fyrirtækisins. Giftur makanum, ekki fyrirtækinu Eins og nafifið bendir til er Go Pro Landsteinar Group samsett úr nokkrum einingum og eiga sumar þeirra rætur töluvert langt aftur í tímann. í grunn- inn byggir samstæðan á tveimur fyrirtækj- um, Hugviti og Landsteinum, sem voru stofnuð 1993 og 1995. í tímans rás hafa þau sameinast öðrum, t.d. Þróun hf., sem er eitt elsta hugbúnaðarfyrirtæki landsins - stofn- að 1976, og tölvudeild KEA, sem í dag heitir Þekking. Eftir sameiningu Landsteina International við GoPro Group á síðasta ári teljast nú til samsteypunnar Hugvit, Land- steinar ísland, þ.m.t. Þróun, og Þekk- ing/Tristan á íslandi. í Danmörku er það SCIO Landsteinar, í Svíþjóð Landsteinar Svenska og í Þýskalandi Landsteinar. I Bret- landi starfar fyrirtækið undir nafninu Land- steinar UK og Landsteinar CI. Hugvit hefur sérhæft sig í skjalastjórnun og skjalavistun en Landsteinar í bókhalds- og verslunarlausnum. Go Pro Landsteinum Group stýrir Olafur Daðason, sem á sínum tíma hætti hjá IBM og stofnaði Hugvit. Hann þykir hafa sýnt óhemjudugnað og eljusemi en hann hefur unnið staðfastlega að uppbyggingu fyrirtækisins í mörg ár. Þar er á ferðinni hugsjónamaður af lífi og sál, segja þeir sem til þekkja, maður sem hefúr áhuga á listaverkum og antíkmunum, þó að áhugamál númer eitt sé fyrirtækið. Þó að fyrirtækið reyni að hamla gegn yfirvinnu nema nauðsyn beri til og reki Jjöl- skylduvæna starfsmannastefnu, eins og kannski er best lýst með orðunum: „Þú ert giftur maka þínum, ekki fyrirtækinu“, þá er það ekki að fyrirhafnarlausu sem Go Pro Landsteinar Group er orðið að þvi fyrirtæki sem það er í dag. Að baki liggja ómæld- ar vinnustundir, ekki síður hjá framkvæmdastjóranum en öðr- um starfsmönnum. Go Pro Landsteinar Group hefur nokkra sérstöðu á íslensk- um hugbúnaðarmarkaði og segir Olafur að hún felist í þvi að fyrirtækið sé nokkurs konar „verksmiðjá* sem framleiði hug- búnaðarpakka á sínum sérsviðum. „Sjálfsagt framleiða önnur fyrirtæki slíka pakka en ég held að þau séu fá. Islensku hugbún- aðarfyrirtækin stunda langflest sérsmíði en til þess að geta ann- að pakkasmíði þurfa þau að vera af þeirri stærð sem GoPro Landsteinar Group er að ná,“ segir hann. Fá að vaxa lengur Talið berst að evrópska vaxtarlistanum en á honum eru Norðmenn með sex fyrirtæki, Danir átta, Finnar níu, Sviar 22 og Islendingar sjö meðan Þjóðverjar eru með lang- flest fyrirtækin, eða 123. Olafur seg- ir að það hafi í sjálfu sér ekki kom- ið mjög á óvart að Go Pro Land- steinar Group kæmist á listann því að fyrirtækið hafi verið á honum í fyrra og ekki hafi dregið úr vext- inum síðan þá. „Viðmiðunin er tímabilið 1995-2000 þannig að þetta ætti að gefa góða mynd af vexti fyrirtækjanna yfir nokkurn tíma,“ segir hann og telur ein- falda skýringu á því hve ís- lensku fyrirtækin séu hlut- fallslega mörg. ,Aðalskýr- ingin er eflaust sú að íslensk frumkvöðlafyrirtæki fá að vaxa miklu lengra og verða miklu stærri en í löndunum í kringum okkur. Þar er þetta þannig að ef fyrirtæki eru orð- in áhugaverð og farin að stríða þessum stóru þá eru þau bara keypt upp.“ Tíu stærstu eigendurrur ,tu 140 tuNns i úmluk «100. ítærstu eigendum'r vom D-« . !Ski hugbúnaaarsjáaurim. 15.A. . Istieman \nyestmEnt_AB_ idssíminn 3.32% 13.BB% 7.15%, 5.03% 4.53% jssimn ii i , Jerseu Electrical Cnmpany 4.09 % '' u----------- ? 11% 5 5.A. psinkS.A. mquist Ltd. H,ú% - 2,11% l.B9% 31
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.