Frjáls verslun - 01.03.2002, Side 24
Bjartur NK í höfninni í Neskaupstað. Vinstra megin á myndinni má sjá byggingu á vegum Síldarvinnslunnar en þar erfyrirhugað að innrétta
laxasláturhús.
Við höfum fjárfest verulega í Laxá, fyrirtæki sem framleiðir
fóður til fiskeldis. Við erum líka aðilar að félagi með laxeldi í
Mjóafirði og eigum 35% í því núna,“ segir Björgólfur.
- Þetta minnir svolítið á Samherja, sem hefiir verið að fiárfesta í
laxeldi og fiskeldi almennt Þorsteinn Már Baldvinsson sagði ný-
lega í viðtali við Fijálsa verslun að hann hefði mikla trú á fiskeldi.
„Það getur vel verið. Samherji er með álíka sýn og við hvað
fiskeldi varðar sem segir okkur að þeir séu líka framsýnir. Við
erum líka að prófa ýmislegt sem Samheiji er ekki að prófa, t.d.
hlýraeldi. Hlýri er mjög góður matfiskur og því vonandi að
þetta takist. Svo erum við með þorsk í kvíum því að við teljum
að eldi á fiski verði mikið á næstu árum og viljum fylgja þeirri
þróun. Það getur vel verið að það hittist þannig á að þetta sé
eins og hjá Samheija. En satt að segja höfum við náð að vinna
ágætlega með Samheija. Við eigum saman þetta laxeldisfyrir-
tæki í Mjóafirði og svo erum við með þeim í sölu á upppsjávar-
fiski í sölufyrirtækinu Sæblikanum ehf.
Allt kemur til yreina Framtíðarhorfur á norðanverðum Aust-
tjörðum hafa mikið verið í umræðunni að undanförnu og
margir velta fyrir sér hvort það komi til greina að sameina
stærstu fyrirtækin tvö í ijórðungnum, Síldarvinnsluna í Nes-
kaupstað og Hraðfrystihúsið á Eskifirði, á sama hátt og sveitar-
félögin á svæðinu hafa sameinast. Björgólfur segir að allt komi
til greina þegar hagkvæmnin er annars vegar. Ákveðin sam-
legðaráhrif fáist ljóslega af því að sameina þessi tvö fyrirtæki en
svo geti menn velt fyrir sér hvort önnur og betri tækifæri séu
fyrir hendi. Hann spyr lika hvort hollt sé fyrir samfélagið í
Fjarðabyggð að fyrirtækin sameinist í eitt stórt fyrirtæki.
„Eg er ekki viss um það. Síldarvinnslan myndi ekki skorast
undan því að ræða við Eskfirðinga um sameiningu ef það stæði
til boða. En kannski er öflugra fyrir þessi fyrirtæki að vera
hvort í sínu lagi. Það er ákveðin samkeppni á milli þeirra, við
berum okkur svolítið saman og viljum vera betri en þeir. Þeir
vilja örugglega standa sig betur en við. Það er hollt að ýmsu
leyti að hafa fyrirtækin aðskilin. Það getur líka verið sterkt fyrir
þessi fyrirtæki að sækja samstarfsfélaga frá öðrum lands-
hlutum og styrkja þetta svæði enn frekar,“ segir hann.
- Getur komið til greina að sameinast einhveijum öðrum, td.
Samheija?
„Mér finnst allt koma til greina ef hluthafar hagnast á því og sam-
félagið styrkist við það. Samheiji á auðvitað stóran hlut í þessu
félagi, samtals 34% ef hlutir Snæfugls ehf. eru teknir með í reikn-
inginn en Samheiji er þar stærsti hluthafinn. Sumir eru hræddir
við ítök Samheija í Síldarvinnslunni en ég trúi ekki að Samheiji
hafi ákveðið að kaupa hlut í félaginu af tilviljun, menn hljóta að
sjá einhver tækifæri og hafa trú á að rekstur þessa félags skili
einhveiju. Við vitum að Grandi er stór hluthafi í Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar. Stóru sjávarútvegsfyrirtækin hafa verið að koma inn
í hluthafahópinn hjá þessum félögum,“ svarar Björgólfur.
Skoða Öll spil Margir hafa spáð því að sjávarútvegur í landinu
færist á hendur 3-5 stórra sjávarútvegsfyrirtækja innan fárra ára
og sumir telja að kaup Burðaráss í ÚA og Skagstrendingi hafi
Akveðið vandamál er við vinnsluna á kolmunnanum því að „þetta er smár fiskur og dýrt
að beinhreinsa hann en við eigum að geta náð tökum á því. Við höfum verið að velta
fyrir okkur að salta hann, búa til blokk úr honum eða jafnvel pylsu. Það væri ekki
amalegt að fara á Bæjarins bestu og fá sér kolmunnapylsu!“
24