Frjáls verslun - 01.07.2001, Síða 69
AUGLÝSINGAR OG MARKflÐSWflL
Heilinn í sundur. Auglýsing frá Tóbaksvarnarnefhd sem sýnir skað-
semi reykinga og sett hefur hroll að mörgu fólki.
stað í strætóskýlum. Ég get ekki séð að tjáningarfrelsið sé í stór-
hættu þótt Odd Nerdrum sé bannað að birta sjálfsmynd af sér
með típpið út í loftið á strætóskýlum bæjarins. Aknenningur
hlýtur að eiga fullan rétt á að vera hlíft við slíku. Hins vegar væri
auðvitað grátlegt ef hann mættí ekki auglýsa sjálfan sig í allri
sinni dýrð í þar tíl gerðum fagtímaritum.“
Þorvaldur segir að það séu engin einföld viðmið til um það
sem veldur fólki ógeði. „Innyfli eru fæstum geðsleg, úrgangur
fólks ekki heldur og ofbeldismyndir. Hvort hins vegar er í lagi
að nota ógeðfelldar myndir í góðum tilgangi en ekki í slæmum
er álitamál og mér finnst að það hljóti að vera spurning um það
hversu vönduð auglýsingin er fremur en að tilgangurinn helgi
alltaf meðalið. Þannig verði faglegt sjónarmið að ráða og svo
birtingarstaður en ekki bara hvort megi senda og sýna hvetjum
sem er hvað sem er í nafni þess að það sé tíl varnaðar. Auk þess
stendur markaðurinn reyndar svo öflugan vörð um almennt vel-
sæmi að hann þarf sjaldnast mikla hjálp. Langflestir auglýsend-
ur og auglýsingamiðlar eru óþarflega hræddir við gagnrýni og
ijöldinn allur af snjöllum auglýsingahugmyndum fer í ruslið
vegna ótta við að móðga viðkvæmustu sálirnar."
Úgeðsleg en áhrifarík auglýsing Hildur Björg Hafstein hjá ís-
landi án eiturlytja og Áfengis- og vímuvarnaráði segir auglýsing-
una „Úr hvaða rassi? “ sem birtist aftan á strætisvögnum í kring-
um verslunarmannahelgina, vera íýrst og síðast ætíaða að
breyta viðhorfum. „Ef okkur tekst með auglýsingum á borð við
þessa að opna augu ungs fólks fýrir því að eiturlyf komi tíl lands-
ins á þennan hátt, þá er mögulegt að það hugsi sig tvisvar um
þegar þeim býðst þau. Vissulega er auglýsingin ógeðsleg en
eiturlyJjaheimurinn er það líka og óþarfi að reyna á nokkurn hátt
að fela það. Við vitum að það þarf sífellt sterkari lýsingar og
ábendingar til að ná athygli ungs fólks því skelin er þykk og
áreitið mikið. Því var það von okkar sem
stóðum að auglýsingunni að með því að
segja hlutina umbúðalaust og koma af stað
umræðu að það myndi hafa áhrif, ekki síst
íýrir verslunamannahelgina en við vitum að
þá standa margir frammi fyrir því að vera
boðin eiturlyf.“
Einhverjir óánægðir Þessi ákveðna aug-
lýsing, sem sýnir óhreinan smokk fullan af
töflum, hefur komið af stað umræðum.
Bæði neikvæðum og jákvæðum og þykir
sumum sem of langt sé gengið og að ekki
megi sýna ógeð á borð við þetta. Aðrir
skilja auglýsinguna rangt og telja hana
visa í nauðganir eða samkynhneigð. Þó
að fólk sjái hana, er ekki þar með sagt að
hún skiljist rétt og þar með geta skilaboð-
in misst marks.
„Hugmyndin fæddist á fundi,“ segir
Hildur. „Hún þótti góð og var útfærð í
snatri en ákvörðun um að birta hana var
tekin að vel ígrunduðu máli og ekki tek-
in fyrr en ijölmargir höfðu séð auglýs-
inguna og metið. M.a. var sérstaklega
leitað eftir áliti ungs fólks sem er jú
markhópurinn. Þau virtust skilja skila-
boðin strax en vel má vera að auglýs-
ingin hefði átt að vera betur merkt
þannig að almenningur kveiktí á perunni. Þeir sem standa að
auglýsingunni eru ijölmargir sem vinna að vímuvörnum. Nú er
verið að að vinna að því að útfæra hana enn betur og halda
áfram þessari baráttu. Við erum þess fullviss að það sé tími til
kominn að gera eitthvað róttækt og áhrifamikið tíl að skapa
umræðu og það virðist hafa tekist. Einhverjir hafa hringt í
Strætó og lýst óánægju sinni og um tíma lá við að auglýsingin
yrði ijarlægð. Til þess kom þó ekki og ég er eiginlega ánægð
með þá umræðu sem skapaðist í kringum það mál því hún
vakti talsvert meiri athygli á auglýsingunni en annars hefði ver-
ið. Auðvitað eru þeir til sem finnst þetta ógeðslegt og jafnvel
óviðunandi. Við áttum von á slíkum viðbrögðum, kannski ekki
alveg svo sterkum því það hafa birst auglýsingar sem hafa ver-
ið að mínu mati mjög ógeðfelldar. En það hafa líka margir
hringt til okkar og hrósað auglýsingunni og sagt allt til vinn-
andi til að draga úr neyslu eiturlyfja. Það sem vakti fyrir okkur
var að vekja umræðu, draga úr þeirri glansmynd sem okkur
finnst oft umlykja eiturlyijaheiminn. Sjaldan er vitað hvar eitur-
lyf eins og e-taflan er framleidd né heldur hvað er í þeim en við
vitum hver er helsta smyglleið þeirra til landsins og vildum fá
ungt fólk tíl að hugleiða það.“ BIl
um sýningu
norska listamannsins
Odd Nerdrum. Ýmsir fjöl-
miðlar báðu um að borði
yrði settur yfir helsta
djásn listamannsins áður
en þeir birtu auglýsing-
una.
FRABÆR
STAÐSETNING
FYRIR LÍTIL SEM
STÓR FYRIRTÆKI