Frjáls verslun - 01.03.2002, Blaðsíða 41
Fjarðarkaup eru með um fimm prósent af matvörumarkaðinum á landinu. Veltafyrirtœkisins er um tveir milljarðar króna. Tœþlega 60 prósent
viðskiptavina koma úr Hafnarfirði en rúmlega 40 prósentfrá nágrannasveitarfélögum.
peningum. En sem betur fer hefur gengisþróunin verið jákvæð
og við höfum notað tækifærið til að sýna okkar samstöðu og vera
fyrstir til að lækka verðið í þessum geira,“ segir hann.
Údýrasti Stórmarkaðurinn Viðbrögðin við frumkvæði Fjarðar-
kaupa voru af margvíslegum toga. Neytendur sýndu strax
samstöðu sína en samkeppnisaðilarnir reyndu að gera lítið úr
framtakinu, að mati Sveins, og töluðu um það sem ódýra
auglýsingu. Það sé þó ljóst að þijú prósent af mánaðarsölu
fyrirtækisins nemi 6 milljónum króna þannig að þetta sé
stærsta verkefni sem fyrirtækið hafi farið í. „Þetta hefur gengið
mjög vel. Það hefur komið okkur mest á óvart hvað við höfum
fengið sterk viðbrögð. Við eigum eftir að lækka verðið enn
meira. Birgjar og heildsalar hafa verið að senda inn lækkanir
og við munum fylgja þeim úr húsi og lækka verðið í samræmi
við það. Ávaxta- og grænmetisverð hefur lækkað talsvert. Verð
á tómötum og paprikum fór upp í 700-800 krónur áður en
niðurgreiðslur ríkisvaldsins komu til. Hjá okkur kemur það
ekki til með að fara yfir 500 krónur. Þetta hefur haft gífurlega
mikil áhrif og það er samhugur í fólki,“ segir hann.
Verðlækkunin í Fjarðarkaupum er miðuð við 1. mai en
Sveinn telur ekki ólíklegt að verðlækkuninni verði haldið
áfram fram á haustið. Stemmningin í þjóðfélaginu sé þannig.
„Við viljum vera ódýrasti stórmarkaðurinn. Við höfum verið
það og erum stoltir af þvi.“
Höfum sérstaka stöðu Matvörumarkaðurinn hefur breyst
gríðarlega síðustu 10-20 árin. Fyrir 1990 var markaðurinn allt
Níu verslanir eru í Hafnarfirði; Bónus, þijár 10-11 versl-
anir, Nóatún, Samkaup, tvær Krónuverslanir og Fjarðar-
kaup. Fjarðarkaup velta tæpum tveimur milljörðum á ári.
Markaðssvæðið er Hafnarijörður, Álftanes, Garðabær,
Kópavogur, Breiðholt og suður með sjó. Tæplega 60 prós-
ent viðskiptavina Fjarðarkaupa koma úr Hafnarfirði en
rúmlega 40 prósent frá nágrannasveitarfélögum. Fyrir-
tækið er með um 5 prósent af matvörumarkaðinum og er
þá átt við landið allt. Sveinn segir eitt af aðalsmerkjum
Fjarðarkaupa vera að þar sé hægt að fá allar vörur á einum
stað á sanngörnu verði. S9
öðruvísi en í dag, verslanirnar voru miklu fleiri og minni og
kaupmennirnir margir. Fyrirtæki urðu gjaldþrota í stórum stíl
og gjaldþrotin á svæðinu í nágrenni við Fjarðarkaup námu
milljörðum króna. Sveinn segir að oft hafi verið erfitt að keppa
við þessi fyrirtæki en starfsumhverfið sé nú gjörbreytt og
miklu heilbrigðara í dag. Það sé því auðveldara að reka fyrir-
tæki á borð við Fjarðarkaup en var fyrir 10 árum. „Eg hef oft
sagt að Fjarðarkaup sé eins og harmonikka. í góðæri getum
við dregið hana í sundur og svo drögum við saman þegar syrtir
í álinn. Við erum þannig verslun að við þolum bæði samdrátt
og góðæri," segir hann.
Ótrúlegar sviptingar hafa átt sér stað á matvörumarkaði og
hefur matvöruverslunin færst til stórfyrirtækja eins og Baugs,
Kaupáss, Nettó og Samkaupa. „Kaupmönnum hefur fækkað í
Engar hallir. „Við höfum ekki reist hallir utan um hveiti og sykur sem ekki á að vera svo
flókið að selja,“ segir Sveinn. „Kaupmenn hafa flaskað á því að byggja yfir sig. Við höfum
verið með þessa einingu og ekki verið að flækjast neitt út um hvippinn og hvappinn.
Fyrirtækið hefur frá fyrsta degi skilað hagnaði. Skuldirnar eru ekki miklar.“