Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2001, Qupperneq 34

Frjáls verslun - 01.07.2001, Qupperneq 34
STJÓRNUN RflÐNING FORSTJÓRfl Mistökin hjá Coca Cola Þegar Goizueta, forstjóri Coca Cola, lést var Ivester látinn taka við. Hann var snillingur með tölur og allt þeim tengdum en var einfaldlega ekki maður fólksins. Ætla má að ef stjórn Coke hefði kynnt sér betur hvernig starfsmönnum þætti hann sem leiðtogi og notað faglegri aðferðir við valið hefði ráðningin ekki átt sér stað.5 Þrátt fyrir þetta sýna rannsóknir að stjórnarmeðlimirnir sjálfir virðast oft vera á sínum eigin bílum og aka hver í sína áttina.3 3. Meta þarf „mjúka“ eiginleika í fari kandídata (soft qualities). Flestir forðast að meta það sem þeim finnst óþægilegt eða erfitt. Það er erfiðara að meta mjúka og mannlega eigin- leika en ijárhagslegar niðurstöður, markaðshlutdeild og aðra slíka mælanlega þætti. I dag eru til leiðir sem gera ráðningaraðilanum kleift að meta mjúka/huglæga þætti í fari fólks, t.d. með sérstökum viðtölum. 4. Þekkja kandídata sem hegða sér eins og forstjórar. Framkoma getur verið villandi. Það er ekki hægt að meta hvort einstaklingur er leiðtogi eftir útliti hans og fasi eða því sem hann segir í undirbúnu viðtali. Peter Drucker segir að eina leiðin til að vita hvort um leiðtoga sé að ræða sé að tala við og athuga hversu marga fylgismenn hann hefur. 5. Góðir leiðtogar geta verið / eru ógnandi. An þess kannski að átta sig á því hræðast margir stjórnar- meðlimir það að hrist sé upp í hlutunum og leita því ósjálfrátt að einhverjum sem mun láta hlutina verða óbreytta. Þannig getur verið ósamræmi í því að tala um að breyta þurfi umhverfi fyrirtækisins en ráða síðan einstak- ling sem er líklegur til að hafa umhverfið óbreytt. 6. Ekki láta forstjórastólinn ganga i erfðir. Hér er ekki átt við erfðir út frá ættum heldur stöðu í fyrir- tæki. Tölur sýna að meira en 65% forstjóra eða fram- kvæmdastjóra hafa verið númer tvö áður en þeir komust á toppinn. Því miður reynist „númer tvö“ ekki alltaf eins góður stjórnandi og ætla mætti. Vandamálið er einnig það að stjórnendurnir sjálfir eru ekki alltaf bestir til að velja eftirmenn sína. Þar sem leiðtogahæfileikar eru ekki öll- um gefnir segir það sig sjálft að ekki er hægt að reiða sig á að „númer tvö“ verði góður leiðtogi. Flas er ekki til fagnaöar Ákvörðun um ráðningu stjórnanda virðist oft tekin snögglega og ekki nægum tíma varið í valið. Algeng mistök við ráðningu eru að ráða stjórnanda sem bú- inn er að gera áætlanir um að „snúa öllu við“ í fyrirtækinu.4 Fátt heillar stjórnendur meira en kandídatar sem hafa unnið heimavinnuna sína og eru búnir að gera áætlanir fyrir sig og alla undirmenn sína. Þannig kandídatar geta verið heillandi en jafnframt oft hættulegir. Leita ætti frekar að einstaklingi með langtímamarkmið í huga, sannfæringu um hver stefna fyrirtækisins eigi að vera, vel hugsaða stjórnunarlega skoðun og skilning á því hvernig best er að hvetja starfsmenn til að efla fyrirtækið. Arangur fyrirtækja veltur ekki síst á starfsmönnum þess. Gott starfsfólk er fljótt að fara þegar það verður vart við að litið er fram hjá því. Þess vegna verður stjórn fyrirtækis einnig að gæta þess að halda í efnilega og óþolinmóða starfs- menn með hæfileika. Stjórnarmenn ættu að vera meðvitaðir um að jafnmikilvægt er að sinna þróun leiðtoga í starfi og að leita að góðum leiðtoga. Ef þú vilt finna leiðtoga, þá verður þú að leita, meta og greina þótt það útheimti mikla vinnu. Eg vil í lokin vekja athygli á ráðstefnu sem haldin verður á vegum IMG þann 20. september n.k. og ber yfirskriftina „Ráðningar morgundagsins". Þar verður boðið upp á fyöl- breytta fyrirlestra tengda ráðningum, t.d. um stjórnendaleit (headhunting), hæfnispróf og prófafræði, mistök í ráðning- um og ráðningar í gegnum Internetið. SH 1) Smith et al. 1989, 2 - 6) Harvard Business Review, May-June 2000 Þessi sem ætlar að „snúa öllu við“ Ákvörðun um ráðningu stjórnanda virðist oft tekin snögglega og ekki nægum tíma varið í valið. Algeng mistök við ráðningu eru að ráða stjórnanda sem búinn er að gera áætlanir um að „snúa öllu við“ í fyrirtækinu.6 „RAUNS' LÝSING Á Í! ATHAFN mLÆTUR E ÓSNOR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.