Frjáls verslun - 01.05.2001, Page 73
I
FÓLK
Kftir Vigdísi Stefánsdóttur
Lovísa Olafsdóttir er frá
Akranesi þar sem hún ólst
tipp fyrstu árin. „Eg flutti
til Svíþjóðar 10 ára gömul, í
Smálöndin. Þar naut ég þeirra
forréttinda að alast upp í litl-
um, rólegum smábæ, 40 km
frá Vaxjö. 1991 fluttíst ég aftur
heim eftir að hafa lokið námi í
iðjuþjálfun við Háskólann í
Jönköping." Hún hóf starf á
Reykjalundi og tók þar þátt í
uppbyggingu á lungnaendur-
hæfingu og einnig við bak-
skóla og streitustjórnunar- og
slökunarnámskeið. Síðastliðin
sjö ár hefúr hún unnið við for-
varnarstarf á vinnustöðum og
stoihaði einnig fyrirtækið Sol-
arplexus ehf., heilsu- og vinnu-
verndarráðgjöf, fyrir tveimur
árum. „Eg fann mikinn mun á
heilbrigðiskerfinu í Svíþjóð og
Lovísa Ólajsdóttir, framkvœmdastjóri og eigandi Solarplexus: „ Við erum farin að eyða svo miklum tíma í
vinnunni aðfull ástæða er til að gera vinnustaðinn þœgilegan og hanna hann útfrá þörfum einstaklingsins. “
FV-mynd: Geir Olafsson.
Lovísa Olafsdóttir, Solarplexus
hér heima,“ segir Lovísa.
„Okkur vantar t.d alveg virka
þjónustu hvað varðar heilsu-
vernd vinnustaða en tuttugu
ára gömlum lögum um aðbún-
að á vinnustað og ábyrgð og
skyldur atvinnurekanda hefúr
aldrei verið hrundið í fram-
kvæmd. Grunnhugmyndirnar
koma aðallega frá Svíþjóð og
Danmörku. í New York er
framsækið fyrirtæki sem unn-
ið hefúr við að greina álagsein-
kenni undan einhæfri vinnu og
við leituðum einnig til þess.“
Samstarf við aðrar fagstéttír er
mjög mikilvægt og Solarplex-
us hefur náð að byggja upp
náið samstarf við verkfræð-
inga, lýsingahönnuði, innan-
hússarkitekta/arkitekta,
lækna, iðjuþjálfa, sjúkraþjálf-
ara og sálfræðinga. „Við ger-
um vinn u staðagreiningu sem
felst í því að meta vinnuum-
hverfið og flokka vinnustaðinn
upp í græna, gula og rauða fletí
þar sem grænn flötur þýðir að
allt fyrirtækið sé á réttri braut
en rauður að grípa þurfi tíl að-
gerða.“
Andlegi þátturinn í líðan
fólks er erfiðastur viðureignar
en um leið minnst sýnilegur.
Lovísa segir mörg fyrirtæki
kaupa sér aflát í formi afsláttar
á heilsuræktarstöðvar en það
eitt dugi ekki tíl. Hún segir að
við séum farin að eyða svo
miklum tíma í vinnunni að full
ástæða sé til að gera vinnu-
staðinn þægilegan og hanna
hann út frá þörfum einstak-
lingsins.
„Fjölskyldan er stór þáttur í
lífi mínu,“ segir Lovisa, „og ég
er ein þeirra kvenna sem þarf
að hafa gott samspil milli
heimilis og vinnu tíl þess að
njóta mín í vinnunni. Dæmi-
gerð einkenni „karrierkonu".
Þó að ég sé hlynnt jafnrétti og
bættri stöðu kvenna þá er ég
fremur af gamla skólanum og
tel gildi góðrar samvinnu und-
irstöðu þess að báðir aðilar fái
notíð sín.“ Eiginmaður Lovísu
er Sævar Guðbergson, deild-
arstjóri Tölvu- og upplýsinga-
tæknideildar R Samúelssonar
ehf., og eiga þau þijú börn,
tvær stúlkur á táningsaldri og
8 ára dreng. „Við mæðgurnar
eigum sameiginlegt áhuga-
mál, en það eru hestar,“ segir
hún. „Við lögðum út í það fyr-
ir ijórum árum að demba okk-
ur út í hestamennsku og höf-
um þá einstöku aðstöðu að
leigja hjá eldri manni þar sem
dekrað er við okkur. Strákur-
inn kemur stundum með okk-
ur en hefur minni áhuga á
hestum en við, þeir feðgarnir
eru meira fyrir veiðina.
Maður nær alveg yndis-
legri slökun í hestamennsk-
unni, ekki síst í tengslum við
börnin. Það er fátt sem jafnast
á við að fara með stúlkunum í
miðnæturreið að sumri til. Al-
ger slökun og yndisleg tilfinn-
ing. Sundíþróttin er einnig
ríkjandi þáttur hjá ljölskyld-
unni og þar sem strákurinn og
önnur stúlkan æfa sund er
ekki óalgengt að enda daginn
í slökun í pottinum í Kópa-
vogssundlauginni. Eg hef frá
unga aldri ferðast mikið og
hef gaman af menningu, sið-
venjum og matarlist annarra
landa.
Annað stórt áhugamál hjá
mér er söngur, en ég byijaði
að syngja þegar ég var 14 ára.
Þá lærði ég söng í Svíþjóð og
söng með þremur öðrum
stúlkum „Barbershop“, en það
er fjögurra radda djass/blues
tónlist sungin án undirleiks.
Við stofnuðum saman kór
þegar ég var tvítug og komum
okkur í gegnum helstu ijögur
prófþrepin sem þarf til að
verða gildur á alþjóðavett-
vangi og þar sinnti ég for-
mennsku. Nú er þetta 50
manna kvennakór sem heldur
tónleika víða. Eg gekk í Lang-
holtskirkjukór þegar ég flutti
hingað heim og er nú „gam-
all“ kórmeðlimur og hef verið
að velta því fyrir mér að bytja
aftur en ekki látíð verða af sök-
um tímaskorts. Þar reyndi
heilmikið á sönghæfileikana
en kórinn er einna helst
þekktur fyrir klassískan söng
og önnur skemmtileg verk.
Söngurinn á stóran hlut í mér
og það má vera að ég láti
verða af því að finna mér aftur
tíma fyrir hann.“S3
73