Frjáls verslun - 01.03.2002, Qupperneq 48
KOSNINGAR 2002
D-listi sterkur í Garðabæ
Staða Sjálfstæðisflokksins (D) í Garðabæ er sterk. Flokkurinn fengi
fimm menn kjörna í bæjarstjórn gangi könnunin eftir. Framsóknar-
flokkur (B) og Samfylking (S) fengju einn fulltrúa hvor. Bæjarstjóra-
skipti urðu í Garðabæ fyrir einu og hálfu ári þegar Ásdís FHalla Braga-
dóttir tók við þeirri stöðu af Ingimundí Sigurpálssyni sem varð for-
stjóri Eimskips. U-listi, Vinstri-grænir, býður ekki fram. (Sjá nánar
heimur.is)
Ásdís Halla Bragadóttir Einar Sveinbjörnssan Sigurður Björgvinsson
bæjarstjóri veSurfræðingur skólastjóri,
leiðir D-listann. leiðir B-listann. leiðir S-listann.
Einvígi S- og D-lista í Hafnarfirði
Allt stefnir í einvígi milli tveggja höfuðfylkinga í Hafnarfirði, Sjálf-
stæðisflokksins (D) og Samfylkingarinnar (S). Sjálfstæðisflokkurinn
hefur betur, samkvæmt könnuninni, og fengi hreinan meirihluta, eða
sex menn kjörna, Samfylkingin fengi fimm fulltrúa kjörna. Munurinn
milli fylkinganna er þó ekki marktækur og því er hörkuspennandi
barátta framundan. Framsóknarflokkur (B) og Vinstri-grænir (U) ná
ekki fulltrúa í bæjarstjórn gangi könnunin eftir. (Sjá nánar heimur.is)
Magnús Gunnars-
sun bæjarstjóri
leiðir D-listann.
Lúðvík Geirsson
blaðamaður
leiðir S-listann.
Porsteinn Njáls-
son læknir
leiðir B-listann.
Sigurbergur
Árnason arkitekt
leiðir U-listann.
kosningarnar í vor með um 59 prósent atkvæða á móti tæplega
41 prósent atkvæða sjálfstæðismanna. Reykjavikurlistinn átti þá
mestan stuðning meðal kvenna, eða 70 prósent, en Sjálfstæðis-
flokkurinn hafði naumt meirihlutafylgi karla. F-listi frjálslyndra
og óháðra fékk sáralitið fylgi og náði ekki inn manni. I sömu
könnun kom fram að fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík væri
mun meira til Alþingis en borgarstjórnar.
Alls voru birtar ijórar kannanir á fylgi flokkanna í Reykjavík í
mars. Heldur virtist staða R-listans styrkjast eftír því sem leið á
mánuðinn. Ymsir höfðu efasemdir um að aðferðafræðin væri
rétt við skoðanakannanir Talnakönnunar, en þær raddir hafa
hljóðnað þegar skoðanakannanir annarra sýndu svipaða niður-
stöðu. Þróunin í mars var sú að Reykjavíkurlistinn vann á, frem-
ur en hitt, næði 10 fulltrúum inn, og styrkti sig meðal karla.
Fylgi Sjálistæðisflokks til Alþingis Fylgi Sjálfstæðisflokks tíl
Alþingis, sem bundið var við kjósendur í Reykjavík, var sterkt í
öllum skoðanakönnunum, en minnkaði nokkuð milli kannana
eftir því sem á mánuðinn leið. I lok mánaðarins var munurinn til
Alþingis og borgarstjórnar orðinn lítíll. Framsóknarflokkurinn
var lítíll í fyrstu könnunum í Reykjavík eða um 5% en var kominn
í tæplega 10% mánaðarlok. Vinstri-grænir juku fylgi sitt mest, úr
14% í upphafi mánaðar í 22% í lok hans.
Önnur sveitarfélög könnuð Heimur.is hefúr einnig birt niður-
stöður skoðanakannana úr nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur.
I Kópavogi kom í ljós í byijun apnl að núverandi meirihlutí sjálf-
stæðismanna og ffamsóknarmanna væri mjög öruggur og jafn-
vel hugsanlegt að Sjálfstæðisflokkurinn næði þar meirihluta en
hnífjafnt er milli sjötta manns Sjálfstæðisflokks og fjórða manns
Samfylkingar. A Seltjarnarnesi er fylgi Sjálfstæðisflokks geysi-
sterkt eða yfir 60% samkvæmt könnuninni en minnihlutinn gætí
þó bætt við sig manni. I Garðabæ er sama sagan, fylgi Sjálfstæðis-
flokks um 60% og þar gæti hann reyndar aukið meirihluta sinn.
Einna mest verður spennan í Hafnarfirði þar sem Sjálfstæðis-
flokkurinn og Samfylkingin beijast um meirihlutann samkvæmt
niðurstöðum könnunarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn er með um
47% og sex menn og Samfylkingin 43% og fimm, en önnur fram-
www.heimur.is
Niðurstöður þessara kannana og urrrfjöllun um þær má lesa á vefsvæðinu heimur.is.
Þar er kafað dýpra ofan í þær og m.a. birt skipting svarenda eftir kyni og aldri.
48