Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2002, Page 61

Frjáls verslun - 01.03.2002, Page 61
Vottun Nýlega fékk ANZA alþjóðlega vottun skv. staðli er nefnist BS 7799 OSO 17799) og er fyrst fyrirtækja á Islandi til að fá slíka vottun. ANZA býður upp á forgreiningu upplýsinga- og öryggismála og gerir slík greining stjórnendum kleift að fá góða yfirsýn yfir stöðuna. Útbúin er öryggisstefna í samráði við stjórnendur og áhættumat framkvæmt. Aðgengi að upplýsingum er stýrt með verklagsreglum, öryggishandbók er útbúin og sömuleiðis vottun samkvæmt ISO 17799 staðlinum ef þess er óskað. Með upplýsingavernd er tryggt að viðskiptavinir verði ekki fyrir meiriháttar tjóni ef vandamál steðja að. „Þessi vottun þýðir að við uppfyllum ákveðnar öryggis- reglur og verklagsreglur og okkur er það mikil ánægja að fá staðfestingu þess á alþjóðlegum markaði," segir Guðni. „Við sameiningu þeirra fyrirtækja sem stóðu að ANZA á sínum tíma kom gríðarleg þekking og kunnátta inn í fyrirtækið starfsmenn þess hafa mjög breiðan menntunar- og þekkingarlegan grunn. Stærsta auðlind okkar er einmitt starfsfólkið því við seljum þekkingu, ekki vörur. Við hjá ANZA leggjum mikla áherslu á að starfsfólkið sé ánægt í starfi, gefum því tækifæri á sífelldri sí- og endurmenntun svo eitthvað sé nefnt." IMý verkefni ANZA hefur tekið þátt í nokkrum stórum útboðum hjá ríkinu í rekstri og hýsingu tölvukerfa og af síðustu fjórum útboðum hefur fyrirtækið fengið þrjú stór verkefni. „Þetta er uppsetning og rekstur stórra tölvukerfa á landsvísu en með því að hafa aðsetur og hýsingar- möguleika á tveim stöðum eigum við þess kost að veita mun betri þjónustu auk þess sem hægt er að vista afrit í tveim landshlutum sem veitir ákveðið öryggi," segir Guðni. „Eitt af stærri verkefnum Guðni B. Guðnason, framkuæmdastjóri flNZfl: „Við erum með öllu óháð öðrum fyrirtækjum og erum ekki að selja uörur frá neinum uél- eða hughúnaðaraðilum." Myndir: Geir Úlafsson en sem við erum að vinna að er Landskerfi bókasafna sem tengir öll bókasöfn á landinu saman. Þannig getur lesandi sem staddur er á bókasafninu á Höfn í Hornafirði leitað uppi bók sem ef til vill finnst á Landsbókasafni og pantað hana í gegnum millilán safna. Þriðja stóra kerfið er Landsskrá fasteigna þar sem allar fasteignir á landinu verða í einum grunni. Landskrá fasteigna verður ein stærsta skrá þjóðfélagsins er tímar líða og í skránni verður fjöldi skannaðra og rafrænna textaskjala, teikninga og líkana á tölvutæku formi. Óhætt er að segja að skráin verði til hagsbóta fyrir starfs- fólk sýslumannsembætta og sveitarfélaga og alla aðila sem koma að skráningu og umsýslu fasteigna." Mörg af stærstu fyrirtækjum landsins eru viðskiptavinir ANZA og segir Guðni það sýna styrk fyrirtækisins því þau séu kröfuhörð á þjónustu. „Okkar kjörorð er og hefur verið að veita sem allra besta þjónustu og vanda mjög til verka," segir hann. B3 kjarnastarfsemi en láta fagaðila um tölvumálin. Fyrirtæki losna þannig m.a. við þann kostnað og tíma sem fer í að þjálfa upp eða ráða fólk í umsjón tölvukerfa. Þannig má segja að við séum tölvudeild hvers fyrirtækis fyrir sig." Fyrirtæki sem kaupa rekstrarþjónustu af ANZA hafa ekki aðeins aðgang að þeim starfsmanni eða starfsmönnum sem þjónusta viðkomandi viðskiptavini heldur einnig allri þeirri þekkingu og tækni sem ANZA hefur upp á að bjóða. „Við erum með öllu óháð öðrum fyrirtækjum og erum ekki að selja vörur frá neinum vél- eða hugbúnaðaraðilum. Það er mjög mikilvægt að geta veitt algerlega óháða ráðgjöf, hvort sem um er að raeða kaup á búnaði eða þjónustu," segir Guðni. „Það er í raun grundvöllur þessarar þjónustu að vera óháður söluaðilum og geta með því valið nákvæmlega það sem viðskiptavinurinn þarfnast, óháð merkjum. Við hjálpum okkar viðskiptavinum að nýta tölvukerfi sín sem best og veitum að auki ýmsa ráðgjafa- þjónstu. ANZA veitir t.d. ráðgjöf á sviði öryggismála, fræðslu- mála sem tengjast tölvum, upplýsingafræði við skipulagningu skjalasafna og á sviði hugbúnaðargerðar." okkar er Rafrænt markaðstorg ríkisins þar sem við byggjum upp rafrænt innkaupakerfi ertengir saman seljendur og kaupendur. Selj- endur setja sína vörulista inn á gagntengt vefsvæði sem kaupendur hafa aðgang að og geta framkvæmt sín innkaup á rafrænan hátt. Ríkið mun hafa ákveðna forgöngu inn í þetta markaðstorg og stefnir að því að ákveðnir vöruflokkar úr rammasamningunum verði komnir þangað inn innan tveggja ára. Með þessu getur kaupandi skoðað það sem í boði er og pantað í gegnum tölvuna á einfaldan máta og munu bæði vinna og fyrirhöfn sparast með þessu. Annað stórt kerfi MfZA • Ármúla 31-108 Reykjavík Sími: 522 5000 ■ Fax: 522 5099 www.anza.is 61

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.