Frjáls verslun - 01.07.2001, Síða 53
VIÐSKIPTflHUGMYNDIR HUGBUNflDflRFYRIRTÆKJfl
DNS-kerfið, Domain Name System, er grunntækni á Net-
inu og er enginn sýnilegur á Netinu án þess að hafa skilgrein-
ingu í þessu DNS-kerfi. DNS er flókið í uppsetningu og við-
haldi. Starfsmenn Manna og músa smíða hugbúnað sem auð-
velda uppsetningu og viðhald þessara upplýsinga. Þörfin fýr-
ir tól á þessu sviði vex með stækkun Netsins. Nýir staðlar á
sviði DNS, sem stöðugt eru að koma fram, munu einnig auka
enn á þörf fyrir sjálfvirkni á þessu sviði á næstu árum. Við-
skiptavinir Manna og músa eru fyrirtæki út um allan heim og
stefnir fyrirtækið að því að verða leiðandi á sviði DNS um-
sjónar á heimsvísu.
Friðrik Skúlason ehf. framleiðir veiruvarnarforritið Lykla-Pétur, sem
er bæði selt hér innanlands og erlendis. Fyrirtækið hefur einnig gefið
út ættfrœðiforritið Espólín.
Friðrik Skúlason er einn þekktasti og fremsti veirusérfræð-
ingur landsins og fyrirtæki hans, sem starfar á sviði hugbúnað-
ar og rannsókna, er meðal þeirra fremstu á sviði veiruvarnar-
rannsókna og í gerð hugbúnaðar sem á að vinna gegn tölvu-
veirum. Fyrirtækið framleiðir veiruvarnarforritið Lykla-Pétur,
sem er bæði selt hér innanlands og erlendis. Friðrik Skúlason
ehf. hefur einnig gefið út ættfræðiforritið Espólín.
Address:
TnuGnGneiNiNG
00
Anokee, sem er hannaður til að halda utan um mikilvægar
tölvuskrár, s.s. myndir, tónlist og skýrslur. Slíkum skrám
fjölgar ört, m.a. með útbreiðslu stafrænna myndavéla og
dreifingu með tölvupósti. Vinsælustu forritin á Netinu eru
skráarmiðlarar, s.s. Morpheus, Napster og Gnutella og er
dreifing tónlistarskráa gríðarleg gegnum slík forrit. Með
Anokee er hægt að koma böndum á allar stafrænar skrár og
tengja við skrárnar á skilvirkan hátt eins mörg leitarorð og
þörf er á.
Guðmundur Jón Bjarnason, framkvæmdastjóri Softu. Softa hefurþró-
að eignaumsýslukerfið DMM fyrir skráningu eigna, viðhaldsstjórnun,
nýframkvæmdir, verkstjórnun og truflanaskráningu.
Softa hefur þróað eignaumsýslukerfið DMM fyrir skrán-
ingu eigna, viðhaldsstjórnun, nýframkvæmdir, verkstjórnun
og truflanaskráningu. Softa býður aðstoð við innleiðingu
kerfisins og ráðgjöf fyrir árangurstengda viðhalds- og verk-
stjórnun. Viðskiptavinir eru einkum orkuveitur, stóriðjur og
almennt fyrirtæki og stofnanir sem eiga umtalsverðar við-
haldsbærar eignir sem skipta höfuðmáli fyrir reksturinn.
Markmið Softu er að tengja saman verkfræði, verkþekkingu
og hugbúnaðargerð í DMM sem vöru fyrir erlendan og inn-
lendan markað.
T^augagreining hf. er upplýsingatæknifyrirtæki
sem þróar og selur hugbúnað og vélbúnað fyrir
heilarannsóknir. Búnaðurinn byggist á heilariti,
en það er mæling á rafspennu sem stafar frá víxl-
verkan milli taugafruma í heilanum. Þessi spenna
endurspeglar virkni heilans. Helsta afurð fyrir-
tækisins er heilaritskerfið NervusEGG sem not-
að er til greiningar á flogaveiki og til rannsóknar
á svefni og heilahrörnunarsjúkdómum. Heilasírit-
ið NervusMonitor er fyrir gjörgæsludeildir og
nýjasta afurðin, Keystroke, gæti valdið byltingu í
skilvirkri greiningu á heilablóðfalli og bætt árang-
ur í meðferð sjúkdómsins.
Net-Rlbum.net
Net-Album.net hf. hefur framleitt hugbúnaðinn
MewriM
-setur brag á sérhvern dag!
^ 'Joo-
53