Frjáls verslun - 01.03.2002, Page 25
hleypt skriðunni af stað. Björgólfur
er sammála því að sjávarútvegs-
fyrirtækjum muni fækka og að þau
stækki á næstu árum. Hann kveðst
hafa spáð þvi fyrir þremur árum að
í framtíðinni verði fimm til sex stór
sjávarútvegsfyrirtæki öflug í úr-
vinnslu afurða og þau verði áberandi
í sjávarútvegi erlendis. Þessi spá-
dómur segir hann að hafi ekki mikið
breyst. Þróunin sé í þessa átt og lík-
lega verði þrjú stærstu fyrirtækin
Burðarás-ÚA, Samheiji og Grandi.
Svo sé spurning hvað gerist suður
með sjó, hjá Þorbirni í Grindavík, og í
Vestmannaeyjum.
- Hvað heldurðu að Samvinnufélag
útgerðarmanna í Neskaupstað vilji
gera? Heldurðu að þeir vilji ganga í
sæng með t.d. Eimskip frekar en
öðrum?
„Ég veit það ekki. Ég get litið svarað fyrir
þá þó að þeir séu nærri mér dags dag-
lega. Það er afskaplega erfitt að svara ein-
hveiju svona og kannski beinlínis hættu-
legt fyrir mig. Ég hef trú á að þeir vinni
með þeim sem vilja byggja upp öflugt
Tíu stærstu hluthafarnir eiga
SSSSS=iSS
ársbyrjun 2001. Stærstu hluthafar eru þe
20,00%
Snæfugl .. ^o/0
Samvinnufélag útgerðarmanna
í Neskaupstað iSÚN) ............... 13’80%
Samherji........................ 8 540/0
Nafta hf. fOlís)......■ ■......
Bæjarsjóður og hafnarsjóður ^ 520/o
............................... 4,90%
Tryggingamiðstöðin............... 3 60%
Lífevrissjóður Austurlands.........
Olíusamlag útvegsmanna
í Neskaupstað fOÚN) ..........
WÍB hf., sjóður B ................
Hraðfrystihús Eskifjarðar hf.....
Lífeyrissjóður verkfræðinga......
Lífeyrissjóður Neskaupstaðar ....
Lífeyrissjóður Vestfirðinga.....
Netagerð Friðriks Vilhjálmssonar
Björgólfur Jóhannsson ..........
Gísli Sigurbergur Gíslason.....
Þórður Þórðarson...............
Þróunarfélag íslands...........
1,30%
0,97%
0,35%
0,25%
0,24%
0,20%
0,18%
0,14%
0,14%
0,14%
0,12%
AUSTFJARMJARLARNIR
fyrirtæki hér, hvort sem það heitir
Samherji, Burðarás, ÚA eða eitthvað
annað. Ég held að þeir skoði spil ann-
arra til að velja sinn aðalsamstarfsað-
ila. Það er hins vegar ljóst að Samheiji
er kominn með góða stöðu í Síldar-
vinnslunni og Burðarás hefur einnig
öfluga stöðu þannig að kannski hefur
Samvinnufélagið ekkert um þessa
ákvörðun að segja, t.d. ef Burðarás
selur Samheija eða öfugt. Þá er 50
prósenta eignarhlutur kominn á
annan hvorn vænginn og þeir hafa
ekkert um það að segja.“
Gerir samfélagið heilbrigðara
Alver hefur mikið verið til um-
ræðu að undanförnu og mörgum
kann að virðast sem áætlanir um
álver á Reyðarfirði hafi verið lagð-
ar á ís, a.m.k. í bili, þó að stofnuð
hafi verið ný viðræðunefnd undir
forsæti Finns Ingólfssonar seðla-
bankastjóra. Björgólfur er
hlynntur álveri þó að auðvitað
hafi álver bæði kosti og galla í
för með sér. Hann telur þó kost-
ina yfirgnæfandi. Álver yrði
www.airiceland.is
Flugkortið er greiðslu-
og viðskiptakort
ætlað fyrirtækjum í viðskiptum við Flugfélag íslands
Flugferðir
Hótel
Veitingar
Fínn kosturáferðalöpm
Alll að 30% alsláttur til Flugkortshafa
Með Flugkortinu má greiða flugfarseðla með Flugfélagi íslands,
bílaleigubíl, hótelgistingu, mat á veitingastöðum og ýmsa aðra
þjónustu hjá völdum fyrirtækjum í samstarfi við Flugkortið.
Notkun kortsins hefur einnig í för með sér ýmsa sérþjónustu og
fríðindi ásamt því hagræði sem fylgir sundurliðuðu reiknings-
yfirliti sem Flugkortshafa er sent mánaðarlega.
■ Bílaleiga
■ Fundaraðstaða
■ Eldsneyti
Upplýsingar hjá Fyrirtækjaþjónustu
Flugfélags íslands
sími 570 3606. Fax 570 3001
Netfang: flugkort@airiceland.is
Umtalsverður sparnaður
Viðskipti með Flugkorti hafa í för með sér allt að 30% afslátt af
viðskiptum við Flugfélag íslands og Flugkortshöfum eru ætíð
tryggð betri kjör hjá samstarfsaðilum en annars staðar, séu
gæðin lögðtil grundvallar.
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Fyrirtækjaþjónusta
25