Frjáls verslun - 01.07.2001, Page 52
VIÐSKIPTAHUGMYNDIR HUGBÚNflÐflRFYRIRTÆKJfl
miðlun Internet ehf. veitir aðgengi að Netinu og netþjónustu
og Flyware Ltd. sérhæfir sig í gerð og þjónustu við hugbúnað
sem tryggir rétta hleðslu og jafnvægisstillingu flugvéla.
Hugbúnaðargerðin hjá Skýrr skiptist upp í sérsmíði og stöðluð upplýs-
ingakerfi, s.s. Oracle e-Business Suite, Business Objects og VeriSign.
Stór hluti af starfsemi Skýrr varðar hugbúnaðargerð og þjón-
ustu en hugbúnaðargerðin skiptist upp í sérsmíði sem til
skamms tíma hefur einkum verið fyrir hið opinbera. Sem
dæmi um verkefni má nefna Tekjubókhald ríkisins, bókhalds-
kerfið BÁRfyrir Ríkisbókhald, Upplýsingakerfi TR ogTryggvi
fyrir Tryggingastofnun, Skipaskrá og Upplýsingakerfi fram-
haldsskóla. Hinn hluti starfsemi hugbúnaðarsviðs snýst um
stöðluð upplýsingakerfi, s.s. Oracle e-Business Suite, Business
Objects og VeriSign.
Kögun
Hugbúnaðarfyrirtæki sem þróar og rekur íslenska loft-
varnakerfið IADS, hefur einnig þróað önnur hernaðartengd
hugbúnaðarkerfi, td. flugumferðarhermi. Kögun fæst í dag
við þróun ýmissa upplýsingakerfa ásamt ráðgjöf á sviði verk-
efnastjórnunar og öryggismála ásamt því að vera endursölu-
aðili á hugbúnaði og öðrum tölvubúnaði. Dótturfélög eru
VKS, sem sérhæfir sig í þróun sérhæfðra tölvukerfa, þróun
og sölu hugbúnaðar fyrir ijármálafyrirtæki, hópvinnslulausna
og ráðgjöf, Navision Island, sem nýverið hefur keypt Concor-
deAxapta íslandi og dreifir hugbúnaði frá Navision, og þýð-
ingarfyrirtækið Sprok. Hlutdeildarfélög eru Vefmiðlun með
Netdoktor.is, Auðkenni og Span, sem bæði gera út á rafræn
viðskipti. Auðkenni er vottunaraðili sem gefur út stafræn skil-
ríki og veitir þjónustu þeim tengdum og Span hefur þróað
hugbúnað sem flytur reikning og önnur viðskiptaskjöl raf-
rænt milli tölvukerfa.
Addres-r. ft1 ÍÁrrJD'Wll
Býður upp á heildarlausnir í upplýsingatækni sem felur m.a.
í sér ráðgjöf, útvegun hugbúnaðar og vélbúnaðar, skrifstofu-
tæki og tæknilega þjónustu. Markmiðið er að útvega heildar-
lausnir í upplýsingatækni og býður fyrirtækið upp á SAP ijár-
hags- og mannauðslausnir, IBM viðskiptalausnir, Siebel lausn
til að stjórna viðskiptatengslum og þróun hugbúnaðar ásamt
ráðgjöf í upplýsingatækni.
Addréss:
Hugbúnrður
I~í ugbúnaður hf. (HB International) er með elstu hugbúnað-
arfyrirtækjum landsins, stofnað 1984, og felst meginstarfsem-
in í hönnun og þróun afgreiðsluhugbúnaðar fyrir verslanir.
Elsta og útbreiddasta afgreiðslukerfi Hugbúnaðar er HBGPoS
eða Ebeneser (einnig selt undir heitinu TEC Pos). Síðustu ár
hefur Centara, fyrsta fullveðja íslenska afgreiðslukerfið sem
byggir á Windows, verið þróað. Það hefur myndrænt viðmót á
snertiskjá, sveigjanleika að mismunandi rekstri og er auðvelt í
notkun. Linux útgáfa af Ebeneser, Centara Linux, er að líta
dagsins ljós og þróað hefur verið Windows viðmót ofan á Eb-
eneser, Centara LT, fyrir snertiskjá.
Áddféöí H
Strengur hf. er eitt stærsta hugbúnaðarfyrirtæki og Navision
lausnasetur landsins. Strengur sér fyrirtækjum fyrir ráðgjöf,
greiningu, stöðluðum hugbúnaðarlausnum, hugbúnaðargerð,
innleiðingu, vistun og rekstri kerfa. Með þróun InfoStore og
InfoServer lausna hefur Strengur hannað hugbúnað sem tvinn-
ar saman hefðbundin viðskiptakerfi við nýja kynslóð sam-
skiptaleiða, vefinn, handtölvur o.fl. Megináherslan er á fyrir-
tæki á sviði fjármála, þjónustu og verslunar. Strengur vistar
einnig upplýsingakerfi fyrirtækja og sér um daglegan rekstur,
viðhald og þjónustu.
Addré S ..... ‘'IffilllflllHB 9 #
l^andmat þróar og markaðssetur vörur sem byggja á staðsett-
um upplýsingum. Fyrirtækið er með þrjár vörulínur, EcoTrak
sem eru rauntímaupplýsingakerfi fyrir stjórnendur og aðila í
ákvarðanatöku, Virtual Explorer sem er upplýsingakerfi fyrir
ferðaiðnaðinn og Relevance sem er safn lausna fyrir farsíma-
geirann. Vörur fyrirtækisins eru til nota á veraldarvefnum, í
lófatölvum og farsíma.
i?ife . .J 'i'-’
Starfsmenn Manna og músa smíða hugbúnað sem auðveldar uppsetn-
ingu og viðhald upplýsinga og kerfis sem hjálpa mönnum að gera sig
sýnilega á Netinu. Hér sést Pétur Pétursson framkvœmdastjóri fyrir
utan húsnœði fyrirtœkisins í Skógarhlíðinni.
52