Frjáls verslun - 01.07.2001, Qupperneq 74
Linda B. Bentsdóttir, forstöðumaður viðskiptasviðs Frjálsa fjárfestingar-
bankans hf: „Eg hefgaman afþví að stunda íþróttir, ekki bara horfa á
þœr í sjónvarþinu. “
FÓLK
og nú erum við farin að vinna
aftur að þvi sem við vorum að-
allega í, útlánum. Þetta hefur í
raun allt saman gengið mjög
vel og verið reynsluríkur tími.
Nú erum við með þrjá lána-
flokka, bílalán, fasteignalán til
skemmri tíma og svo fram-
kvæmdalánin. Þá höfum við æ
meira farið út í hærri lánveit-
ingar til stærri fyrirtækja en
jafnframt fækkað lánum til ein-
staklinga. Mitt starf felst nú
helst í því að stýra starfsemi
viðskiptasviðsins með fram-
kvæmdalánin og lán til stærri
fyrirtækja. Endurskoða verk-
ferli og reglur fyrir fram-
kvæmdalánin, en við erum að
ég held ein á markaðnum í
þeim. Astæðan er líklega helst
sú að um gríðarlegt verk er að
ræða og háar fjárhæðir,
þannig að vanda þarf mjög til
allra verka, td. skjalagerðar,
en samningarnir geta oft verið
stúdentsprófi frá hagfræði-
deild. „Eg fór í eitt ár sem
skiptinemi til Bandaríkjanna,
var í Utah og átti þar gott ár.
Svo fór ég í lagadeild HI og eft-
ir útskrift að vinna hjá Sýslu-
manninum í Reykjavík þar
sem ég öðlaðist dýrmæta
reynslu og góða í uppboðs-
deildinni. Síðan fór ég að
vinna á Lögfræðistofu Reykja-
víkur - Skuldaskil, þar sem ég
var næstu þijú árin sem lög-
mannsfulltrúi hjá Eggerti B.
Olafssyni lögmanni. Eftir það
fór ég til Samvinnusjóðsins og
vann þar sem framkvæmda-
stjóri dótturfyrirtækis sjóðs-
ins sem hét Lögfang og sá um
lögfræðistörffyrirsjóðinn. Þar
var ég þangað til mér var boð-
in staða framkvæmdastóra
viðskiptasviðs við hið samein-
aða fyrirtæki, sem ég sinni
enn, sem forstöðumaður við-
skiptasviðs. Svo er maður
Linda B. Bentsdóttir,
Frjálsa fjárfestingarbankanum
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur
Linda B. Bentsdóttir lög-
fræðingur er forstöðu-
maður viðskiptasviðs hjá
Frjálsa flárfestingarbankan-
um sem Kaupþing keypti um
síðustu áramót Aður höfðu
Samvinnusjóður Islands og
Fjárvangur sameinast undir
heitinu Frjálsi ijárfestingar-
bankinn sem raunar ílutti í
nýtt húsnæði við Sóltún fyrir
rúmu ári.
„Við lögðum mjög rika
áherslu á verðbréfasjóði hjá
Fijálsa flárfestingarbankanum,
enda vorum við umboðsaðilar
fyrir Fidelity Investments sem
var og er stærsti óháði eigna-
umsýsluaðilinn í heiminum, og
Fijálsa ltfeyrissjóðinn. Útíánin
voru auðvitað ltka með en við
vorum búin að markaðssetja
þau nokkuð vel og þurftum lít-
ið að legga á okkur til að halda
því við sem við ætíuðum okk-
ur. Við lögðum einna helst
áherslu á tiltölulega nýjan lána-
flokk, framkvæmdalán, sem
hafa gengið mjög vel hjá okk-
ur, en þar er um frekar óhefð-
bundin lán að ræða og umsjón
talsvert mikil."
Eftir að Kaupþing hafði
keypt Frjálsa fjárfestingar-
bankann áttu sér stað veiga-
miklar breytingar á rekstri
fyrirtækisins sem fólust einna
helst í því að öll verðbréfavið-
skiptin og rekstur Fijálsa líf-
eyrissjóðins fóru yfir til Kaup-
þings, auk plda starfsmanna.
„Við hjá Fijálsa tjárfesting-
arbankanum leggjum núna
enn meiri áherslu á fram-
kvæmdalánin og lán til stærri
fyrirtækja en áður,“ segir
Linda. „Við eyddum töluverð-
um tíma í að gera upp eftír
sameininguna, bæði við
starfsfólk og svo Kaupþing,
ansi flóknir. Það eru þvi miklir
hagsmunir í húfi. Við erum að
láta smíða nýtt tölvuforrit fyrir
þennan lánaflokk og verður
það til að gera alla umsjón ör-
uggari, einfaldari og þægi-
legri. Það hefur talsvert verið
talað um að vanskil hafi aukist
upp á síðkastíð en við höfum
ekki orðið þess vör hjá okkar
viðskiptavinum. Við erum
vandfysin á viðskiptavini okk-
ar og ekki að ástæðulausu en
það skilar sér vel.“
Linda segist vera „orginal“
Kópavogsbúi og sem slík á
hún erfitt með að flytja þaðan í
burtu, enda hafi hún engan
áhuga á því. „Þetta eru eins
konar átthagaflötrar," segir
hún og brosir við. „Það er ein-
faldlega ekki hægt að fara úr
Kópavoginum og nú bý ég í
Hvömmunum."
Hún gekk í Verslunarskóla
Islands þar sem hún lauk
alltaf að bæta við sig, en ég
stefni á að klára nám í verð-
bréfamiðlun hjá Endurmennt-
un HI núna í haust.“
Linda segist hafa mjög vítt
áhugasvið og að íþróttir og úti-
vera séu helstu áhugamálin.
„Eg hef gaman af því að
stunda íþróttir, ekki bara
horfa á þær í sjónvarpinu,"
segir hún. „Eg skokka, hjóla,
fer stundum á linuskauta og
nýt þess að fara á sktði. Svo er
ég með hesta í Gusti ásamt
foreldrum mínum, en hef því
miður lítinn tíma haft til að
sinna því áhugamáli svo vel sé
upp á síðkastið. Annars er að-
aláhugamálið fjölskyldan,
dóttir min 10 ára, sonurinn
ársgamall og eiginmaðurinn,
Gunnar Jóhannsson, starfs-
maður hjá ACO, sem þessa
stundina er að læra tölvu- og
kerfisfræði hjá Rafiðnaðar-
skólanum.“S!l
74