Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2001, Side 41

Frjáls verslun - 01.05.2001, Side 41
Hvetjandi fyrir vísindamenn Frjáls verslun hefur komist að þeirri niðurstöðu að ættfræðin hafi átt þátt í því að færa um 6.500 milljónir króna inn í landið á ári síðustu árin auk þess sem hún hefur haft óbein áhrif, t.d. í áhrifum íslenskrar erfðagreiningar og UVS á rannsóknarumhverfi þjóðarinnar. Valgeir Þorvaldsson, athafnamaður á Hofiósi, hefur staðið fyrir athyglisverðri uþþbyggingu sem tengir saman ættfrœði og ferðaþjónustu og byggt uþþ Vesturfarasetrið, sem veitir ferða- mönnum þjónustu við að leita uþþruna síns. Hann rekur einnig hótel og fánasaumastofu á Hofsósi. Mynd: Geir Olafsson Talið er að útgáfa œttfrœðibóka hafi numið 40-50 milljónum króna á ári þegar mest lét. Steingrímur Steinþórsson og Ivar Gissurarson, eigendur bókaútgáfunnar Máls og myndar, hafa gefið út nokkrar ættfrœðibækur á hverju ári. Velta Máls og myndar vegna þeirra nemur 10-15 milljónum á ári. inn með hálfkláraðan grunn, um 500 þús- und einstaklinga, þegar Kári Stefánsson, forstjóri Islenskrar erfðagreiningar, falað- ist eftir samstarfi við hann árið 1997.1 dag keyrir Islensk erfðagreining saman óper- sónugreinanleg heilsufarsgögn með upp- lýsingum um ættfræði og erfðafræði þjóð- arinnar. Ættfræðin hefur ekki skilað Friðriki Skúlasyni ehf. neinum tekjum, fremur kostnaði ef eitthvað er, að sögn hans. Heildarvelta fyrirtækisins nam 170 millj- ónum króna í íyrra en salan á Espólín afl- aði fyrirtækinu aðeins 600 þúsundum króna í tekjur. Þegar Kári hafði samband við Friðrik síðla árs 1997 var sá síðar- nefndi aðeins með einn starfsmann í ætt- fræðinni og sinnti henni jafnframt sjálfur í frístundum. Hann sá fram á að byggja upp ættfræðigrunninn á 20-30 árum. Kári gat ekki beðið svo lengi. Þeir gerðu því með sér samkomulag um að Friðrik legði til þann gagnagrunn sem kominn var og ís- lensk erfðagreining sæi um starfsmenn- ina, eins og áður sagði. Friðrik hannaði hugbúnað fyrir grunninn, sem aðrir starfsmenn Islenskrar erfðagreiningar síðan skrifuðu. Hann tók að sér að stýra starfsmönnum við uppbyggingu ættfræði- grunnsins endurgjaldslaust og leggja til húsnæði, Kári greiddi laun starfsmanna og gæti notað grunninn í læknisfræðileg- um tilgangi að vild og það hefur hann reyndar gert i um það bil tvö ár. Friðrik getur hins vegar nýtt sér grunninn í ætt- fræðilegum tílgangi, t.d. til útgáfu, og haft af því tekjur óháð Islenskri erfðagrein- ingu. í upphafi voru starfsmenn ættfræði- grunnsins aðeins fimm en þeim fj ölgaði fljótlega upp í 15 og hefur sá fjöldi starfað að jafnaði við uppbyggingu grunnsins síð- ustu árin. Gera má ráð íyrir að kostnaður Islenskrar erfðagreiningar vegna grunns- ins hafi verið á annað hundrað milljónir króna frá upphafi og fram til dagsins í dag, sé allt tekið með í reikninginn og er þar enn og aftur um grófa áætlun að ræða. Ef miðað er við að hver starfsmaður hafi að lágmarki um 200 þús- und krónur í laun á mánuði má gera ráð lýrir að kostnaður við launagreiðslur starfsmanna ættfræðigrunnsins hafi numið að minnsta kosti rúmum 43 milljónum króna allt árið í fýrra. Otal- inn er þá kostnaður iýrirtækisins og Friðriks Skúlasonar ehf. við hugbúnaðargerð vegna íslendingabókar og tölvukost starfsmanna. Urður Verðandi Skuld Urður Verðandi Skuld ehf., UVS, er líf- tæknifyrirtæki sem var stofnað árið 1999 og byggir starfsemi sína á erfðafræði og líftækni. UVS hefur það markmið að stunda rannsóknir á orsökum og þróun krabbameins þannig að unnt verði að þróa aðferðir til að bæta forvarnir, greiningu og með- ferð sjúkdómsins. Ættfræðin er mikilvæg í starfseminni því að ljóst er að krabbamein er að hluta til ættlægt Steinþór Pálsson, framkvæmdastjóri reksturs og fjármála hjá UVS, segir að ætt- fræðiupplýsingar frá Erfðafræðinethd séu nýttar í rannsóknirn- 41

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.