Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2002, Blaðsíða 38

Frjáls verslun - 01.03.2002, Blaðsíða 38
SÉRFRÆÐINGAR SPÁ í SPILIN Spumingiii tilJóns Hákonar Magnússonar, eiganda almannatengslafyrirtækisins KOM, er þessi: Mikil umræda er núna um ab menn skipti meira máli en málefni í pólitík, aó leiðtogapólitík hafi tekið viö afflokkapólitík. Ertpú sammála þessu og hvað einkennir sterka leiðtoga? Pólitíkusar að fá á sig yfirbragð Hollywood-stjarna Jón Hákon Magnússon, eigandi almannatengsla- fyrirtækisins KOM, fjallar hér um það hvernig leið- togapólitík hefur tekið við af flokkapólitík. „Ein ástæðan er að flokkslínur eru ekki eins skýrar og þær voru á tímum kalda stríðsins." Augljóst er að pólitískir leiðtogar skipta mun meira máli en flokkapólitík nú á tímum. Þetta sést vel í yfirstandandi borgar- stjórnarkosningum. Umræðan snýst einvörð- ungu um tvo frambjóðendur - Björn Bjarna- son og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Hinir, sem skipa D- og R-lista, eru ekki með í umræðunni. Ekki aðeins það, heldur virðist sem kjósendur spái ekkert í þá. Þetta er ekki séríslenskt fyrirbæri. Við sjáum þetta gerast um hinn vestræna heim. Sumir frambjóðendur eru búnir til þess eins að verða sterkir leiðtogar. Aðrir eru með meðfædda foringjahæfileika sem lyftir þeim upp í veldisstólinn. Eg upplifði þetta fyrst sem háskólanemi í Ameríku þegar John F. Kennedy, ungur, myndarlegur en óreyndur þingmaður frá Boston, skaust upp á stjörnuhimininn í kosningum 1960 og sigraði með glæsibrag. Þótt hann væri með yfirbragð riddara á hvítum hesti þá nægði það ekki til þess að tryggja honum Hvíta húsið hjálparlaust. Á bak við hann var ótrú- lega öflug og vel smurð pólitísk maskína tjármögnuð af vellauðugum föður hans. Slíkt hefur gerst æ oftar síðan. Undanfarna áratugi höfum við séð hvernig almenningur horfir meira til for- ingjans en flokksins sem að baki honum stendur. Ein ástæðan er að flokkslínur eru ekki eins skýrar og þær voru á tímum kalda stríðsins. Hin ástæðan er að pólitískir for- ingjar eru að fá á sig yfirbragð Hollywood- stjörnunnar. Þetta sést best í fjölmiðlum nú- tímans sem lifa á því að segja frá „fallega fólkinu". Þar blandast pólitískir foringjar saman við stórstjörnur skemmtanaiðnaðar- ins og nýríka uppa athafnalífsins. Þetta gerist ekki bara í Washington og Reykjavík. Við sáum hvernig franskir sósíal- istar hurfu í skugga Mitterands. Kristilegir demókratar viku fyrir Helmut Kohl í Þýska- landi. Ekki má gleyma Margréti Thatcher. Hvað þá Tony Blair. Hann var hannaður af ímyndarsérfræðingum sem Clinton forseti lánaði breska Verkamannaflokknum eftir að þeir höfðu komið honum sjálfum í hásæti Hvíta hússins. Hér hafa ríkt öflugir leiðtogar sem skyggt hafa á flokk sinn. Fremstur þeirra er Davíð Oddsson sem er ímynd Sjálfstæðis- flokksins. Þá má nefna Steingrím Her- mannsson, Jón Baldvin Hannibalsson og síðast en ekki síst Ingibjörgu Sólrúnu, sem var hönnuð til að leiða samkrull tjórflokka í borgarpólitíkinni. Hún er mikill efniviður sem hefur reynst gulls ígildi enda fer hún senn i landsmálin. Ingibjörg Sólrún verður hinn sterki foringi jafnaðarmanna, en flokk- urinn hverfur í skuggann. [H Pólitískir foringjar eru að fá á sig yfirbragð Hollywood-stjörnunnar. Þetta sést best í fjölmiðlum nútímans sem lifa á því að segja frá „fallega fólkinu“. Þar blandast pólitískir foringjar saman við stór- stjörnur skemmtanaiðnaðarins og nýríka uppa athafnalífsins. 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.