Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2001, Síða 49

Frjáls verslun - 01.05.2001, Síða 49
A fyrstu sex mánuðunum varð Lyfia stærsta apótekið á höfuðborgarsvæðinu. I dag er Lyfia, Lágmúla, langstærsta apótek landsins. Það sem kemur næst á eftir í sölu erApótekið á Smáratorgi. að fresta gildistöku laganna fram til 15. mars 1996. Við erum þess fullvissir að hefðum við ekki farið af stað á þessum tíma þá hefði umrætt lagaákvæði aldrei verið samþykkt." Gamlir Vinir Þeir Ingi og Róbert eru gamlir vinir og unnu sam- an í Pharmaco á sínum tíma. Þeir eru báðir lyijafræðingar frá Lyflafræðiháskólanum í Kaupmannahöfn og báðir eru þeir með MBA gráðu frá erlendum háskólum. Eiginkona Róberts er As- laug Jónsdóttir. Þau eiga þrjú börn. Sambýliskona Inga er Þóra Stefánsdóttir en þau eignuðust nýlega dóttur. Margir voru vantrúaðir á það að lögin yrðu samþykkt og að hinu gamla, rótgróna kerfi yrði bylt. Það lögðu engir í að stíga skrefið aðrir en þeir félagar, Róbert og Ingi, og margir biðu þess sem verða vildi. Eftir að þeir opnuðu Lyfju fóru hins vegar margir af stað með apótek og kerfið riðlaðist. Úðruvísi apótek Eitt af þvi sem þeir Róbert og Ingi lögðu áherslu á frá upp- hafi var að bjóða mikið og gott úrval af öðrum vörum en lyfjum, s.s. snyrtivör- um af ýmsu tagi, heilsu- og hjúkrunar- vörum og ýmiss konar smávöru. Opn- unartíminn var einnig annar en þekkst hafði. „Hugmyndin var að nokkru sótt í Boots verslanirnar í Bredandi,“ segir Róbert. „Þegar við opnuðum Lyiju var kerfið þannig að apótekin skiptust á að vera með opið á kvöldin og um helgar þannig að tvö apótek voru með opið lengur en til kl. 18.00 á daginn. Þetta gerði að verkum að fólk vissi aldrei hvert það átti að fara nema með því að skoða listann sem birtist í Morgunblaðinu eða aka að næsta apóteki og skoða töfluna sem þar hékk uppi til þess að kynna sér hvert þeirra væri opið þessa vikuna. Við ákváðum að hafa opið til kl. 22.00 öll kvöld, en síðan hefur sá opnunartími lengst og nú er opið frá átta að morgni til miðnættis alla daga í Lyfju Lágmúla og Apótekinu á Smáratorgi. Ari seinna tóku hin apótekin sig saman og keyptu Háaleitisapó- tek og ákváðu að það yrði opið lengur en hin þannig að nú eru þrjú apótek á höfuðborgarsvæðinu opin fram eftir.“ Á fyrstu sex mánuðunum varð Lyija stærsta apótekið á höfuðborgarsvæðinu. I dag er Lyfja, Lágmúla, langstærsta apó- tek landsins og það sem kemur næst á eftir í sölu er Apótekið á Smáratorgi. Það er mikil umferð í Smáranum í tengslum við læknavaktina og húðsjúkdómastofuna sem þar er og ætiar Lyfja að opna nýtt apótek í Smáralind í haust. Þeir félagar telja umferð- ina þar verða nægjanlega mikla til að bera annað apótek og víst er að hún verður talsverð. Baugur eignast hlut Fyrir nokkrum mánuðum sameinaðist Lyija, félag Róberts og Inga, og Lyljabúðir, þáverandi dótturfé- lag Baugs, sem rak verslanir undir heitinu Apótekið. Hin sam- einaða lyijabúðakeðja fékk nafið Lyfja og á Baugur 55% í henni á móti 45% þeirra Róberts og Inga. Apótekið var upphaf- lega stofnað af þremur lyijafræðingum og Gaumi, ijárfestingarfélagi Bónus- feðga, og var fyrirtækinu fyrst og fremst ætiað að keppa við Lyfju á grundvelli lágs verðs á lyijum. Fyrst í stað voru tvær Apóteksverslanir, í Iðufelli og á Smiðjuvegi. „Síðan sameinuðust Apó- tekið og Lyijabúðir Hagkaups, sem við stofnuðum raunar með Hagkaupum á sínum tíma. Við seldum okkar hluta í þvi félagi í lok árs 1998, eða í kjölfar stofnunar Baugs,“ segir Ingi. „Við höfúm tvo stjórnarmenn af ijórum í sijórn Lyiju og samstarfið við Baug gengur mjög vel. Við erum eftir sem áður framkvæmdastjórar félags- V Þeir Róbert og Ingi eiga 45% í lytja- * búðakeðjunni Lyiju. 2. Lyfja rekur 16 lyfjaverslanir undir heitunum Lyfja og Apófekið. 3. Lyfjavelta apóteka nemur um 7 millj- örðum á ári. / 4. Hlutdeild Lyfju af heildarlyfjamark- aði er tæp 30%. 5 Samkeppnisstofnun hefur gert at- hugasemdir við sterka stöðu Lyfju a smásölumarkaði á höfuðhorgar- svæðinu par sem markaðshlutdeildin er um 50%. 6. Hlutdeild ríkisins í lyfjakostnaði var um 84% en er nú komin niður í 50%. 49

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.